Fréttablaðið - 08.11.2014, Síða 52

Fréttablaðið - 08.11.2014, Síða 52
FÓLK|HEILSA SÖLUSTAÐIR MAGNOLIA nýtur mikilla vinsælda og hefur hjálpað fjöl- mörgum á Íslandi. Fæst í öllum betri apótekum, Heilsu- húsinu, Heilsu- veri, Heilsuhorninu Blómavali, Lifandi markaði, Hagkaupi, Fjarðarkaupum, Heimkaupum og heilsulausn.is Börkur af plöntunni MAGNOLIA OFFICINALIS vex í fjallahéruðum Kína og hefur verið notaður við svefnvandamálum, kvíða og þunglyndi í yfir 2.000 ár í Asíu. Rekja má ótrúleg- an lækningamátt hans til náttúrulegu efnanna honokiol og magnolol. Börkur- inn virkjar taugaboðefni í heilanum sem hafa slakandi og róandi áhrif og stuðla að heilbrigðum og samfelldum svefni. Börkurinn vinnur einnig gríðarlega vel gegn stressi, kvíða og þunglyndi með því að koma jafnvægi á hormónið cortisol sem er stundum kallað stresshormónið. Nýleg rannsókn frá Embætti landlæknis sýnir að um þriðjungur Íslendinga á við svefnvandamál eða þunglyndi að stríða. ÁTT ÞÚ VIÐ SVEFN- VANDA AÐ STRÍÐA? BALSAM KYNNIR MAGNOLIA frá Natural Health Labs. Fyrir þá sem vilja aðstoð við svefnvandamálum og stuðla að heilbrigðum svefni ásamt því að vinna gegn þunglyndi, kvíða og depurð og bæta andlega og líkamlega líðan. VISSIR ÞÚ Vissir þú að magnolia- börkur hefur verið notaður við svefn- vandamálum og gegn stressi og kvíða í yfir 2.000 ár í Asíu? RÁÐLÖGÐ NOTKUN Taktu eitt til tvö hylki með vatnsglasi með kvöldmat eða um 30-60 mínútum fyrir svefn. Dag- skammtur er 1–2 grænmetishylki. Mörgum getur fundist erfitt að finna sér eitt-hvað til dundurs sem ekki tæmir pyngjuna eða gengur að minnsta kosti nærri henni. Ýmis- legt er þó í boði sem ekki þarf að greiða fyrir og hér koma nokkur dæmi um viðburði um helgina sem ekki er rukkað fyrir. FJÖLSKYLDULEIÐANGUR UM VARA-LITI Hafnarborg í Hafnarfirði býður upp á fjölskylduleið- angur á sunnudag klukkan tvö um sýninguna Vara-liti sem nú stendur yfir. Foreldrar og börn eru leidd um sýninguna og undraheimar málverksins eru kannaðir. Þetta er sérstaklega litrík og myndræn sýning sem hleypir ímyndunaraflinu af stað, veitir innblástur og gefur rými til persónulegrar túlkunar. Sýningin á erindi við fólk á öllum aldri, ekki síst við börn og unglinga og býður upp á möguleika á fjölbreyttri upplifun og um- fjöllun. Bjartir litir, hlutbundin og frásagnarkennd verk einkenna sýninguna og ævintýraheimar, kynjaverur, menn og dýr eru meðal myndefnis. HANDVERK OG HÖNNUN Handverk og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur verður haldin í tólfta sinn nú um helgina en fyrsta sýn- ingin var haldin árið 2006. Þessar sýningar hafa tekist afar vel og hafa skapað sér sess í íslensku menningar- lífi. Þær hafa verið fjölsóttar og vakið mikla athygli og eru sýnendur orðnir tæplega þrjú hundruð frá upphafi. Flestir sem áhuga hafa á handverki, list- iðnaði og hönnun geta fundið eitthvað við sitt hæfi á sýningunni. Bæði þeir sem hafa brenn- andi áhuga á efninu, en þeir geta þá kynnt sér það nýjasta og besta á þessu sviði, og þeir sem minni bakgrunn hafa í þessum efnum en hafa engu að síður áhuga á fallegum hlutum og vönduðu handverki. Opið er á sýninguna í dag, morgun og á mánudag milli tíu og sex. ICELAND AIRWAVES – UTANDAGSKRÁR Eins og margir vita er Iceland Airwaves-hátíðin haldin um helgina. Fyrir löngu er orðið uppselt á hátíðina en þeir sem ekki hafa fjárfest nú þegar í miða geta kíkt á einhvern þeirra fjölmörgu viðburða sem verða utan- dagskrár. Það sem meira er er að á þá tónleika er frítt. Þeir sem leggja leið sína þangað þurfa þó að vera tímanlega í því því yfirleitt er fullt út úr dyrum á þessa tónleika, alla vega þá vinsælustu. ZUMBA Í SÖGUHRINGNUM Söguhringur kvenna og Tanya Dimitrova bjóða gestum upp á zumba í Gerðubergssafni á morgun klukkan hálf tvö. Söguhringur kvenna er samstarfsverkefni bóka- safnsins og Samtaka kvenna af erlendum uppruna og er markmið hans að skapa vettvang þar sem konur skiptast á sögum, persónu- legum eða bókmenntalegum. Gott er að mæta í góðum skóm og léttum fötum á morgun og eru allar konur og börn velkomin. Ef ekkert af þessu heillar er alltaf hægt að fara í göngutúr í Heiðmörk eða niður að höfn að skoða skipin eða virkja ímyndunaraflið og finna upp á ein- hverju sniðugu. ÓKEYPIS UM HELGINA HVAÐ Á AÐ GERA? Um helgar er gaman að brjóta upp hversdaginn og gera eitthvað nýtt og spennandi. Hér eru örfá dæmi um ókeypis skemmtanir. ZUMBA Í GERÐUBERGSSAFNI Konum og börnum er boðið í zumba í Gerðubergssafni með Tönyu Dimitrovu. ICELAND AIRWAVES OFF-VENUE Margir tónleikar sem frítt er inn á verða utandagskrár á Iceland Airwaves. HANDVERK OG HÖNNUN Þennan keramikvasa eftir Guðnýju Magnúsdóttur má sjá á meðal margra ann- arra fallegra hluta á sýningunni Handverk og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur. VARA-LITIR Í HAFNARBORG Boðið verður upp á fjölskylduleiðsögn um sýninguna Vara-liti í Hafnarborg í Hafnarfirði. Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.