Fréttablaðið - 09.12.2015, Side 48

Fréttablaðið - 09.12.2015, Side 48
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. Ástkær maðurinn minn, sonur, bróðir, mágur og tengdasonur, Gísli Bjarnason tæknifræðingur, Gaukshólum 2, lést á Landspítalanum 29. nóvember. Útförin fer fram frá Fella- og Hólakirkju föstudaginn 11. desember kl. 11. Þóra Björk Róbertsdóttir Bjarni Kristbjörnsson Guðrún Inga Bjarnadóttir Kristbjörn Bjarnason Steinunn Björg Jónsdóttir Valgerður Bjarnadóttir Óskar Garðar Hallgrímsson Róbert Árnason Þórgunnur Þórarinsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Auður Brynjólfsdóttir lést þann 21. nóvember 2015 á Hjartadeild Landspítalans við Hringbraut. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Við þökkum starfsfólki hjúkrunarheimilisins Markar og Hjartadeildar Landspítalans fyrir umönnun og auðsýnda alúð og hlýju. Brynjólfur Björnsson Unnur Svava Ágústsdóttir Ásta Björk Solis Joe Solis Arna Björnsdóttir Valur Geirsson Ástrós Bryndís Björnsdóttir Þorbergur Einarsson börn og barnabörn. Yndisleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Jónína Halldóra Einarsdóttir Hvassaleiti 157, Reykjavík, lést þann 1. desember á hjúkrunarheimilinu Eir, Reykjavík. Jarðarförin fer fram frá Grensáskirkju föstudaginn 11. desember kl. 11. Rósamunda Gerður Bjarnadóttir Guðrún Hildur Bjarnadóttir Gísli Jón Bjarnason Guðbjörg Aðalsteinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, Þorgerður Þorgeirsdóttir hússtjórnarkennari, sem andaðist 27. nóvember síðastliðinn, verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju föstudaginn 11. desember kl. 15. Magnús Gíslason Guðrún Halldórsdóttir Rósa Gísladóttir Þórhallur Eyþórsson Gísli Magnússon Vilborg Magnúsdóttir Þorgerður Þórhallsdóttir Helga Gunndís Þórhallsdóttir Guðrún Sigríður Þórhallsdóttir Okkar innilegustu þakkir færum við öllum þeim sem auðsýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, Tryggva Þorsteinssonar læknis, sem lést hinn 23. nóvember síðastliðinn. Hjördís Björnsdóttir Guðjón Sch. Tryggvason Sigrún Stefánsdóttir Laufey Tryggvadóttir Þorgeir S. Helgason Hildur Tryggvadóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir minn, Sigurður Gunnarsson andaðist sunnudaginn 6. desember í Brákarhlíð, Borgarnesi. Fyrir hönd aðstandenda, Þórður Sigurðsson Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Guðbjörg Kristrún Guðmundsdóttir Roesel sem andaðist á Landspítalanum í Fossvogi 19. nóvember, verður jarðsungin frá Háteigskirkju föstudaginn 11. desember kl. 13.00. Blóm og kransar afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Mæðrastyrksnefnd eða Kvennaathvarfið. Roy Richard Roesel Jr. Tamara Lísa Roesel Michele Trappella Nanna B. Benediktz Guðmundur B. Stefánsson Helgi Þór Guðmundsson Kirstín Dóra Árnadóttir Birgir Hlynur Guðmundsson og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Lárus Jónsson sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 29. nóvember, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 11. desember kl. 13.00. Guðrún Jónsdóttir Jón Ellert Lárusson Sigrún Ásdís Gísladóttir Hólmfríður Kristjánsdóttir Marta Kristín Lárusdóttir Guðmundur Valsson Jónína Sigrún Lárusdóttir Birgir Guðmundsson barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur. 1794 Skúli Magnússon er skipaður landfógeti, fyrstur Íslendinga. 1926 Sjö hús brenna til kaldra kola á Stokkseyri, og er þá upp talinn meirihluti þorpsins. Ekki verður manntjón. 1956 Hamrafell, stærsta skip Íslendinga fram til þessa, kemur til landsins. Er skipið svo gríðarstórt að það getur einungis lagst við höfn á einum stað, og er það í Hafnarfirði. 1982 Ásmundur Sveinsson myndhöggvari deyr, þá 89 ára gamall. 1982 Kvikmyndin E.T. er frumsýnd í Laugarásbíói, og er um að ræða Evrópufrumsýningu. 1996 Sameinuðu þjóðirnar hleypa af stokkunum átakinu Olía fyrir mat í Írak. 2010 Nýr Icesave-samningur milli Bretlands og Íslands er kynntur á blaðamannafundi. 2010 Lilja Mósesdóttir brýtur blað í sögu þingsins, er hún situr hjá í atkvæðagreiðslu um fjárlagafrumvarp. Er það mögulega í fyrsta skipti í sögunni sem stjórnarþingmaður greiðir ekki atkvæði með fjárlagafrumvarpi. Merkisatburðir „Mér finnst kirkjugarðar aðalmálið, ég tala svo sem ekki fyrir munn félags- ins,“ segir Guðný Zoëga, fornleifa- og mannabeinafræðingur hjá Byggðasafni Skagfirðinga, sem flytja mun erindið Gluggað í garða og byggir það á rann- sókn skagfirskra miðaldakirkjugarða. Tilefnið er ársfundur Hins íslenzka fornleifafélags 2015 sem haldinn er á Þjóðminjasafninu í dag. Guðný segir Íslendinga almennt mjög áhugasama um fornleifafræði og það skipti gríðarlegu máli, þar sem bagalegt sé þegar menn grafi eitthvað í burtu til að forðast vesen. „Við verðum að nálgast þetta á jákvæðan hátt. Allt er þetta sameign okkar allra í jörðinni okkar og það skiptir máli að kynna þetta vel,“ útskýrir Guðný og bendir á að þó gaman sé að grafa, sé það ekki eini tilgangur fornleifarannsókna. „Hægt er að rannsaka svo margt við gröftinn, svo sem hvað fólk var að gera, hvað það borðaði, voru umhverfiserfið- leikar og jafnvel erfðatengsl.“ Beinir Guðný sjónum að kirkju- görðum á þessum ársfundi eins og áður sagði. „Við byrjuðum Skagfirsku kirkju- rannsóknina árið 2008, að hluta til vegna þess að fornir kristnir grafreitir voru að koma upp í framkvæmdum. Við vildum skrá þetta, leita og stað- setja áður en stórvirkar vinnuvélar létu til sín taka.“ Úr varð að nú þegar hefur Guðný ásamt teymi sínu hlotið styrk og liðsinni frá Bandaríkjunum, og grafið upp fjöldann allan af kirkjugörðum. Hefur hópurinn meðal annars fundið kirkjugarð „með manni og mús“ eins og hún orðaði það. En hver er helsti munurinn á kirkju- görðum þá og nú? Varla getur munur- inn verið svo mikill. „Munurinn er gífurlegur,“ svarar Guðný. „Þarna er um að ræða garða frá elleftu öld og eru garðarnir teknir upp í kjölfar kristni- tökunnar. Garðarnir voru fimmtán til tuttugu metrar í þvermál, hringlaga og lítil viðarkirkja höfð í miðjunni. Um var að ræða fjölskyldukirkjugarða þar sem heimilisfólkið sá alfarið um að jarðsetja sitt fólk, sem jafnan dó heima, og gerði allt, hvort sem var að smíða kistuna eða grafa,“ útskýrir Guðný og heldur áfram: „Í dag deyja flestir inni á sjúkrastofnunum og fagaðilar sjá um þetta ferli. Við höfum þannig fjarlægt dauðann frá eðlilegu lífi.“ Guðný segist ætla að fjalla um rann- sóknina á fundinum, og ætlar sér að gera það á léttu nótunum, enda sé ekki ástæða til annars. „Ég held að fólk hafi mikinn áhuga á fólki, og ég held þú komist ekki nær því en akkúrat svona.“ gudrun@frettabladid.is Fjallar á léttum nótum um miðaldakirkjugarða „Fornleifar eru sameign okkar allra,“ segir Guðný Zoëga, fornleifa- og mannabeinafræð- ingur, sem mun halda erindi á ársfundi Hins íslenzka fornleifafélags í dag. Guðný segir alla þá sem ekki hræðist bein velkomna á Þjóðminjasafnið í dag. Fundurinn hefst klukkan 16.00 og er öllum opinn. 9 . d e s e m b e r 2 0 1 5 m I Ð V I K U d A G U r28 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð tímamót 0 8 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 9 B -0 8 4 4 1 7 9 B -0 7 0 8 1 7 9 B -0 5 C C 1 7 9 B -0 4 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 6 4 s _ 8 _ 1 2 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.