Fréttablaðið - 09.12.2015, Page 38

Fréttablaðið - 09.12.2015, Page 38
Svipmynd haukur hinrikSSon Haukur Hinriksson hefur verið ráðinn lögfræðingur Knattspyrnu- sambands Íslands. Þar mun hann starfa í mótadeild. „Þetta er í raun og veru mjög fjölbreytt verkefni. Starfslýsingin er þannig að ég er í sambandi við milliliði, ég sé um uppfærslu á reglugerðum, ég er með á borðinu hjá mér samninga- mál og félagsskiptamál og ýmis tilfallandi verkefni í raun og veru,“ segir Haukur þegar hann er beðinn um að lýsa nýja starfinu sínu. Hann segir þetta vera nýtt starf og ekki hafi verið starfandi lögfræðingur hjá KSÍ. Þó hafi staðið til í nokk- urn tíma að ráða lögfræðing. Hann byrjar í starfinu þann 4. janúar næstkomandi. Haukur útskrifaðist með ML-gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykja- vík síðastliðið vor, en var jafnframt í skiptinámi í París árið 2014. Haukur var aðstoðarmaður lögmanna á Lög- fræðistofu Suðurnesja sumarið 2014 en hefur verið sölumaður hjá heild- verslun Ólafs Gíslasonar & Co frá útskrift. Haukur lætur vel af náminu í Háskólanum í Reykjavík. Uppsetn- ing námsins sé svolítið frábrugðin því sem er í HÍ, því að í HR sé meira lagt upp úr raunhæfum verkefnum í stað 100 prósent prófa í lok annar. Í lokaritgerð skrifaði hann um skulda- jöfnun afleiðusamninga við gjald- þrotaskipti eða slitameðferð. Hann segir áhugamál sín á sviði lögfræði því mjög fjölbreytt. En hann hafi ekki þurft að hugsa sig tvisvar um þegar starfið hjá KSÍ bauðst. „Þetta er áhugamál númer eitt, það er fót- bolti.“ Haukur er Akureyringur í húð og hár, fæddur þar og uppalinn. „En foreldrar mínir eru hins vegar báðir að sunnan,“ segir Haukur. Það hafi því ekki verið neitt mál að flytja suður þegar lögfræðinámið hófst. Haukur á ekki langt að sækja knatt- spyrnuáhugann, því afi hans var lög- fræðingur og spilaði með íslenska landsliðinu í fyrsta landsleik Íslands árið 1946. Hann hét Þórhallur Ingi- bergur Einarsson og varð meðal annars Íslandsmeistari með Fram. Haukur hefur sjálfur spilað fót- bolta. Þrjú tímabil spilaði hann í fyrstu deild, með KA og Þrótti í Reykjavík og einnig spilaði hann í annarri deild. Eftir að hann byrjaði í mastersnámi í lögfræði spilaði hann líka í fjórðu deild. Áhugamálin fyrir utan fótboltann eru aðrar íþróttir. Þá helst snjóbretti, golf og veiði, en einnig hefur Haukur mikinn áhuga á ferðamennsku. Sá áhugi kviknaði þegar hann var í skiptináminu í París. „Þá tókst mér að ferðast til átta landa í leiðinni. Það var tiltölulega auðvelt að finna flug og þá kviknaði mikill áhugi á ferða- mennsku,“ segir Haukur og bætir við að það sé sérstaklega gaman að sjá ólíka menningu. Hann segir áhuga- verðustu heimsóknina hafa verið til Slóvakíu. jonhakon@frettabladid.is Fótbolti er áhugamál númer eitt Haukur Hinriksson verður lögfræðingur Knattspyrnusambands Íslands. Hann er Akureyringur í húð og hár. Áhugann á knattspyrnu og lögfræði sækir hann til afa síns sem spilaði með fyrsta landsliði Íslands. Haukur Hinriksson er fæddur og uppalinn á Akureyri, en flutti til Reykjavíkur þegar hann hóf háskólanám. FRéttAblAðið/GVA danska hótelkeðjan Guldsmeden rekur hótel í danmörku, noregi, Frakklandi og á Balí. Auður Finnbogadóttir hefur verið skipaður formaður stjórnar Sam- keppniseftirlitins. Skipunin gildir frá 1. desember 2015 til 26. ágúst 2017. Auður er viðskiptafræðingur frá University of Colorado í Banda- ríkjunum og með MBA-próf frá Háskólanum í Reykjavík. Á sama tíma skipaði ráðherra Eyvind G. Gunnarsson í aðalstjórn Sam- keppniseftirlitins og þau Ingva Má Pálsson, og Jóhönnu Katrínu Magnúsdóttur sem varamenn. – sg Nýr formaður stjórnar auður FinnBoGadóttir Birna Hlín Káradóttir hefur verið ráðin yfirlögfræðingur hjá Fossum mörkuðum hf. og mun hefja störf í janúar. Birna Hlín útskrifaðist með kandídatspróf í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2006. Frá árinu 2009 hefur hún gegnt starfi yfirlögfræð- ings, fyrst hjá Straumi-Burðarási, svo Straumi fjárfestingabanka og nú síðast hjá sameinuðum banka MP og Straums. – sg Fossar fá nýjan yfirlögfræðing Birna hlín SiGurBjörn inGimundarSon Sigurbjörn Ingimundarson hefur verið skipaður varaformaður í stjórn Íbúðalánasjóðs og Valdimar Valdemarsson fastamaður í stjórn. Sigurbjörn lauk BA-námi í lög- fræði frá Háskólanum í Reykjavík 2010, og lagði stund á framhalds- nám í lögfræði við HR á árunum 2010 til 2013. Hann leggur nú stund á MBA-nám við Háskóla Íslands.  Sigurbjörn vinnur nú sem fram- kvæmdastjóri þingflokks Sjálf- stæðisflokksins. Hann hef ur líka starfað hjá LOGOS lög mannsþjón- ustu, Lands virkj un og Garðabæ. – sg varaformaður í stjórn ílS „Það eru framkvæmdir á fullu í hús- inu núna og við stefnum að því að opna í maí 2016,“ þetta segir Linda Jóhannsdóttir, en hún ásamt manni sínum, Ellerti Finnbogasyni, ætlar að opna lífræna „boutique“ hótelið Eyja Guldsmeden við Brautarholt 10-14. Þau hafa rekið saman Luna apartments síðan árið 2003. Hótelið verður rekið í samstarfi við dönsku hótelkeðjuna Guld- smeden, sem rekur m.a. hótel í Dan- mörku, Noregi, Frakklandi og á Balí. „Við hjónin eigum hótelið og rekum það alveg sér, en með samstarfinu nýtum við þegar áunna þekkingu, ferla og kerfi sem nýtist vel í okkar rekstri,“ segir Linda. Húsnæðið sem áður var skrif- stofuhúsnæði er 2.070 fermetrar og verður hótelið búið 65 herbergjum. Lögð er áhersla á lífrænan rekstur og vistvernd m.a. með því að versla við innlenda aðila sem eru með lífræna vottun eða uppfylla gæða- staðla. „Ísland er tilvalið land til þess að huga meira að umhverfinu, við erum með hreint vatn og góðar matvörur. Þó þær séu ekki endi- lega lífrænar, eru þær beint frá býli og hollar og góðar. Svo leggjum við mikið upp úr því að minnka sóun, meðal annars matarsóun. Við notum heldur ekki spillandi efni eða plastvörur. Við hvetjum gesti til að drekka hreina, tæra íslenska vatnið beint úr krananum, en þess utan bjóðum við upp á ótakmarkað vatn og sódavatn frítt fyrir gesti,“ segir Linda. „Það hefur orðið mikil vakning í umhverfismálum í heiminum en fólk er ekki endilega að velja hót- elið út af því,“ segir Linda. Mark- hópurinn er því fjölbreyttur enda lagt mikið upp úr því að hótelið sé persónulegt og með persónulega þjónustu. „Eyja Guldsmeden hotel verður frábrugðið þeim hótelum sem hafa verið opnuð undanfarið með öðruvísi karakter og áherslu,“ segir Linda. -sg Skrifstofum í Brautarholti breytt í hótel Hótelið verður í húsnæði við brautarholt 10-14 og verður búið 65 herbergjum. FRéttAblAðið/GVA Þá tókst mér að ferðast til átta landa í leiðinni. Það var tiltölulega auðvelt að finna flug og þá kviknaði mikill áhugi á ferðamennsku. 9 . d e s e m b e r 2 0 1 5 m I Ð V I K U d A G U r8 markaðurinn 0 8 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 9 B -3 4 B 4 1 7 9 B -3 3 7 8 1 7 9 B -3 2 3 C 1 7 9 B -3 1 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 6 4 s _ 8 _ 1 2 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.