Fréttablaðið - 08.11.2014, Blaðsíða 4
8. nóvember 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR |
NÁTTÚRA Afl háhitasvæðanna í
Bárðarbungu hefur á undan förnum
vikum margfaldast. Sigkatlar í
jöklinum dýpka stöðugt. Stækki
katlarnir enn með auknum jarð-
hita gæti bráðið jökulvatnið tekið
að safnast fyrir undir fjallinu með
mögulegri hættu á hlaupi.
Magnús Tumi Guðmundsson,
jarðeðlisfræðingur hjá Jarðvís-
indastofnun, segir að líklega sé
hægt að meta styrk svæðisins til
jafns við Skaftárkatla, sem Skaftár-
hlaup koma úr, en minni en í Gríms-
vötnum og á Torfajökulssvæðinu.
„Metið sem varmaafl er þetta orðið
eitt af öflugustu jarðhitasvæðum
landsins. Það hefur orðið mjög mikil
breyting á stuttum tíma, og jarðhit-
inn sem er að losna úr læðingi farið
úr tugum megavatta upp í kannski
600 megavött á nokkrum vikum.
Þessi jarðhitasvæði voru til fyrir,
en hafa því a.m.k. tífaldast að afli.“
Spurður hvað verður um jökul-
bráðina segir Magnús Tumi að
enn sem komið er sé talið að vatn-
ið hripi út úr eldstöðinni og í árnar
sem frá henni renna. „Vatnsmagnið
er það lítið þrátt fyrir allt að erfitt
er að finna merki um það í Jökulsá
á Fjöllum. Ef katlarnir stækka hins
vegar mikið frá því sem nú er, gæti
vatn farið að safnast fyrir undir
þeim, en talið er að það sé ekki farið
að gerast, að minnsta kosti enn þá.
Afl jarðhitans þarf svo að aukast
nokkuð meira áður en hann getur
búið til stóra katla sem valda hlaup-
um sem gera raunverulegan usla.
Við sjáum til hvað gerist,“ segir
Magnús Tumi.
Ástæðan fyrir því að jarðhitinn
hefur vaxið eins og raun ber vitni er
líklega sú að grunnvatn nær betur
inn að heitu bergi vegna sprungu-
hreyfinga samfara öskjusiginu í
Bárðarbungu. svavar@frettabladid.is
4
Það hefur
orðið mjög mikil
breyting á
stuttum tíma, og
jarðhitinn sem
er að losna úr læðingi
farið úr tugum megavatta
upp í kannski 600 mega-
vött á nokkrum vikum.
Magnús Tumi Guðmundsson
1.10.2014 ➜ 7.10.2014 40
KARLMENN
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kkolbeins@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
.
Gert er ráð fyrir að dagskrá hefjist kl. 9:00 og sé lokið kl.11:30.
Skráning á:
steinsteypufelag@steinsteypufelag.is
Steinsteypufélag Íslands heldur morgunfund þann 11. nóvember
næstkomandi þar sem fjallað verður um vinnubrögð í mannvirkjagerð
Fundurinn verður haldinn sal M209 í Háskólanum í Reykjavík.
Steinsteypufélagið býður upp á kaffi í hléi sem og fyrir fundinn.
09:00 Steypuskemmdir: Orsök og afleiðing - Indriði Níelsson, Verkís
09:20 Framleiðandi: Afhending & móttaka steypu - Kai Westphal, Steypustöðinni
09:40 Sjónarmið verktakans - Karsten Iversen, Ístak
10:00 Kaffihlé
10:20 Sjónarmið hönnuðar - Ari Sigfússon, Verkís
10:40 Pallborðsumræður
- Fyrirlesarar ásamt Magnúsi Sædal fyrrum byggingarfulltrúa í Reykjavík og
Dr. Hafsteini Pálssyni verkfræðingi hjá Umhverfis- og Auðlindaráðuneytinu
Fundarstjóri er Prof. Ólafur H. Wallevik,
varaformaður Steinsteypufélags Íslands.
BÆTT VINNUBRÖGÐ,
BETRI MANNVIRKI
D
A
G
SK
RÁ
Afl háhitasvæðanna
margfaldast að styrk
Undir Bárðarbungu hefur myndast eitt öflugasta jarðhitasvæði landsins metið í
varmaafli. Á nokkrum vikum hefur afl jarðhitasvæðisins tífaldast, hið minnsta.
Samkvæmt mælingum vísinda-
manna, sem gerðar voru í eftirlits-
flugi á þriðjudag, sést að katlarnir
í jöklinum hafa dýpkað um fimm
til átta metra undanfarna 10-12
daga, en sigskálin í jöklinum er
metin 1,1 til 1,2 rúmkílómetrar
að stærð. Mesta sig er orðið 44
metrar en mælir í öskju fjallsins
sýnir að sigið heldur áfram með
svipuðum hraða og hefur verið
undanfarnar vikur og jarðskjálfta-
virknin er áfram mikil.
➜ Katlarnir dýpka hratt
BÁRÐARBUNGA Myndin sýnir sigkatlana vestast í Bárðarbungu. Sá þriðji, nokkru stærri, er í suðaustanverðum jöklinum og
hefur dýpkað um 30 metra síðan 20. september. MYND/MAGNÚS TUMI
100 stöðugildi kennara í
framhaldsskólum verða
felld niður verði fjárlaga-
frumvarpið að lögum
óbreytt.
Nýskráningar
metanbíla drógust
saman um 82% á
fyrstu 10 mán-
uðum ársins miðað
við sama tímabil
2012.
aðgerðum verður frestað
vegna verkfalls lækna
semjist ekki áður en
verkfallsaðgerðum
lýkur í desember.
frá Íslandi var
boðin þátttaka í
Euro sonic-tónlistar-
hátíðinni sem fer
fram í Hollandi á
næsta ári.
16 ATRIÐUM
komu saman
á Austurvelli
síðdegis á
þriðjudag til
að mótmæla
stjórnarháttum
ríkisstjórnar-
innar.
Makríll hefur gefið
í útflutningstekjur frá
því árið 2007.
voru kærðir
vegna vændis-
mála í vikunni.
voru meðallaun
roskinna skúringa-
kvenna Stjórnar-
ráðsins, sem sagt
var upp í vikunni.
260.000
KRÓNUR Á MÁNUÐI
4.500
MANNS
Tafla af sterka
verkjalyfinu
OxyContin
kostar 5.000
krónur á
götunni, en
lyfið er nýtt
hér á landi.
VIÐSKIPTI Samkeppniseftirlitið hefur sektað Já hf. um 50 milljónir
króna fyrir samkeppnislagabrot. Þá er fyrirtækinu gert að veita sam-
keppnisaðilum aðgang að gagnagrunni sínum.
Miðlun og Loftmyndir kvörtuðu til eftirlitsins eftir að hafa óskað
eftir aðgangi að gagnagrunni Já í
þeim tilgangi að bjóða upplýsinga-
þjónustu í samkeppni við Já.
„Sökum þeirrar aðstöðu sem Já
hefur verið í frá upphafi, ræður
fyrirtækið yfir eina heildstæða
gagnagrunninum yfir símanúmer
og rétthafa þeirra,“ segir í niður-
stöðu Samkeppniseftirlitsins.
Talið var að Já væri í mark-
aðsráðandi einokunarstöðu og
verðskrá fyrirtækisins fæli í sér
yfirverðlagningu á gagnagrunni.
„Þessi niðurstaða breytir því
að við getum núna veitt þjónustu á sambærilegum forsendum og sam-
keppnisaðilinn,“ segir Andri Árnason, framkvæmdastjóri Miðlunar. - skó
Útilokuðu samkeppni og yfirverðlögðu gögn:
Já greiði 50 milljónir
HEILBRIGÐISMÁL Hjartaheill og
SÍBS bjóða ókeypis mælingu á
blóðþrýstingi, blóðsykri, blóð-
fitu og súrefnismettun í dag og
á morgun í SÍBS-húsinu að Síðu-
múla 6 klukkan 10 til 16.
Hjúkrunarfræðinemar munu
framkvæma mælingarnar ásamt
starfsfólki Hjartaheilla.
Í fyrra mættu átta hundruð
manns. Sextíu prósent af þeim
voru með of háan blóðþrýsting. - ibs
SÍBS og Hjartaheill:
Blóðþrýstingur
mældur frítt
BLÓÐÞRÝSTINGUR MÆLDUR Í fyrra
mældust 43 einstaklingar á hættusvæði.
Elísabet Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
KULDABOLI Hvöss norðaustanátt í dag, hvassast austan til og éljagangur um norðan-
og austanvert landið en bjartviðri suðvestan til. Dregur smám saman úr vindi og
úrkomu.
-2°
11
m/s
0°
12
m/s
0°
11
m/s
2°
15
m/s
5-13 m/s.
5-10 m/s,
en strekk-
ingur allra
syðst.
Gildistími korta er um hádegi
9°
24°
4°
14°
19°
8°
12°
10°
10°
26°
14°
22°
22°
21°
19°
10°
10°
11°
0°
8
m/s
1°
18
m/s
-1°
11
m/s
0°
13
m/s
-2°
8
m/s
-1°
10
m/s
-7°
15
m/s
-1°
-1°
-2°
-2°
-2°
0°
-4°
0°
-6°
-2°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
MÁNUDAGUR
Á MORGUN
100 MILLJARÐA KRÓNA
700 -100
AUKIÐ ÖRYGGI Ný varaaflsstöð Lands-
nets í Bolungarvík. MYND/LANDSNET
IÐNAÐUR Straumtruflanir verða
aðfaranótt 12. nóvember hjá íbúum
Bolungarvíkur og Ísafjarðar og
víðast á Vestfjörðum aðfaranótt 13.
og 14. nóvember.
Landsnet segir ástæðuna álags-
prófanir vegna lokafrágangs í
umfangsmiklu uppbyggingarferli
raforkumála á svæðinu sem til
framtíðar eigi að draga verulega
úr líkum á langvarandi straum-
leysi á Vestfjörðum. - óká
Álagsprófanir fyrir vestan:
Straumtruflana
er að vænta
FAGNAR NIÐURSTÖÐUNNI Fram-
kvæmdastjóri Miðlunar segir úrskurð
Samkeppniseftirlitsins ánægjulegan.