Fréttablaðið - 09.12.2015, Page 18
Engin könnun hefur verið gerð á því hvað eldri borgarar þurfi mikið sér til framfærslu, þegar
þeir eru hættir störfum. Raunar
hefur Hagstofan ekki kannað fram-
færslukostnað almennt. En hún hefur
reglulega kannað neyslukostnað, gert
neyslukannanir. Samkvæmt síðustu
neyslukönnun Hagstofunnar er
meðaltalsneysla einhleypinga 321
þúsund krónur á mánuði. Hús-
næði er inni í þeirri tölu og nær allir
neysluliðir. Þegar velferðarráðu-
neytið kannaði árið 2011 hvert ætti
að vera dæmigert neysluviðmið var
útkoman svipuð og í neyslukönnun
Hagstofunnar. Ljóst er því að miða
má við hana.
Ég tel, að neyslukönnun Hagstof-
unnar eigi við eldri borgara eins og
aðra. Sumir liðir könnunarinnar,
eins og lækniskostnaður og lyfja-
kostnaður, eru þó lægri en meðal-
talsraunkostnaður þessara kostn-
aðarliða hjá eldri borgurum. Eldri
borgarar eyða m.ö.o. hærri upp-
hæðum í læknis- og lyfjakostnað en
nemur meðaltali slíks kostnaðar hjá
almenningi.
Lífeyrir aldraðra hjá Trygginga-
stofnun er aðeins 192 þúsund krónur
á mánuði eftir skatta (einhleypingar,
sem ekki hafa aðrar tekjur en frá TR).
Það vantar því 129 þúsund krónur
á mánuði upp á, að lífeyrir TR nái
meðal tali neyslukönnunar Hagstof-
unnar. Tölurnar eru sambærilegar, þar
eð í báðum tilvikum eru þær án skatta.
FEB vill miða við neyslukönnunina
Félag eldri borgara í Reykjavík og
nágrenni hefur ítrekað ályktað á aðal-
fundum sínum að hækka ætti lífeyr-
inn frá almannatryggingum um 129
þúsund krónur á mánuði svo hann
næði upphæð neyslukönnunar Hag-
stofunnar. En stjórnvöld hafa hundsað
þá ályktun eins og þau hafa hundsað
aðrar ályktanir eldri borgara!
Félag eldri borgara hefur boðið, að
þessi munur, 129 þúsund krónur, yrði
jafnaður í þremur áföngum. En ríkis-
stjórnin hefur virt þá ósk að vettugi.
Það eina sem stjórnin býður eru rúmar
20 þúsund krónur af þessum 129 þús-
undum! Rausnarlegt það, þegar nógir
peningar eru til. Stjórnin hefur meira
að segja afsalað sér sköttum!
Ef lífeyrir eldri borgara hjá TR
hækkar um 14,5% eins og lágmarks-
laun hækkuðu hækkar lífeyririnn
um 32.625 krónur á mánuði. Lífeyrir
aldraðra, sem einungis hafa tekjur
hjá TR, er í dag 225 þúsund krónur
á mánuði fyrir skatt. 14,5% hækkun
gerir 32.625 kr.
Ef lífeyrir aldraðra hjá TR hækkar
alls upp í 300 þúsund á mánuði á
þremur árum eins og lágmarkslaun
hefur lífeyrir aldraðra hjá TR hækkað
verulega. Ríkisstjórnin ætti að taka
rögg á sig og stíga þessi skref.
Hversu há þarf
framfærslan að vera?
Á sama tíma og fulltrúar heims-byggðarinnar ræða hvernig hamla megi gegn losun
gróðurhúsalofttegunda, koma full-
trúar TiSA-ríkjanna saman í Genf
til að ræða hið gagnstæða; hvernig
koma megi í veg fyrir að félagsleg
sjónarmið standi í vegi fyrir mark-
aðsvæðingu þess sem á TiSA-máli
kallast „Environmental services“ eða
umhverfistengd þjónustuviðskipti.
Klippt á lýðræðislegar rætur
TiSA er skammstöfun fyrir Trade
in Services Agreement. Þessar frí-
verslunarviðræður spruttu upp úr
GATS – General Agreement of Trade
in Services – viðræðum Alþjóðavið-
skiptastofnunarinnar um þjónustu-
viðskipti og hófust þær formlega
árið 2013 eftir að hlé hafði verið gert
á GATS-viðræðunum vegna vaxandi
andstöðu almennings og fátækustu
ríkja heims.
GATS og TiSA eru af sama toga
og ganga út á lýðræðisvana mark-
aðsvæðingu. Annars vegar er hún
óafturkræf. Ekki er hægt fyrir nýjar
ríkisstjórnir að vinda ofan af skuld-
bindingum um markaðsvæðingu,
sem forverarnir gáfu, nema eiga
málssókn á hættu. Í annan stað
byggja þessar málsóknir á gerðar-
dómsréttarfari, það þýðir að
ágreiningsmálum er ekki skotið
til dómstóla í viðkomandi ríkjum
heldur til gerðardóma með aðkomu
alþjóðlegra fyrirtækja. Þetta þýðir að
klippt er á dómsvald sem á sér lýð-
ræðislegar rætur.
Aðild Íslands að siðleysinu
Þessar TiSA-samningaviðræður eru
siðlausar af tveimur ástæðum fyrir
utan það sem hér var nefnt.
Annars vegar eru TiSA-viðræð-
urnar tilraun ríkari hluta heimsins
til að komast að samkomulagi sem
síðan verði þröngvað upp á hinn
snauðari hluta. Þetta takmark hefur
ekki verið farið í grafgötur með. Í
skýrslu utanríkisráðherra Íslands
í mars 2014 segir að vonast sé til
að aðildarríki Alþjóðaviðskipta-
stofnunarinnar „gerist aðilar að
TiSA-samningnum þegar viðræðum
er lokið“! Hér er vísað til allra 123
ríkjanna sem stóðu að GATS-við-
ræðunum.
Hins vegar eru TiSA-viðræðurnar
ósiðlegar vegna leyndarinnar. Í
TiSA-viðræðunum er meiningin
að komast að samkomulagi undir
leyndarhjúp um mál sem varða sam-
félagið allt.
Leikbrúður fjármagnsins
Fréttir af TiSA-viðræðunum nú
eigum við enn og aftur Wikileaks
að þakka. Í síðustu viku kom Wiki-
leaks fréttum af leynimakkinu í Genf
á framfæri. Athyglisvert er að lekinn
hefur vakið miklu meiri athygli í
þriðja heiminum en í okkar heims-
hluta þótt rökrétt væri að öll heims-
byggðin risi upp þegar alþjóðafjár-
magnið gerir lýðræðislega fulltrúa
okkar að leikbrúðum sínum.
Samningsríkin í TiSA-viðræð-
unum eru ýmist talin 50 eða 23 eftir
því hvort Evrópusambandsríkin
eru talin öll sér eða litið á þau sem
eina heild en þannig koma þau að
þessum viðræðum. Ísland er þarna
með á báti, sem áður segir, og var í
fréttum í síðustu viku vísað í Noreg
og Ísland sem tillöguríki um tiltekna
þætti í þessum viðræðum án þess að
nokkur opin umræða hafi farið fram
um það hér á landi!
Varnaðarorð alþjóðasamtaka
launafólks
Alþjóðasamtök starfsfólks í
almannaþjónustu, Public Services
International, PSI, hafa fylgst með
þessum viðræðum eins og þau hafa
getað og sagði Rosa Pavanelli, fram-
kvæmdastjóri PSI, eftir að upplýs-
ingarnar komu fram í síðustu viku,
að með ólíkindum væri að heimur-
inn þurfi að reiða sig á Wikileaks um
aðgang að upplýsingum um hvað
ríkisstjórnir okkar eru að semja um
á bak við tjöldin fyrir okkar hönd.
Losun í París, lokun í Genf
Ögmundur
Jónasson
alþingismaður
Ísland er þarna með á báti,
sem áður segir, og var í
fréttum í síðustu viku vísað
í Noreg og Ísland sem til-
löguríki um tiltekna þætti í
þessum viðræðum án þess
að nokkur opin umræða
hafi farið fram um það hér á
landi!
Björgvin Guð-
mundsson
formaður kjara-
nefndar
Félags eldri
borgara í
Reykjavík og ná-
grenni
3.250.000 kr.
Kia cee’d SW 1.6
Árgerð 2013, ekinn 34 þús. km,
dísil, 128 hö, beinskiptur.
3.890.000 kr.
Kia Carens EX 1.7
Árgerð 2014, ekinn 67 þús. km,
dísil, 136 hö, sjálfskiptur.
5.990.000 kr.3.950.000 kr.
Kia Sorento ClassicKia cee’d EX 1.6
Árgerð 2014, ekinn 43 þús. km,
dísil, 198 hö, sjálfskiptur.
Árgerð 2014, ekinn 12 þús. km,
dísil, 128 hö, sjálfskiptur.4.490.000 kr.
Kia Sportage EX
Árgerð 2014, ekinn 105 þús. km,
dísil, 136 hö, sjálfskiptur.
42.777 kr. á mánuði*
51.777 kr. á mánuði*
50.777 kr. á mánuði*
78.777 kr. á mánuði*
Afbo
rgun
aðe
ins:
58.7
77 k
r./mán
.*
*Mánaðargreiðsla m.v. 70% bílalán í 72 mánuði. Vextir 9,25%
og árleg hlutfallstala kostnaðar er 11%.
**Ábyrgð er í 7 ár frá skráningardegi bifreiðar.
ÁRA
ÁBYRGÐ
Notaðir
ÁRA
ÁBYRGÐ
Notaðir
ÁRA
ÁBYRGÐ
Notaðir
ÁRA
ÁBYRGÐ
Notaðir ÁRA
ÁBYRGÐ
Notaðir
NOTAÐIR BÍLAR
www.notadir.is
Kletthálsi 2
110 Reykjavík
590 2160
Opnunartími:
Virka daga 10–18
Laugardaga 12–16
Allt að 7 ára
ábyrgð fylgir
notuðum Kia**Ábyrgð fylgir!
9 . d e s e m b e r 2 0 1 5 m I Ð V I K U d A G U r18 s K o Ð U n ∙ F r É T T A b L A Ð I Ð
0
8
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
9
B
-0
D
3
4
1
7
9
B
-0
B
F
8
1
7
9
B
-0
A
B
C
1
7
9
B
-0
9
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
6
4
s
_
8
_
1
2
_
2
0
1
5
C
M
Y
K