Fréttablaðið - 09.12.2015, Side 16
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis
á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871
fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Halldór
Fanney Birna
Jónsdóttir
fanney@frettabladid.is
Ævilíkur Íslendinga nú eru 82,1 ár sam-kvæmt nýlegum tölum frá embætti land-læknis. Í nýrri skýrslu frá sama embætti
má lesa að miðgildi biðtíma eftir augasteinsaðgerð
sé 39 vikur. Heildarfjöldi (fjöldi augna) á biðlista
fyrir sömu aðgerð var 3.895 í október 2015.
Aðalástæða augasteinsaðgerðar er ský á auga-
steini sem veldur verulegri sjónskerðingu og
lélegum lífsgæðum. Á Vesturlöndum er ský á
augasteini sjúkdómur gamla fólksins og eykst tíðni
hans verulega með hækkandi aldri. Um áttrætt
er helmingur fólks kominn með sjúkdóminn og í
mörgum tilvikum er þá blinda bein afleiðing hans.
Lækning felst í skurðaðgerð þar sem augasteinninn
er fjarlægður og gerviaugasteinn settur inn í augað
í hans stað. Að öllu jöfnu tekur aðgerðin sjálf fimm
til tíu mínútur og sjúklingur getur farið heim strax
að henni lokinni. Árangur er oftast mjög góður
og margir fá fulla sjón á viðgerða auganu. Má
með sanni segja að augasteinsaðgerð sé ein best
heppnaða aðgerð læknisfræðinnar hvað varðar
árangur miðað við kostnað.
Það er Íslendingum til vansæmdar að láta gamla
fólkið bíða svona lengi eftir lítilli skurðaðgerð sem
getur bætt líf þess svo um munar. Áttræð mann-
eskja á ekki mörg ár eftir og því er ansi nöturlegt til
þess að hugsa að hún verði ekki sæmilega sjáandi til
æviloka. Við Íslendingar sýnum ekki gamla fólkinu
næga virðingu, eins og margar aðrar þjóðir gera, og
þetta sem hér að ofan er lýst er ein birtingarmynd
þess. Þetta fólk á langa starfsævi að baki og hefur
þá greitt sína skatta og gjöld. Fyrir þá sem sífellt eru
að býsnast út af kostnaði við heilbrigðisþjónustu
má benda á að oft léttir nýja sjónin fólki lífið og öll
umönnun verður auðveldari og um leið ódýrari.
Almannatryggingar voru hugsaðar sem ein
grunnstoð samfélagins. Nú eru komnir brestir í
þessa stoð. Ef þú átt peninga getur þú oft borgað
aðgerðina að fullu og stytt þannig biðtímann fyrir
sjálfan þig.
Stundum skammast ég mín fyrir að vera Íslend-
ingur.
Þjóðarskömm
Ingimundur
Gíslason
augnlæknir á
eftirlaunum
Það er Íslend-
ingum til
vansæmdar
að láta gamla
fólkið bíða
svona lengi
eftir lítilli
skurðaðgerð
sem getur
bætt líf þess
svo um
munar.
Andlitskrem
fyrir þurra húð
Fæst í apótekum
· Engir parabenar
· Engin ilmefni
· Engin litarefni
Náttúruöflin minntu hressilega á sig í gær og fyrradag með tilheyrandi fréttum af fjúkandi þökum, rafmagnsleysi og niðurfellingu flugs ásamt öðru. Ómiss-andi þáttur í þessari umfjöllun er hlut-verk björgunarsveitanna. Björgunar-
sveitir sinntu hátt á fjórða hundrað verkefnum í óveðrinu
sem gekk yfir landið og hátt í átta hundruð manns komu
að óveðursaðstoð, lokunum vega, aðstoð við veitufyrir-
tæki og viðbragðsstöðu.
Við búum á svæði þar sem allra veðra er bókstaflega
von. Það er engin leið að geta verið viss um að verið sé að
klæða sig eftir veðri að morgni, oftar en ekki er tíðin allt
önnur að kvöldi. Svitakóf á skrifstofunni og tilheyrandi
ofkæling stuttermaklæddra vinnufélaga vegna galopinna
glugga er algeng. Útivist getur undir ákveðnum kringum-
stæðum einfaldlega verið stórhættuleg.
Björgunarsveitirnar hafa það formlega hlutverk að
starfa að björgun, leit og gæslu í þágu almennings. Þær
bjarga mannslífum og verðmætum og verkefnin eru
fjölbreytt, allt frá björgun úr snjóflóðum eða sjávar-
háska til leitar að týndu fólki eða sjúkragæslu á ýmsum
viðburðum. Íslensku björgunarsveitirnar hafa unnið
óteljandi afrek í gegnum tíðina. Mannslífin sem þær hafa
bjargað eru óteljandi, hetjusögurnar hver annarri ótrú-
legri og þjóðin getur verið og er þakklát fyrir það fórnfúsa
starf sem sjálfboðaliðar björgunarsveitanna inna af hendi
þegar vá knýr dýra hér á þessu óútreiknanlega skeri. Með
fjölgun ferðamanna fjölgar verkefnum björgunarsveit-
anna. Hingað til hefur það ekki tíðkast að þeir tryggi sig
sérstaklega, til að mynda ef þeir ætla sér inn á hálendið,
en slíkt fyrirfinnst til að mynda í Ölpunum.
Á þessu ári fengu sveitirnar í gegnum Slysavarnafélagið
Landsbjörg 165,2 milljónir frá ríkinu. Samkvæmt fjár-
lögum munu 167,6 milljónir falla í þeirra skaut á næsta
ári. Í flestum vestrænum löndum eru það ríkisreknir
herir sem kallaðir eru út til að sinna björgunarstörfum,
en á Íslandi eru það sjálfboðaliðar. Björgunarsveitirnar
eru að mestu fjármagnaðar með sjálfsaflafé, söfnunum
og sölumennsku. Þannig má segja að björgunarsveitirnar
spari ríkinu ómældar upphæðir á ári hverju.
Rekstur björgunarsveita er eðli málsins samkvæmt
dýr. Það þarf bíla, búnað og tæki ásamt sífelldri þjálfun
og endurmenntun. Kröfur sem gerðar eru til björgunar-
sveitarmanna eru miklar og allt þetta er gert meira og
minna án aðkomu ríkisins. Þrátt fyrir það eru sveitirnar
gríðarlega stór hluti almannavarnakerfis hins opinbera.
Það er skylda okkar landsmanna að styðja og styrkja
björgunarsveitirnar. Dagar eins og þeir í upphafi
vikunnar minna á hversu ómetanlegt starf sjálfboðaliða
sveitanna er og dagar þar sem náttúran eða slys valda
manntjóni minna okkur enn frekar á það. Betur ætti að
standa að fjármögnun sveitanna af hálfu hins opinbera –
mun betur. En þangað til leggjum við okkar af mörkum
hvert og eitt – maður veit nefnilega aldrei hvenær röðin
kemur að manni sjálfum.
Styrkjum
sveitirnar
Í flestum
vestrænum
löndum eru
það ríkis-
reknir herir
sem kallaðir
eru út til að
sinna björg-
unarstörfum,
en á Íslandi
eru það
sjálfboðaliðar.
Loðin tekjuáætlun
Stjórnarandstaðan lagði fram
breytingartillögur sínar við fjár-
lagafrumvarp næsta árs. Þar eru
lagðir til margir útgjaldaaukandi
liðir líkt og fjármögnun Land-
spítalans, hækkun barnabóta,
örorku og lífeyris. Auðvitað er
þetta jákvætt en einhvers staðar
þarf fjármagnið að koma frá. Einn-
ig er að finna tillögur að tekjuöflun,
meðal annars auknar tekjur vegna
skattaeftirlits upp á fjóra milljarða.
Vænta má að þar verði meira fé
sett í starfsemi Ríkisskattstjóra
til að koma í veg fyrir undanskot
frá skatti. Tillagan er áhugaverð
en það hlýtur að vera vafasamt að
áætla svo nákvæmt að úr atlögu
gegn skattsvikum megi hljóta
umrædda upphæð.
Siðferðisleg skylda
Þetta er annað árið í röð sem
stjórnar andstaðan leggur fram sam-
eiginlegar fjárlagatillögur. Þetta er
afar áhugaverð nýlunda sem minnir
á skuggaríkisstjórn í Bretlandi sem
leggur fram móttillögur gagnvart
ríkjandi valdhöfum. Stjórnarand-
staðan sjálf segir að með þessu sé
hún að tefla fram skýrum valkosti
við ríkisstjórnina. Árni Páll Árnason
hefur sagt að ef ríkisstjórn fellur í
kosningum beri stjórnarandstöðu
siðferðisleg skylda til að reyna að
mynda nýja ríkisstjórn. Miðað við
öflugt samstarf stjórnarandstöðu-
flokkanna virðist löngu vera búið að
ákveða að mynda þá ríkisstjórn eftir
næstu kosningar þrátt fyrir að þeir
flokkar muni ekki ganga bundnir til
kosninga. stefanrafn@frettabladid.is
9 . d e s e m b e r 2 0 1 5 m I Ð V I K U d A G U r16 s K o Ð U n ∙ F r É T T A b L A Ð I Ð
SKOÐUN
0
8
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
9
A
-F
E
6
4
1
7
9
A
-F
D
2
8
1
7
9
A
-F
B
E
C
1
7
9
A
-F
A
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
6
4
s
_
8
_
1
2
_
2
0
1
5
C
M
Y
K