Fréttablaðið - 08.11.2014, Síða 90
KYNNING − AUGLÝSINGRúm & sængurföt LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 20148
Svefnherbergisdeild IKEA býður upp á eitt mesta úrval landsins af dýnum og
rúmum á verði sem hæfir fjárhag
flestra. Verslun IKEA í Garðabæ
býður upp á stóran og bjartan sýn-
ingarsal þar sem viðskiptavinir
geta gefið sér góðan tíma og skoð-
að úrvalið undir leiðsögn reyndra
starfsmanna.
Að sögn Ingibjargar Sigurðar-
dóttur, svæðisstjóra svefnher-
bergisdeildar IKEA, hefur fyrir-
tækið alltaf lagt mikinn metnað
í vandaðar dýnur enda eyðir fólk
nær þriðjungi ævinnar í rúminu.
„Við bjóðum upp á mikið úrval af
dýnum í ólíkum stærðum, gerðum
og gæðum. Allt frá góðum dýnum
á lágu verði upp í dýrari hágæða-
dýnur. Það hefur alltaf verið stefna
okkar að bjóða breitt vöruúrval
sem hæfir sem flestum.“
Hægt að skila
Góð dýna skiptir gríðarlega miklu
máli að sögn Ingibjargar og því er
afar mikilvægt að viðskiptavin-
ir gefi sér góðan tíma og velji rétt.
„Auðvitað getur verið vandasamt
að velja réttu dýnuna, sérstaklega
þegar verslunin er full af fólki. Því
segjum við „elskaðu hana eða skil-
aðu henni“. Við bjóðum viðskipta-
vinum sem kaupa dýnu hjá okkur
að skila henni innan 90 daga ef
hún hentar þeim ekki og velja þá
aðra í staðinn sem hentar betur.“
IKEA býður upp á þrjár gerðir af
dýnum; gormadýnur, svampdýn-
ur og boxdýnur. „Dýnurnar fást
í mismunandi þykktum og fólk
getur valið eftir stífleika, þykkt og
efni. Svo býður IKEA einnig upp á
barnadýnur í barnadeild verslun-
arinnar,“ segir Ingibjörg og bætir
við að það sé 25 ára verksmiðjuá-
byrgð á flestum dýnum IKEA en
þó sé afar persónubundið hve-
nær best sé að skipta dýnunni út.
Í svefnherbergisdeildinni megi
svo einnig finna gott úrval af yf-
irdýnum og dýnuhlífum í ýmsum
stærðum og gerðum.
Hægt að hafa allt í stíl
IKEA býður að sjálfsögðu einn-
ig upp á úrval rúmgrinda að sögn
Ingibjargar. „Við bjóðum upp á
einbreið og tvíbreið rúm og rúm-
sófa, auk koja og hárra rúma sem
henta vel í barnaherbergin. Svo
fást líka fataskápar, kommóður,
náttborð og speglar í stíl þannig
að ef viðskiptavinir okkar vilja fá
stílhreinan heildarsvip á svefn-
herbergið er það lítið mál. Rúm-
grindurnar fást í ýmsum litum og
gerðum og úr mismunandi efni.
Flestar rúmgrindurnar eru með
áföstum rúmgöflum en við selj-
um þó staka rúmgafla líka,“ segir
Ingibjörg að lokum.
Allar nánari upplýsingar um
dýnur og rúm frá IKEA má finna
á heimasíðu verslunarinnar,
www.IKEA.is.
Vær nætursvefn í góðu rúmi
Verslunin IKEA býður upp á breitt úrval af dýnum í nokkrum gerðum. Þær fást í mismunandi þykktum, stífleika og ólíkum
verðflokkum. Einnig má finna úrval af rúmgrindum auk annarra svefnherbergishúsgagna sem skapa stílhreinan heildarsvip.
Ef dýnan hentar ekki geta viðskiptavinir skilað henni innan 90
daga og fengið aðra í staðinn.
Það er einfalt að skapa stílhreint og notalegt svefnherbergi með
því að huga að aukahlutum.
Það er afar persónubundið hvernig dýnu fólk sefur best á og því
gott að vanda valið.
Allir geta fundið rúmgrind í IKEA en úrvalið er breitt og glæsilegt.
IKEA býður upp á eitt mesta úrval landsins af dýnum og rúmum á verði sem hæfir fjárhag flestra. Ingibjörg Sigurðardóttir er hér lengst til hægri ásamt tveimur starfsmönnum svefnherbergisdeildarinnar. MYNDIR/GVA