Fréttablaðið - 03.11.2014, Síða 4
3. nóvember 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 4
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kkolbeins@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Ingibjörg Karlsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
FALLEGT VETRARVEÐUR verður á landinu á morgun, frost um mestallt land en víða
bjart og hægur vindur. Annað kvöld má búast við snjókomu eða slyddu suðvestanlands
þegar áhrifa frá lægð sem nálgast landið fer að gæta.
0°
8
m/s
2°
11
m/s
2°
5
m/s
4°
11
m/s
Hæg breyti-
leg átt.
Snjókoma
eða slydda
SV-lands
um kvöldið.
Vaxandi
vindur
sunnan-
lands.
Gildistími korta er um hádegi
14°
22°
12°
16°
18°
12°
16°
13°
13°
28°
12°
23°
24°
16°
14°
17°
13°
15°
2°
7
m/s
3°
18
m/s
1°
9
m/s
2°
7
m/s
1°
6
m/s
2°
8
m/s
-6°
8
m/s
1°
6°
-1°
0°
0°
2°
-2°
-1°
-3°
1°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
MIÐVIKUDAGUR
Á MORGUN
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu fékk tilkynn-
ingu aðfaranótt sunnudags um
líkamsárás á Laugavegi. Tæp-
lega tvítugur piltur gaf sig fram
við lögregluþjóna og sagðist hafa
fallið í götuna og næstum orðið
fyrir bifreið þegar dyravörður
ýtti honum. Hann kvartaði yfir
eymslum í öxl.
Þá var tæplega þrítugur maður
handtekinn á skemmtistað í
Austur stræti, eftir að hann sló
annan mann í andlitið. Lögreglan
segir þann sem varð fyrir árás-
inni hafa fallið í gólfið og hrufl-
ast nokkuð í andliti. Sá fór sjálfur
á slysadeild, en árásarmaðurinn
verður yfirheyrður þegar hann
verður í ástandi til þess. - skó
Sagði dyravörð hafa ýtt sér:
Líkamsárásir
í miðbænum
ÁRÁSIR Tilkynnt var um tvær líkams-
árásir aðfaranótt sunnudags.
KÍNA Kínverskur embættismaður,
Wei Pengyuan, geymdi jafnvirði
fjögurra milljarða króna í reiðufé
á heimili sínu. Þetta uppgötvaðist
í maí síðastliðnum, en kínversk
stjórnvöld hafa nú staðfest þetta.
Wei var aðstoðaryfirmaður kola-
máladeildar kínversku orkustofn-
unarinnar. Rannsókn á fjármálum
hófst í vor þegar grunur vakn-
aði um að hann hefði þegið mútur
í stórum stíl. Sextán talningar-
vélar voru notaðar til að telja féð,
og biluðu fjórar þeirra. Kínversk
stjórnvöld eru í mikilli herferð
gegn spillingu og hafa meira en
13 þúsund embættismenn verið
sakfelldir fyrir spillingu og mútu-
þægni á fyrstu níu mánuðum þessa
árs. - gb
Embættismaður gripinn:
Var með fjóra
milljarða heima
HEILBRIGÐISMÁL Kiwanisklúbbur-
inn Drangey ætlar að safna fyrir
kaupum á speglunartæki fyrir
Heilbrigðisstofnun Norðurlands á
Sauðárkróki.
„Klúbburinn hefur ákveðið að
fara í fjársöfnun á meðal fyrir-
tækja og stofnana í Skagafirði
til að kaupa framangreint tæki,
sem meðal annars myndi nýtast
í átaksverkefni varðandi skimun
fyrir ristilkrabbameini,“ segir í
erindi til byggðaráðs Skagafjarð-
ar þar sem óskað er eftir styrk til
að kaupa tækið sem kostar um 18
milljónir króna. - gar
Kiwanismenn í Skagafirði:
Safna fyrir
speglunartæki
ÍRAK, AP Vígasveitir Íslamska rík-
isins stilltu að minnsta kosti 50
manns upp úti á götu í gær í þorp-
inu Ras al Maa og skutu svo allan
hópinn til bana. Svipað athæfi hafa
þeir sýnt undanfarna daga víðar í
Írak, og hafa nú að minnsta kosti
150 manns verið tekin af lífi á
götum úti. Flestir hinna myrtu til-
heyrðu sama þjóðflokki súnní-mús-
lima, Al Bu Nimr, og virðist sem
vígasveitirnar telji sér stafa sér-
stök ógn af þessum hópi. Á föstu-
daginn myrtu vígasveitirnar 50
manns af sama þjóðflokki, en dag-
inn áður voru 48 manns myrtir. - gb
Vígasveitir íslamista í Írak:
Taka tugi af lífi
á hverjum degi
VÍGASVEITIR Liðsmenn Íslamska ríkis-
ins aka um götur. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
kynntu þér
málið!w w w . s i d m e n n t . i s
Mannvirðing
Siðmennt styður opið, víðsýnt
og fjölbreytt samfélag
ÚKRAÍNA, AP Vopnaðir menn í
herklæðum fylgdust grannt með
íbúum í austanverðri Úkraínu,
sem komu til þess að greiða
atkvæði í gær.
Aðski lnaðarsinnar efndu
til kosninganna viku eftir að
almennar þingkosningar voru
haldnar í Úkraínu. Um það bil
helmingur landsvæðis tveggja
héraða er á valdi uppreisnar-
manna, sem vilja aðskilnað hér-
aðanna frá Úkraínu og helst sam-
einingu við Rússland.
Hvorki Úkraínustjórn né Vestur-
lönd almennt hyggjast taka mark
á niðurstöðum kosninganna í gær.
Óvíst er um kosningaþátttöku,
en um 350 kjörstaðir voru opnir
í gær. Um það bil 1,4 milljónir
manna eru sagðar hafa kosninga-
rétt.
Þrátt fyrir að leiðtogar upp-
reisnarmanna hafi í september
fallist á vopnahlé, þá geisa enn
átök á svæðinu. Nánast daglega
kemur til skotbardaga eða ann-
arra átaka. - gb
Aðskilnaðarsinnar í austanverðri Úkraínu efndu til umdeildra kosninga:
Byssumenn fylgdust með öllu
FJÖLMIÐLAR Hjálmar Gíslason
leiðir hóp fjárfesta með mikla
reynslu af frumkvöðlastarfsemi
og uppbyggingu nýrra fyrirtækja
sem koma nú inn í eigendahóp
fjölmiðilsins Kjarnans. Hjálmar
verður auk þess formaður nýrrar
stjórnar Kjarnans.
Þetta kemur fram í tilkynn-
ingu frá Kjarnanum. Stofnendur
og starfsmenn munu áfram eiga
rúman meirihluta í félaginu eða
67 prósent.
Ritstjóri Kjarnans er Þórður
Snær Júlíusson. - vh
Kjarninn fær nýja fjárfesta:
Hjálmar í stjórn
662 íbúar búa á Patreks-firði en íbúarnir voru
627 árið 2011.
Það er fjölgun um tæplega sex
prósent.
Heimild: Hagstofa Íslands
MENNTUN Fækkun nemenda
við menntaskólana gæti leitt til
þess að skólarnir þurfi að fækka
stöðugildum um meira en hundr-
að. Þetta segir Yngvi Pétursson,
rektor Menntaskólans í Reykja-
vík (MR), en hann segir útlit
fyrir að nýnemum við skólann
fækki um 75 næsta ár. Í síðustu
viku greindi Fréttablaðið frá því
að útlit væri fyrir fækkun um 20
kennara. Yngvi telur að fjöldinn
sé mun meiri.
„Það er talað um að fækka
þeim nemendum sem ríkið ætlar
að borga með á ári um 1.608, frá
fjárlögum 2014, sem þýðir að
niður skurðurinn gæti haft áhrif
á yfir 100 stöðugildi í framhalds-
skólunum,“ segir Yngvi.
Hann bendir á að í fjárlaga-
frumvarpi ríkisstjórnarinnar er
gert ráð fyrir að ársnemendum
framhaldsskólanna fækki um
916. Hins vegar fækki þeim sam-
tals um 1.608 frá fjárlagafrum-
varpinu fyrir árið 2014.
„Við getum ekki brugðist við
þessum breytingum fyrr en á
miðju næsta ári. Umræðan hefur
nánast einungis snúist um skóla
sem þurfa að vísa frá nemend-
um sem eru 25 ára og eldri. Hins
vegar er nemendum að fækka í
öllum skólum.“
MR tekur inn um 250 nýnema
á hverju ári. Yngvi segir stefna í
að skólinn geti einungis tekið inn
um 175 nýnema þegar skólaárið
2015/2016 hefst, ef frumvarpið
verður að lögum. Skólinn þyrfti
þá að leggja niður fjögur stöðu-
gildi.
„Hins vegar vitum við ekki
hvernig staðan verður í vor og ég
vona að frumvarpið taki breyt-
ingum á Alþingi.“
Guðríður Arnardóttir, for-
maður Félags framhaldsskóla-
kennara, segir félagsmenn hafa
miklar áhyggjur af stöðu mála og
framtíð skólanna.
„Það segir sig sjálft að þegar
það er svona mikill niðurskurð-
ur í fjármagni til skólanna, og
þegar þú fækkar nemendum
þetta mikið eins og raunin virðist
ætla að verða, að það muni hafa
í för með sér fækkun í stéttinni,“
segir Guðríður.
„Það hefur verið nokkuð
óljóst hvernig standa á að þess-
um breytingum og ekki einung-
is vegna þessara áforma um að
fækka nemendaígildunum heldur
líka vegna styttingaráformanna.
Um leið og þú fækkar áföngum
til stúdentsprófs þá þarftu færri
kennara. En ég held enn í von-
ina um að stjórnvöld veiti áfram
svigrúm fyrir þessa fjölbreytni
og sveigjanleika sem við höfum
verið svo stolt af í framhaldsskól-
unum.“ haraldur@frettabladid.is
Rektor MR óttast að
yfir 100 störf tapist
Framhaldsskólarnir gætu samtals þurft að fækka stöðugildum um meira en
hundrað ef fjárlagafrumvarpið verður samþykkt. Rektor MR segir útlit fyrir að
nýnemum við skólann fækki um 75. Kennarar hafa miklar áhyggjur af stöðu mála.
KOSNINGAR Uppreisnarmenn greiða
atkvæði, gráir fyrir járnum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
KENNARAR Félagsmenn í Félagi framhaldsskólakennara eru um 1.750 talsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
YNGVI
PÉTURSSON
GUÐRÍÐUR
ARNARDÓTTIR