Fréttablaðið - 03.11.2014, Side 8
3. nóvember 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 8
VIÐSKIPTI Forsvarsmenn tveggja
af þremur stærstu lífeyrissjóðun-
um hafa ekki velt fyrir sér kaup-
um á þeim eignasöfnum sem Íbúða-
lánasjóður hefur boðið til sölu.
Formlegt söluferli var hafið þann
17. október, en áður hafði Íbúða-
lánasjóður boðað til fundar þar sem
eignirnar voru kynntar. Frestur til
að skila inn óskuldbindandi tilboði
rennur út 6. nóvember.
Eignirnar eru samtals um 400
talsins og eru staðsettar víða á
landinu. Flestar eignirnar eru í
Reykjanesbæ, eða um 151 talsins.
Næstflestar eru í
Fjarðabyggð eða
71 og svo á Fljóts-
dalshéraði.
„Ekki ennþá,“
segir Þórhallur
Jósepsson, upp-
lýsingafulltrúi
Lífeyrissjóðs
verslunarmanna,
aðspurður hvort
sjóðurinn hafi skoðað kaup á þess-
um eigum. Ekkert liggi þó fyrir
um það hvað sjóðurinn muni gera á
næstunni. Samkvæmt upplýsingum
Fréttablaðsins hefur lífeyrissjóður-
inn Gildi ekki heldur sýnt eignunum
áhuga enn sem komið er. Ekki náðist
í Hauk Hafsteinsson, framkvæmda-
stjóra Lífeyrissjóðs starfsmanna
ríkisins, við vinnslu fréttarinnar.
Sigurður Erlingsson, forstjóri
Íbúðalánasjóðs, segir þó að við-
brögð við þessum auglýstu eign-
um hafi farið langt fram úr vonum
Íbúðalánasjóðs. Hann bendir á að
margir hafi sótt kynningarfund-
inn og margir sótt gögn sem Íbúða-
lánasjóður útbjó um eignirnar.
Hann bendir jafnframt á að sölu-
ferlið muni standa yfir allt fram í
janúar.
„Það er allavega töluverður
áhugi,“ segir Sigurður. Þetta séu
aðallega eignasterkari aðilar, sjóð-
ir og aðilar tengdir sjóðum en líka
félög sem reki leigufélög. „Þetta
er breiður hópur samt sem áður,“
segir hann. Sigurður segist ekki
hafa kannað hvaða eignir fái mestu
athyglina. „Þó maður hallist að því
að þetta sé svona meira Reykjavík
og önnur nærliggjandi sveitarfélög,“
segir Sigurður.
Umræddar eignir eru boðnar til
sölu í sjö eignasöfnum. Í lýsingu á
eignunum segir að við val í hvert
eignasafn hafi verið horft til þess að
eignirnar henti til útleigu og valdar
hafi verið íbúðir í kjörnum sem voru
í útleigu.
Það sé forsenda sölunnar að íbúð-
irnar verði seldar aðilum sem munu
eiga þær áfram til útleigu. Þannig
verður sérstaklega litið til þess við
val á kaupendum, hverjar fyrirætl-
anir þeirra séu.
jonhakon@frettabladid.is
Skynjar mikinn
áhuga á eignum ÍLS
Íbúðalánasjóður setti á dögunum 400 íbúðir í sölu, sem ætlaðar eru til útleigu.
Tveir af þremur stærstu lífeyrissjóðunum hafa ekki sýnt eignunum áhuga.
Framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs segir þó marga hafa sýnt eignunum áhuga.
ESKIVELLIR Hluti af þeim eignum sem Íbúðalánasjóður er með til sölu er við Eski-
velli í Hafnarfirði. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
SIGURÐUR
ERLINGSSON Sveitarfélag Fjöldi íbúða Hlutfall af heild
Reykjavík 19 4,80%
Hafnarfjörður 34 8,50%
Akureyri 11 2,80%
Reykjanesbær 151 37,80%
Selfoss 7 1,80%
Akranes 30 7,50%
Fjarðabyggð 71 17,80%
Borgarbyggð 8 2%
Fljótsdalshérað 43 10,80%
Norðurþing 3 0,80%
Grindavík 2 0,50%
Hveragerði 6 1,50%
Þorlákshöfn 7 1,80%
Vogar 8 2%
Eignir í sölu
EFNAHAGSMÁL Vilhjálmur Egils-
son, hagfræðingur og rektor
Háskólans á Bifröst, segir að staða
lífeyrissjóðanna og margra ann-
arra væri mun betri í dag hefðu
gjaldeyrishöftin ekki verið sett á
og að þau hafi verið mikil mistök.
Verði þeim aflétt í dag muni fátt
breytast. Verði höftin þó á mikið
lengur verði kostnaðurinn jafn
mikill á endanum og vegna efna-
hagshrunsins. Þetta kom fram í
viðtali við Vilhjálm í Sprengisandi
á Bylgjunni í gær.
Vilhjálmur sagði að án haftanna
væri hér mun meiri hagvöxtur
en raunin er og sprotafyrirtækin
færu ekki úr landi. Nefndi hann til
að mynda kostnaðinn við að halda
kerfi gjaldeyrishaftanna við. Hann
segir að stjórnvöld hefðu átt að
leyfa krónunni að falla nægilega
mikið svo það kæmi að ákveðnum
náttúrulegum botni. Þá segir hann
að mögulegt hefði verið að kaupa
upp eignir eins og ríkisskuldabréf
fyrir tiltölulega litla peninga. Hann
nefndi einnig kostnaðinn við að
halda kerfi gjaldeyrishafta við og
sagði kostnaðinn vera orðinn þann
sama og kostnaðinn við hrunið. „Ef
það yrði sagt á morgun að höftin
væru farin, ég er viss um að það
myndi mjög lítið gerast.“ - skó
Vilhjálmur telur að afnám gjaldeyrishafta myndi ekki hafa mikil áhrif:
Segir gjaldeyrishöftin mistök
VILHJÁLMUR EGILSSON Telur að staða
lífeyrissjóða væri betri ef gjaldeyrishöft
hefðu ekki verið sett á.
EFNAHAGSMÁL Bæði Hagdeild Lands-
bankans og Greiningadeild Arion
banka telja víst að peningastefnu-
nefnd kjósi að halda vöxtum sínum
óbreyttum. Næsta stýrivaxtahækk-
un verður á miðvikudaginn.
Greiningadeild Arion bendir á að
verðbólga sé lág um þessar mund-
ir og vel undir verðbólguspá Seðla-
bankans í síðustu Peningamálum,
gengið sé stöðugt og einnig vísbend-
ingar um að hægja kunni á einka-
neyslu á seinni helmingi ársins.
„Aftur á móti eru kjarasamning-
ar lausir á næstunni og háar launa-
kröfur í kortunum, auk þess sem
líkur á launaskriði á almennum
vinnumarkaði fara vaxandi. Það
eru því hverfandi líkur á því að pen-
ingastefnunefnd komi á óvart með
lækkun stýrivaxta í ljósi óvissunn-
ar á vinnumarkaði. Við gerum ráð
fyrir að Seðlabankinn muni hækka
stýrivexti á seinni hluta næsta árs
en það veltur að miklu leyti á niður-
stöðum kjarasamninga framundan,“
segir Greiningadeildin.
- jhh
Greiningadeild Arion segir að óvissan á vinnumarkaði hindri vaxtalækkun:
Búast við óbreyttum vöxtum
SEÐLABANKASTJÓRAR Már Guð-
mundsson og Arnór Sighvatsson gera
grein fyrir peningastefnunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Ég nota
SagaPro
Hjálmar Sveinsson, verkefnastjóri
„Nú vakna ég úthvíldur“
www.sagamedica.is
Sama góða varan í nýjum umbúðum
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
6
49
16