Fréttablaðið - 31.12.2014, Blaðsíða 8
31. desember 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 8
INDÓNESÍA, AP Mikill grátur og
harmakvein brutust út í gær meðal
ættingja farþega indónesísku þot-
unnar sem fórst á sunnudag þegar
tilkynnt var að fundist hefði brak úr
vélinni og tugir líka á floti í Jövu-
hafinu.
Þremur dögum eftir hvarf far-
þegaþotu flugfélagsins AirAsia varð
ljóst að hún hefði farist í hafi í um
það bil 160 kílómetra fjarlægð frá
eyjunni Borneó. Hún var á leiðinni
frá borginni Súrabaja í Indónesíu til
Singapúr á sunnudaginn var, og var
tæplega hálfnuð þegar hún hrapaði í
hafið. Um borð voru 162 manns, far-
þegar og áhöfn.
Nánast allir farþegarnir voru
Indónesíubúar, sem oft gera sér ferð
til Singapúr á frídögum.
„Ég veit að vélin hefur farist, en
ég get ekki trúað því að bróðir minn
og fjölskylda hans séu látin,“ segir
Ifan Joko, sem missti sjö ættingja
sína, þar af þrjú börn.
Enn var ekki vitað hvað olli hrapi
vélarinnar en ljóst að mun auðveld-
ara yrði að finna svarta kassann og
annað úr vélinni þarna en malas-
ísku farþegaþotuna sem hvarf spor-
laust í mars síðastliðnum. Sú þota er
talin hafa hrapað í Suður-Indlands-
haf vestur af Ástralíu, þar sem haf-
dýpið er hundrað sinnum meira en
í Jövuhafi.
„Þetta gerir leitina miklu ein-
faldari,“ segir Eric van Sebille,
haffræðingur við háskóla í Sydney
í Ástralíu. Dýptin í Jövuhafi er að
meðaltali um 40 til 50 metrar, þann-
ig að oft væri hægt að sjá stórt brak
á hafsbotni án þess að þurfa dýran
leitarbúnað. Brak vélarinnar fannst
á stað sem er aðeins tíu kílómetra
frá þeim stað þaðan sem síðast bár-
ust merki frá henni. Dýpi þarna er
ekki nema 20 til 30 metrar. Tölu-
verður öldugangur gerði þó björg-
unarfólki erfitt fyrir.
Tony Fernandez, stofnandi og
forstjóri lággjaldaflugfélagsins
AirAsia, hélt í gær til Súrabaja til
að votta aðstandendum hinna látnu
samúð sína persónulega: „Ég er
leiðtogi þessa fyrirtækis og verð að
taka á mig ábyrgðina. Þess vegna er
ég hér. Ég ætla ekki að hlaupast á
brott undan skyldum mínum,“ sagði
hann. gudsteinn@frettabladid.isw
Ég er leið-
togi þessa fyrir-
tækis og verð að
taka á mig
ábyrgðina. Þess
vegna er ég hér.
Ég ætla ekki að
hlaupast á brott
undan skyldum
mínum.
Tony Fernandez,
stofnandi og forstjóri
AirAsia.
BRAK ÚR VÉLINNI FUNDIÐ Dwi Putranto, yfirmaður í indónesíska flughernum, sýnir ferðatösku og annað sem fannst á floti í
Jövuhafi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Brak vélarinnar fundið
Aðeins 20 til 30 metra dýpi er á slysstað í Jövuhafi og auðvelt að sjá til botns. Leit að svarta kassanum, braki og
líkum farþega og áhafnar ætti því að geta gengið hratt. Í gær hafði engin niðurstaða fengist um orsök slyssins.
Í hverri einustu viku framleiða fyrirtæki á borð við
Airbus, Boeing, Bombardier og Embraer nærri þrjá-
tíu þotur. Flestar þeirra fara í notkun í Asíuríkjum,
þar sem eftirspurn fer hríðvaxandi.
Aukin velmegun hefur breytt lífsháttum margra
og fólk leyfir sér ferðalög í meiri mæli en áður.
Lággjaldaflugfélög hafa ýtt enn frekar undir eftir-
spurnina. Aukinni flugumferð fylgir hins vegar aukin
hætta. Vandinn er ekki síst sá að asískum flugfélög-
um hefur gengið illa að finna hæfa flugmenn til að
stjórna öllum þessum þotum. Alls eru 1.600 þotur
í notkun í ríkjum Suðaustur-Asíu og álíka margar í
smíðum fyrir flugfélög þar skráð. Fyrir hverja flugvél
þarf að ráða og þjálfa að minnsta kosti tíu til tólf
flugmenn.
➜ Flugmannaskortur í Asíu
SKIPULAGSMÁL „Teljum við afar
brýnt að innanríkisráðuneytið
staðfesti við
Reykjavíkurborg
að ekki liggi
fyrir samþykki
þess um hugsan-
lega lokun flug-
brautar 06/24
á Reykjavíkur-
flugvelli,“ segir
í bréfi samtak-
anna Hjartað í
Vatnsmýri til Ólafar Nordal innan-
ríkisráðherra.
Þá vilja samtökin, sem Friðrik
Pálsson er í forsvari fyrir, að ráðu-
neytið hlutist til um að heilbrigðis-
ráðuneytið meti áhrif lokunar
brautar 06/24 á sjúkraflug. - gar
Skorað á innanríkisráðherra:
Staðfesti ekki
lokun brautar
FRIÐRIK
PÁLSSON
Fyrsta starfsár Orku náttúrunnar er senn á enda. Við þökkum viðskiptavinum fyrir góðar viðtökur og
frábært samstarf á árinu sem er að líða um leið og við óskum landsmönnum öllum farsældar á
komandi ári. Við hlökkum til að bjóða áfram framúrskarandi þjónustu og vöru á samkeppnishæfu verði.
Orka náttúrunnar framleiðir
og selur rafmagn til allra
landsmanna á samkeppnishæfu
verði. Við viljum nýta auðlindir
af ábyrgð og nærgætni og bæta
lífsgæðin í nútíð og framtíð.
ORKA NÁTTÚRUNNAR
Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík · Sími 591 2700 · www.on.is · on@on.is
TAKK FYRIR VIÐTÖKURNAR
STJÓRNSÝSLA Tveir tvísköttunar-
samningar, sem fullgiltir voru á
árinu, taka gildi þann 1. janú-
ar 2015. Annar samninganna er
endur gerð á samningi við Bret-
land frá árinu 1991. Hinn samn-
ingurinn er við Kýpur og er nýr.
Þá munu tveir upplýsinga-
skiptasamningar, sem einnig
voru fullgiltir á árinu, taka að
fullu gildi á nýársdag. Samning-
arnir eru milli Íslands og Marsh-
all-eyja og Niue. Sá hluti þeirra
samninga sem sneri að skatta-
lagabrotum tók gildi þegar þeir
voru undirritaðir síðastliðið
sumar. - ih
Samstarf á sviði skattamála:
Samningar um
tvísköttun í gildi