Fréttablaðið - 08.11.2014, Page 132

Fréttablaðið - 08.11.2014, Page 132
8. nóvember 2014 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 88 ÓSÁTT MEÐ SNORRA Þórunn Egilsdóttir, þingkona Fram- sóknarflokksins, mætti á opnun á sýningu Snorra Ásmundssonar myndlistarmanns í Betra veður galleríi í gær. Að sögn Snorra kom til snarpra orðaskipta á milli þeirra beggja vegna ummæla hans í Fréttablaðinu í vikunni um að það væri „satanísk orka“ í kringum Framsókn. „Ég stend við hvert orð sem ég sagði þar og hún hótaði mér undir rós og sagði að hún vonaði að þetta myndi ekki bitna á mér í framtíð- inni,“ segir Snorri. - þij Fatahönnuðurinn Magnea Einars- dóttir mun hanna línu í nafni fata- merkisins Magnea fyrir bandaríska fatamerkið Club Monaco, undir- merki Ralph Lauren. Yfirhönnuð- ur prjónadeildar merkisins kom til landsins fyrr á árinu í vinnuferð og setti sig í samband við Magneu áður en hún kom. „Hún fann okkur á netinu og setti sig í samband við mig. Hún hafði heillast af okkar stíl og áherslum merkisins, bæði notkun okkar á íslensku ullinni og prjóni almennt og úr varð að okkur var boðið að hanna hliðarlínu fyrir Club Monaco undir okkar merki. Við vorum beðin að hanna línu og svo yrðu nokkrar flík- ur valdar úr til framleiðslu,“ segir Magnea en línan mun heita Magn- ea X Club Monaco og verður seld í verslunum þeirra um allan heim. Í kjölfarið fór hún út og kynnti línuna í höfuðstöðvum fyrirtækis- ins. Þeim leist svo vel á að úr varð að allir stílar voru valdir. Magnea mun fara aftur út í desember til að skoða fyrstu frumgerðir og fylgjast með mátun. „Það mun svo vera áframhald- andi samstarf milli fyrirtækjanna þar til línan kemur út. Þetta er búið að vera mjög lærdómslíkt ferli. Club Monaco er stórt fyrirtæki og það má segja að ég hafi tekið sprett í gegn- um það á meðan ég var þar. Fyrir mig er líka mjög áhugavert að fá að kynnast Bandaríkjamarkaði þar sem ég lærði í London og bý og rek fyrirtæki á Íslandi,“ segir hún. „Það er virðingarvert að svona stórt fyrirtæki velji að vinna í sam- starfi við okkur þar sem þau hefðu auðveldlega getað valið að stela einfaldlega okkar hönnun eins og tíðkast því miður í hönnunarbrans- anum. Einnig er þetta frábært tækifæri fyrir okkar fyrirtæki og gaman að finna fyrir því að Magn- ea sé að vekja athygli út fyrir land- steinana.“ adda@frettabladid.is Hannar nýja línu fyrir Club Monaco Fatahönnuðurinn Magnea Einarsdóttir hannar línu undir Club Monaco, dóttur- merki Ralph Lauren, ásamt því að taka þátt í að hanna prjónalínu merkisins. FRÁBÆRT TÆKIFÆRI Magnea segir það ótrúlega gaman að fá svona tækifæri og vonar að það opni fleiri möguleika fyrir hana í framtíðinni. „Valið stóð á milli Smáralindar og Holtagarða, og sú fyrri hafði vinninginn,“ segir Elvar Gunnarsson leik- stjóri. Hann tók upp tónlistarmyndband í Smáralind fyrir skemmstu fyrir bandaríska tónlistarmanninn Aaron Smith við lagið Dancin, en hlustað hefur verið á lagið þrjátíu milljón sinnum á YouTube. „Ég fékk þetta verkefni í gegnum fyrirtækið Ultra Music. Mig langaði að komast upp með að gera mynd- bandið á Íslandi, svona kostnaðarlega, en dansararnir í því eru líka íslenskir, “ segir Elvar. Myndbandið var tekið upp á tveimur nóttum að mestu í verslun Hagkaups. „Það var smá vesen samt, þar sem það eru erlend vörumerki um alla Smáralind og þau máttu ekki sjást. Í myndbandinu sést orðið „brjóstahaldarar“ á veggnum og það voru ein hverjir lögfræðingar í New York sem héldu að „merkið“ „brjóstahaldarar“ myndi fara í mál við okkur,“ segir Elvar og bætir við um upptökurnar: „Það er fárán- lega gaman að vera í Hagkaupi að nóttu til, mér leið eins og litlum krakka,“ segir hann en tökurnar gengu stórslysalaust fyrir sig. „Það var reyndar erfiðara að dansa með túbusjónvarp á höfðinu en ég gerði ráð fyrir, en við björguðum því.“ - asi Tók upp myndband í Smáralind Elvar Gunnarsson gerði tónlistarmyndband fyrir hinn bandaríska Aaron Smith. ALLT Í GANGI Elvar segir að það hafi verið skemmtilegt að vera í tómri Hagkaupsverslun um miðja nótt. MYND/EYJÓLFUR JÓNSSON Í uppsetningu Leikhússins 10 fingur sem sló í gegn með leikritið Skrímslið litla systir mín Leikarar Sólveig Guðmundsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson Listrænir stjórnendur Charlotte Bøving og Helga Arnalds Lau. 8. nóv kl . 14.00 Sun. 9. nóv kl . 13.00 Lau. 15. nóv kl . 14.00 Sun. 23. nóv kl . 13.00 "Lífið er yndisleg sýning". -S.B.H. Morgunblaðið. "Frumleg, skemmtileg og myndræn sýning fyrir fólk á öllum aldri.“ -S.J. Fréttablaðið. “Það er allt fallegt við þessa sýningu”. G.S.E. Djöflaeyjan. Allar stjörnurnar í húsinu! MYND/ÞÓRDÍS REYNIS FÉKK GÆSAHÚÐ Leikarinn Hilmar Guðjónsson hefur nýlokið við að lesa nýjasta verk Arn- alds Indriðasonar, Kamp Knox, á hljóðbók. Hilmar fetar þar í fótspor leikarans Ingvars E. Sigurðssonar sem hefur hingað til séð um að færa verk Arnalds á hljóðbækur. Hilmar segist hafa fengið gæsahúð við upptökurnar. „Ég datt alveg inn í dramað,“ segir Hilmar. - fbj LEIKUR MEÐ STJÖRNUM Búið er að afhjúpa hverjir leika á móti Jóhannesi Hauki Jóhannessyni í þáttaröðinni A.D. sem bandaríska sjónvarpsstöðin NBC frumsýnir á páskadag á næsta ári. Leikararnir eru flestir kunnir úr ýmsum sjónvarps- þáttum, þar á meðal Richard Coyle (Crossbo- nes), Vincent Regan (The Musketeers), Adam Levy (Borgia), Juan Pablo di Pace (Dall- as), Emmet Scanlan (Constantine), Joanne Whalley (The Borgias) og Greta Scacchi (Agatha Christie). - fb Mitt sérsvið eru sjávar- réttir, en ég geri líka sjúklegt mac’n’cheese, það besta sem þú munt smakka. SÖNGKONAN RIHANNA UM HÆFILEIKA SÍNA SEM KOKKUR Í VIÐTALI VIÐ TÍMARITIÐ ELLE Club Monaco er stórt fyrirtæki og það má segja að ég hafi tekið sprett í gegnum það á meðan ég var þar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.