Fréttablaðið - 31.12.2014, Blaðsíða 22
31. desember 2014 MIÐVIKUDAGUR| ÁRAMÓT | 22
ÞAU TÓKU VIÐ BORGINNI Nýr meirihluti borgarstjórnar var kynntur á blaða-
mannafundi við Rafveituheimilið í Elliðaárdal. Hjálmar Sveinsson, borgarfulltrúi
Samfylkingarinnar, mætti á síðustu stundu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ELDGOSIÐ Í HOLUHRAUNI Mikil skjálftahrina hófst í Bárðarbungu um miðjan ágúst og lítið hraungos varð í Holuhrauni þann
29. ágúst. Það stóð í fáa klukkutíma og lauk samdægurs, en var forboði meiri tíðinda. Aðfaranótt 31. ágúst hófst öllu stærra gos
í Holuhrauni. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
LEIÐRÉTTINGIN Fréttamannafundur um höfuðstólsleiðréttingu verðtryggðra
húsnæðislána fór fram í Hörpu í nóvember. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra sagði við þetta tilefni að dagurinn væri gleðistund fyrir heimilin
í landinu og fyrir ríkisstjórnina. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FERÐAMENN RUKKAÐIR Landeigendur hófu 600 króna gjaldtöku fyrir
heimsóknir á hverasvæðið við Geysi í mars. Þeir innheimtu gjald þrátt fyrir
að ríkið hefði á þeim tíma höfðað mál vegna gjaldtökunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
HUNGURVERKFALL Afganskur hælisleitandi, Ghasem Mohammadi, fór í tíu
daga hungurverkfall en hann hafði þá beðið í tvö ár hér á landi eftir úrskurði um
dvalarleyfi. Hann bað um það eitt að mál hans yrði efnislega tekið fyrir. Þegar
það var gert byrjaði hann að borða aftur. Máli Mohammadis lauk með því að
hann fékk pólitískt hæli á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Eldur og ís
Eldgosið í Holuhrauni hefur kraumað frá því
síðsumars og kraumar enn. Fyrr um sumarið
logaði eldur í Skeifunni og er óhætt að segja
að samfélagsmiðlar hafi einnig logað enda
hefur augnablik í Íslandssögunni líklega aldrei
verið jafn vel skrásett. Slysadeildir voru yfirfull-
ar af fólki sem hafði runnið á svellinu sem lá
yfir borginni síðasta vetur. Ís á Bessastaða tjörn
brast undan tólf hrossum sem þar drukknuðu.
Skuldaleiðréttingin var kynnt, Hanna Birna
sagði af sér, ferðamenn voru rukkaðir og ný
borgarstjórn tók við völdum.