Fréttablaðið - 31.12.2014, Side 16

Fréttablaðið - 31.12.2014, Side 16
31. desember 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 16 PALESTÍNA GASASTRÍÐIÐ Ísraelar gerðu árásir á Gasa í fimmtíu daga sam- fleytt síðastliðið sumar, bæði úr lofti og á landi. Hildarleikurinn hófst stuttu eftir að Hamasliðar höfðu rænt þremur ísraelskum unglingum, sem síðan fundust myrtir. Árásirnar kostuðu meira en tvö þúsund manns lífið. Meira en hálf milljón manna, nærri þriðjungur allra íbúa Gasasvæðisins, hraktist að heiman. Nærri 20 þúsund heimili voru gjöreyðilögð og nærri 40 þúsund heimili skemmdust. Meðan á þessu stóð skutu liðsmenn Hamas og ann- arra smærri samtaka herskárra Palestínumanna um 4.500 sprengiflaugum yfir landamærin til Ísraels. Um fimm þúsund Ísraelar flúðu heimili sín vegna hættu á að einhverjar þessara sprengiflauga yllu tjóni. Þetta var í þriðja skiptið á sex árum sem Ísra- elar efna til allsherjarárása á Gasasvæðið, þar sem nærri tvær milljónir manna búa. Ísraelar ráðast inn á Gasasvæðið: Linnulausar árásir í fimmtíu daga EYÐILEGGING Nærri þriðjungur íbúa Gasasvæðisins hraktist frá heimilum sínum. NORDICPHOTOS/AFP 12. JÚNÍ Þremur ísraelskum unglingum rænt í landtökubyggð- unum Gush Etsion á Vestur- bakkanum. 30. JÚNÍ Lík unglinganna þriggja fundust. 8. JÚLÍ Loftárásir Ísraela hefjast. 16. JÚLÍ Innrás land- hersins hefst. 3. ÁGÚST Ísraelski land- herinn fer að mestu frá Gasa. 26. ÁGÚST Síðustu loftárásirnar, samkomulag um vopnahlé. Við höfum gefið Hamas ráðningu sem þeir munu minnast árum saman. Benjamin Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, í sjón- varpsviðtali í lok ágúst. SÝRLAND OG ÍRAK ÍSLAMSKA RÍKIÐ Vígasveitir íslamistasamtaka, sem nú nefna sig Íslamska ríkið, hafa á síðustu misser- um orðið æ fyrirferðarmeiri á meðal uppreisnarhópa gegn stjórn Assads, forseta í Sýr- landi. Á þessu ári náðu þær síðan stórum svæðum í Írak á sitt vald, lýstu yfir stofnun kalífa- dæmis í Sýrlandi og Írak og vöktu athygli og óhug um heim allan fyrir grimmdarverk sín gagnvart bæði föngum sínum og íbúum þeirra svæða sem þær leggja undir sig. Ungt fólk frá Vesturlöndum hefur flykkst til liðs við sam- tökin ekki síður en heima- menn. Hersveitir Kúrda og sjía í Írak hafa þó á síðustu vikum ársins náð að stöðva sókn þeirra, og loftárásir Banda- ríkjanna hafa þar hjálpað til. Forsprakki samtakanna er Abu Bakr al Baghdadi. Hann er frá Írak og virðist gera sér vonir um að verða allsherjar- leiðtogi múslima í gjörvöll- um arabaheiminum – við afar dræmar undirtektir trúbræðra sinna almennt. Öfgasamtök íslamista hreiðra um sig í Sýrlandi og Írak: Höggva mann og annan GRIMMDARVERK Liðsmenn samtakanna hafa birt nokkur myndbönd með aftökum á vestrænum frétta- mönnum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Og ef einhver ætlar að svíkjast undan merkjum, kljúfið þá höfuð hans með byssu- kúlum og tæmið innihald þess, hver svo sem hann er. Yfirlýsing Íslamska ríkisins. 3. JANÚAR ISIS nær Fallujah í Írak á sitt vald. 1. FEBRÚAR Al-kaída slítur tengslum við ISIS. 29. JÚNÍ ISIS lýsir yfir stofnun kalífa- dæmis. 3. JÚLÍ ISIS nær stóru olíuvinnslusvæði í Sýrlandi á sitt vald. 3. ÁGÚST ISIS nær bænum Sindsjar í Kúrda- héruðum Íraks. 14. ÁGÚST Kúrdar hrekja vígasveitirnar frá Sindsjar-fjalli. 8. ÁGÚST Bandarískar herþotur gera árásir á ISIS í Írak. 16. SEPTEMBER Íslamska ríkið ræðst inn í Kúrda- bæinn Kobani í Sýrlandi. 23. SEPTEMBER Bandaríkin hefja loftárásir á ISIS í Sýrlandi. Framhald af síðu 12 PI PA R \ TB W A • S ÍA • 1 4 4 79 4 www.ils.is Borgartúni 21, 105 Reykjavík sími 569 6900, fax 569 6800 HELSTU ERLENDU FRÉTTIR ÁRSINS 2014

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.