Fréttablaðið - 03.11.2014, Side 10
3. nóvember 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 10
LOFTSLAGSMÁL Mannkynið þarf að
draga hratt úr notkun jarðefna-
eldsneytis og hætta henni með
öllu fyrir næstu aldamót, eigi að
takast að snúa við þeirri hlýnun
andrúmsloftsins sem nú stefnir í
óefni.
Um þetta eru þúsundir vísinda-
manna, sem standa að nýjustu
skýrslu milliríkjanefndar Sam-
einuðu þjóðanna um loftslagsmál,
sammála. Þess í stað þurfa að
koma endurnýjanlegir orkugjafar.
„Vísindin hafa talað,“ sagði
Ban Ki-moon, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna,
þegar skýrslan var kynnt á blaða-
mannafundi í Kaupmannahöfn í
gær. „Það er ekkert óljóst í boð-
skap þeirra. Leiðtogarnir verða
að hefjast handa. Tíminn er ekki
með okkur.“
Hann segir það goðsögn eina,
að aðgerðir gegn hlýnun muni
verða mannkyninu dýrkeypt-
ar. „Aðgerðar leysi myndi kosta
meira,“ sagði hann.
Þúsundir vísindamanna um
heim allan hafa unnið árum
saman að gerð skýrslunnar.
Endan legar niðurstöður hafa auk
þess verið unnar í samvinnu við
stjórnvöld allra aðildarríkja Sam-
einuðu þjóðanna. Harðar samn-
ingaviðræður hafa staðið yfir
undanfarna viku um endanlegt
orðalag.
Fátt er þó nýtt að finna í skýrsl-
unni, enda er hún samantekt
þriggja fyrri skýrslna loftlags-
nefndarinnar sem birtar voru
síðastliðinn vetur. Þrátt fyrir
þá dökku mynd, sem dregin er
upp af hlýnun jarðar, gætir tölu-
verðrar bjartsýni í skýrslunni á
möguleika mannsins til að snúa
við þróuninni.
„Allt sem við þurfum er viljinn
til að breyta, og við treystum því
að þekking og skilningur á vís-
indum loftslagsbreytinga örvi
þann vilja,“ sagði Rajendra Pach-
auri, formaður nefndarinnar.
Til þess þarf hins vegar víð-
tækar aðgerðir og markvissa
samvinnu, sem alls óvíst er hvort
verði að veruleika í raun.
gudsteinn@frettabladid.is
Aðgerðarleysi yrði dýrkeyptara
Mannkynið verður að hætta að nota jarðefnaeldsneyti fyrir næstu aldamót, segir loftslagsnefnd Sameinuðu þjóðanna í nýjustu skýrslu
sinni um hlýnun jarðar. Þúsundir vísindamanna hafa unnið að skýrslunni og eru þeir á einu máli um nauðsyn þess að grípa til aðgerða.
ÚTBLÁSTUR Gróðurhúsalofttegundir streyma út í andrúmsloftið í meira mæli en
nokkru sinni fyrr, þrátt fyrir áratuga langar umræður um að draga þurfi úr útblæstr-
inum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SKÝRSLAN KYNNT Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, ásamt
Rajendra K. Pachauri, formanni milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslags-
mál. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál var stofnuð árið
1988. Hún hefur nú fimm sinnum sent frá sér stórar áfangaskýrslur um
loftslagsbreytingar af mannavöldum, þar sem dregnar eru saman nýjustu
niðurstöður allra helstu vísindarannsókna um efnið.
Hver skýrsla hefur yfirleitt verið í fjórum hlutum, þannig að fyrsti
hlutinn fjallar um loftslagsbreytingarnar sjálfar, annar hlutinn um áhrif
þeirra á mannlífið, en sá þriðji um leiðir til þess að vinna gegn þeim.
Fjórði hlutinn er svo samantekt á hinum þremur, og það er þessi fjórði
hluti fimmtu áfangaskýrslunnar sem kynntur var í Kaupmannahöfn í
gær. Alls liggja 30 þúsund loftslagsrannsóknir vísindamanna um heim
allan að baki þessari nýjustu skýrslu nefndarinnar. Allt ber þar að sama
brunni því 95 prósent þessara rannsókna sýna fram á að megnið af
þeirri hlýnun jarðar, sem orðið hefur síðan um miðja síðustu öld, er af
manna völdum.
Skýrslur loftslagsnefndarinnar
Áhrif manna á loftslagskerfið eru skýr, og
nýlegur útblástur gróðurhúsalofttegunda af
mannavöldum er sá mesti í sögunni. Lofts-
lagsbreytingar undanfarið hafa haft víðtæk
áhrif á mannlíf og náttúru.
Á undanförnum þremur áratugum hafa
hlýindi á yfirborði jarðar verið meiri en á
öðrum áratugum frá árinu 1850. Tímabilið
frá 1983 til 2012 var mjög líklega hlýjasta
30 ára tímabil síðustu 800 ára á norður-
hveli jarðar, þar sem slíkt mat er mögulegt
(mikið öryggi) og líklega hlýjasta 30 ára
tímabil síðustu 1.400 ára (með meðal-
öryggi).
➜ Úr niðurstöðum
nefndarinnar
grunnt á
því góða?
Dekkin eru einn mikilvægasti öryggisþáttur bílanna okkar, sér í lagi í
vetrarakstri. Frá 1. nóvember gerir löggjafinn auknar kröfur um
mynstursdýpt þeirra. Eftir það þurfa hjólbarðar bifreiða að hafa að
lágmarki 3,0 mm mynstursdýpt yfir vetrartímann.
Markmið breytinganna er að auka öryggi þitt og þinna í umferðinni.
Þetta snýst nefnilega um svo miklu meira en bílinn.
Opið kl. 8 – 17 virka dagawww.adal.is
Til að einfalda þér að ganga úr skugga um að dekkin þín uppfylli
þessar nýju kröfur bjóðum við þér að nálgast þar til gerða lyklakippu
á næstu skoðunarstöð okkar án endurgjalds á meðan birgðir endast.
Við tökum vel á móti þér.
BANDARÍKIN, AP Foreldrar tólf ára
drengs, sem heitir Menachem
Zivotofsky, hafa allt frá fæðingu
hans barist fyrir því að banda-
rísk stjórnvöld skrái hann fædd-
an í Ísrael.
Strákurinn er fæddur í Jerú-
salem, en Bandaríkjastjórn hefur
til þessa fylgt þeirri afstöðu, og
styðst þar við alþjóðalög, að Jerú-
salemborg tilheyri ekki ísraelska
ríkinu, hvað þá að hún sé höfuð-
borg þess.
Foreldrar piltsins, sem sjálf eru
fædd í Bandaríkjunum, vísa hins
vegar til þess að árið 2002 sam-
þykkti Bandaríkjaþing að taka
ætti undir þá afstöðu ísraelskra
stjórnvalda, að Jerúsalem væri
höfuðborg ríkisins.
George W. Bush, þáverandi for-
seti Bandaríkjanna, staðfesti á
sínum tíma lög þess efnis en tók
við það tækifæri jafnframt fram
að stefnu Bandaríkjanna gagnvart
stöðu Jerúsalemborgar yrði ekki
breytt.
Barack Obama hefur fylgt sömu
stefnu og ekki viljað líta svo á að
Jerúsalem sé höfuðborg Ísraels.
Mál drengsins hefur verið að
flækjast fyrir bandarískum dóm-
stólum í nærri tólf ár, og er nú í
annað sinn að koma fyrir hæsta-
rétt. Í fyrra sinnið vísaði dóm-
stóllinn málinu frá með þeim
rökum að dómstólar ættu ekki að
taka afstöðu í þessari deilu milli
þingsins og forsetans.
- gb
Hæstiréttur Bandaríkjanna ræðir stöðu Jerúsalem:
Tólf ára ágreiningur
þingsins og forsetans
MENACHEM OG ARI ZIVOTOFSKY Pilturinn ásamt föður sínum fyrir utan hæsta-
rétt Bandaríkjanna árið 2011. FRÉTTABLAÐIÐ/AP