Lögmannablaðið - 01.10.2010, Blaðsíða 28
28 < LÖGMANNABLAÐIÐ – 3 / 2010
Það hefur ekki verið nein lognmolla
í starfsemi félagsdeildar í sumar
fremur en endranær. Golfmótum
tímabilsins lauk á glæsilegu meist
ara móti í september og gönguferð
ársins á Herðubreið aflýst vegna
óveðurs. Í lok september fór 34
manna hópur til Tallinn í Eistlandi
og Félag kvenna í lög mennsku hefur
verið sérstaklega virkt. Í þessu
haustblaði er bragðað á uppskeru
sumarsins.
Námskeið
Undirbúningur fyrir haustið fór óvenju
seint af stað en vegna umfangs hdl.
námskeiðs er meiri hluti námskeiða nú
haldin í nóvember. Sem fyrr reynir
félagsdeild að standa fyrir fjölbreyttum
námskeiðum fyrir lögmenn og starfsfólk
lögmannsstofa en skipta má þeim í fjóra
hluta. Mikilvægust eru faglegu nám
skeiðin sem hafa þann tilgang að auka
færni þátttakenda á einstökum réttar
sviðum. Kennarar námskeiðanna eru
jafnan þeir lögmenn sem fremstir eru
meðal jafningja á viðkomandi sviði. Sex
námskeið hafa nú þegar verið skipulögð
á haustönn og skráning á þau hefur
farið vel af stað.
Annar hluti eru námskeið sem hafa
þann tilgang að veita kryddi í tilveruna.
Í haust eru til að mynda auglýst
námskeið með Ólafi Reyni Guð munds
syni lögfræðingi og píanóleikara sem
kynnir sérvalin tónverk. Á meðan gæða
þátttakendur sér á ostum og víni og
verður þannig leikið við öll skynfærin.
Þriðji hluti eru námskeið sem auka
almenna færni einstaklinga án þess að
lögfræði komi þar við sögu, en reglulega
hefur verið boðið upp á slík námskeið
við misgóðar undirtektir. Nú hefur
félagsdeild auglýst námskeið í samráði
við Félag kvenna í lögmennsku um
streitu og hvernig hægt er að nýta hana
á jákvæðan hátt.
Fjórði og síðasti hluti eru svo nám
skeið sem skipulögð eru sérstaklega
fyrir starfsfólk lögmannsstofa. Þannig
er fyrirhugað námskeið um feril inn
heimtumála og samskipti við greið
endur.
Gönguferð
Til stóð að 25 manna hópur gengi á
Herðubreið í ágúst síðast liðinn en
vegna óhagstæðs veðurs var ferðinni
aflýst. Vatnavextir voru í ám, frost á
fjalli og næðingur að norðan, auk þess
sem vitað var að ekkert útsýni yrði fyrir
ferðagarpa. Því var ákveðið að fella
ferðina niður við misgóðar undirtektir
þátttakenda. Drottningin er hins vegar
ekkert á förum svo við reynum að boða
til göngu síðar.
Fótbolti
Síðustu tvö ár hefur einungis eitt
fótboltamót verið haldið innanhúss
skömmu fyrir jólin. Nú er verið að
athuga áhuga fótboltakappa á því að
endurvekja fótboltamótið utanhúss en
það mun þá verða auglýst fljótlega.
Eyrún Ingadóttir
Uppskerutími
Skil fjárvörsluyfirlýsinga
Lögmannafélagið sendi í vor út eyðublað fjárvörsluyfirlýsingar til allra sjálfstætt starfandi lögmanna en frestur til að skila
inn fjárvörsluyfirlýsingum fyrir árið 2009 rann út 1. október s.l. Þeir lögmenn sem enn hafa ekki skilað inn
fjárvörsluyfirlýsingu eru hvattir til að gera það án frekari dráttar.
Fréttir frá félagsdeild