Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2013, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2013, Qupperneq 17
Úttekt 17Helgarblað 4.–6. janúar 2013 mjög auðvelt að bægja vandanum frá sér og bíða með að taka afstöðu.“ Kolefnisskattur er mikilvægur Hann segir hins vegar engan tíma til þess að bíða. Náttúran bíði ekki. Það verði aftur á móti ekkert af raunveru- legri varnarbaráttu fyrr en verulega sterkur pólitískur vilji verði áberandi og þá sé kolefnisskattur mikilvægur. Hann útskýrir hvers vegna: „Menn hafa komist upp með það að setja kolefni út í andrúmsloftið. Menn spila bara eins og dómarinn leyfir. En ef alþjóðasamfélagið segir: Jæja, það kostar 60 evrur á tonnið að losa kolefni í loftið. Þá hækkar verð líf- rænna orkugjafa. Það má rétt ímynda sér hvort olíufyrirtækin séu spennt fyrir þessu. Þess vegna setja þeir mikla peninga í fréttaveitur til þess að tala þetta niður – til þess að seinka þessu. Því fyrir hvert ár sem þessu er seinkað – þeim mun meiri verður skammtímahagnaður þeirra. Þannig horfir þetta við þeim.“ Aftakaveður og flóð verða miklu algengari Aukning á styrk koltvíoxíðs í andrúms- lofti hefur verið hvað mest síðustu 50 ár. Styrkur koltvíoxíðs í andrúmslofti er orðinn meiri en hann hefur verið í 800.000 ár. Loftslag hlýnar vegna gróð- urhúsaáhrifa sem koltvíoxíð veldur, úthöfin sýrast og sjávaryfirborð hækk- ar. „Spurt er hvort hækkunin á þessari öld verði í sentímetrum eða metrum. Jarðarbúar eru núna sjö milljarðar. Við verðum níu milljarðar eftir aðeins 50 ár. Flest bendir til þess að veður- far breytist með þeim afleiðingum að þurru svæðin verða þurrari og þau röku rakari. Aftakaveður og flóð verða miklu algengari og það mun hafa víð- tæk áhrif. Allt frá flutningi fólks milli landa og röskun á matvælafram- leiðslu,“ segir Sigurður Reynir og bendir á að með því verði bæði félags- legur og pólitískur veruleiki allt annar. Stefnir í tveggja metra hækkun sjávarborðs Sigurður Reynir sýnir blaðamanni lík- an sem spáir á raunhæfan máta fyrir um hvað gerist ef við höldum áfram að brenna kolefni út í andrúmsloftið með sömu hraðaaukningu og við höf- um gert. „Styrkurinn er svo mikill að af- leiðingarnar verða gríðarlegar, með þessu framhaldi þá stefnir í tveggja metra hækkun sjávarborðs í lok þessarar aldar. Það er bara eins og í einhverri hamfarasenu í Hollywood- kvikmynd. Líklega verður miklu heitara á Ís- landi – þótt við séum á erfiðum tíma- punkti til að spá fyrir um slíkt því að Golfstraumurinn gæti allt í einu hoppað yfir til Portúgal. Það hefur gerst áður og þá lækkar hitastigið. Við erum að hreyfa svo mikið við loftslagskerfinu. Var það ekki Hall- grímur Helgason rithöfundur sem sagði: „Icelanders have high hope for climate change?““ segir Sigurður Reynir og brosir út í annað. „Hall- grímur átti við að eðlilega vildu Ís- lendinga heitara loftslag. Orðalagið er óheppilega tvíbent því ef hitastig hækkar þá hækkar yfir- borð sjávar. Það hentar okkur ekki vel. Ég neita því ekkert að það er yndislegt að sitja úti á kvöldin og fá sér bjór niðri á Austurvelli í góðu veðri í miklum hita í júní en svo getur komið svona aftakaveð- ur í september, október, nóvember og desem- ber síðastliðnum – sem verður tjón af í hvert sinn. Tíðni aftakaveðra verður meiri hér sem annars staðar ef fram fer sem horfir.“ Seltjarnarnes verður eyja Blaðamaður biður Sigurð Reyni að nýta fræðin og reynsluna til þess að horfa lengra fram í framtíðina. Hvernig gætu Íslendingar verið staddir í ná- inni framtíð ef fram fer sem horfir, og börn þeirra og barnabörn, hvað þurfa þau að glíma við ef ekkert er að gert? „Já, ég get gert það. Það er fyrir- sjáanlegt í náinni framtíð að hægt og bítandi verða sjávarflóð alvarlegri og aftakaveður færast í aukana og valda tjóni. Þetta er að gerast núna, sjór fer að ganga á land, sérstaklega þegar saman fer stórstraumur og leifar af fellibyl eins og síðasta haust. Ef við horfum lengra þá breytist landslagið hjá okkar meðan yfirborð sjávar hækkar með bráðnun jökla. Það verður til dæmis allt á kafi þar sem Hagkaup á Eiðistorgi er í dag. Seltjarnarnes verður eins og lítil eyja út frá Reykjavík. Sjórinn flæðir líka inn Lækjargötuna og tengist tjörn- inni og aftur á haf út. Áhrifin af hækk- un yfirborðs sjávar verða misalvar- leg, alvarlegust eru þau að sjálfsögðu á láglendum og þéttbýlum svæðum Asíu en einnig í Evrópu, til dæmis í Hollandi. Ef sjórinn fer svo súrna þá hefur það áhrif á lífið í sjónum og fiskistofnana og þeir stofnar sem við höfum verið að veiða færa sig norðar og aðrir koma í staðinn. Íslendingar eru fær veiðiþjóð og þurfa þá að verða viðbragðsfljótir.“ Eins og í Mad Max Sigurður heldur áfram að skoða framtíðina og hvernig veður og loftslagsbreytingar hafa víðtæk áhrif á líf okkar og ákvarðanir. „Ef við höldum áfram að ímynda okk- ur framtíðina þá getur vel verið að ef það gengur vel hjá okkur Íslending- um, betur en hjá öðrum þjóðum, að það verði þrýstingur á okkur að taka við flóttamönnum. Til dæmis frá Bangladess þar sem fyrirséð er að ástandið verði erfitt. Það má segja að ef allt fer á versta veg þá megi ímynda sér ástandið eins og í kvik- myndinni Mad Max. Þeir sem hafa litla tilfinningu fyrir þessu ættu að prófa að fara með GPS-tækið sitt út í garð og skoða hvað þeir eru hátt yfir sjávarmáli og reikna svo út hvernig þeir standa í framtíðinni ef sjávar- mál hækkar. Ef Grænlandsjökull bráðnar hækkar yfirborð sjávar um 7,6 metra. Ef að jökullinn á Suðurskautslandi fer þá hækkar það um 56,6 metra.“ Heiminum bjargað á Hellisheiðinni Íslendingum má vera létt því ekki er öll von úti. Sigurður Reynir er meðal vísindamanna í fremstu röð í rann- sóknum á viðfangsefninu og því hvernig má bregðast við. „Ef við viljum koma í veg fyrir að sjórinn súrni og yfirborð sjávar hækki, og breytingar á loftslagi, þá þurfum við að taka okkur á. Breytingarnar sem við erum að valda eru svo hraðar og miklar að aðlögun okkar verður erf- ið. Við verðum að verða sjálfbærari og hreinsa andrúmsloftið. Við verðum að binda koltvíoxíð sem losnar við bruna lífrænna orkugjafa og það verður best gert með því að binda það í bergi,“ segir Sigurður Reyn- ir og færir í tal kolefnisbindingarver- kefni sitt, CarbFix, sem felst í því að þróa iðnaðar ferli til bindingar koltví- oxíðs í bergi í þúsundir ára og þjálfa unga vísindamenn til þess að nýta þekkinguna til framtíðar. Hópur vís- indamanna á vegum Sigurðar Reynis hefur smíðað niðurdælingarbúnað og fyrstu tilraunir til að koma kolefninu í berg eru hafnar. „Verkefnið hófst með sam- starfi rannsóknarráðs Frakklands, Columbia-háskólans í New York og okkar, leiddu af mér, Háskóla Íslands og Orkuveitu Reykjavíkur. Við settum okkur það markmið að binda koltvíoxíð í bergi, og draga þannig úr því magni sem losað er í andrúmsloftið. Við tökum koltvíoxíð sem losnar við virkjun jarðvarmans á Hellisheiði og leysum það upp í vatni undir miklum þrýstingi, þessu dælum við svo djúpt niður í jarðlög,“ segir Sig- urður Reynir. „Þar hvarfast vatnið og koltvíoxíðið við kalsíum sem losnar úr berginu og myndar að lokum stein- tegundina kalsít. Þannig vonumst við til að binda koltvíoxíðið í föstu formi í tugi alda eða jafnvel milljónir ára.“ Hann tekur upp stóran steinhnull- ung af borðinu – silfurberg. „Svona lítur kolefnið út, þótt það verði að- eins skýjaðra en þetta þegar búið er að binda það.“ Tröllið verður að steini Úr ógn í fallegan stein? „Já,“ segir Sig- urður Reynir og brosir. „Við steinrenn- um kolefnið. Kolefnið verður eins og tröllin, dagar uppi og verður að steini. Svo verður það bundið í milljónir ára.“ Hann útskýrir betur af hverju það er best að breyta tröllinu kolefni í stein. „Flest efni í manninum eru ættuð úr bergi. Vatnið sem við drekkum og kolefnið sem við borðum dag- lega og öndum síðar frá okkur hefur einhvern tímann verið fast í bergi en síðan borist þaðan í geyma lífs og lofts. Efnin ferðast úr einum geymi í annan en dvelja mislengi í hverjum þeirra. Dvalar- tíminn í bergi og sjó er langur en stuttur í líf- verum og andrúmslofti.“ Holrými til sölu Sigurður Reynir segir frá því að í dag séu notaðar nokkrar aðferðir til að binda. Norðmenn fari þar fremstir en þeir dæla kolefninu niður í jarðlög þar sem það á að sitja fast. „Norðmenn eru komnir hvað lengst með þetta. Gro Harlem Brundtland leiddi Norðmenn í um- hverfisstefnu þeirra. Þeir hefðu getað sett kolefnið beint út í andrúmsloftið í sínum orkufreka iðnaði en þeir settu á kolefnisskatt. Þeir setja milljón tonn ofan í jarðlögin á hverju ári. Það er góð aðferð en ekki eins trygg og okkar. Tröllin verða ekki að steini, það sem menn eru hræddir við er að kolefnið rísi upp úr jarðlögunum vegna þess að það er eðlislétt. Þá kemur upp stór loftbóla koltvíoxíðs sem getur valdið köfnun. Það er því alveg ljóst að fólk vill ekki hafa þetta í bakgarðinum hjá sér. Í Danmörku og Þýskalandi hefur þegar verið sett reglugerð um að þessi holrými megi ekki vera í þéttbýli.“ Hann segir að verið sé að kort- leggja holrými sem henta í niður- dælingu um heiminn, þau séu nú allt í einu orðin verðmæt og fyrir jól í fyrra var til að mynda opnað fyrir til- boð í holrými í norskum jarðlögum sem mörg fyrirtæki sóttust eftir að vera með í. „Fyrirtæki eru farin að sjá möguleika í þessu. Þegar kemur að því að alþjóðasamfélagið setur reglur þá eru þau þegar búin að tryggja sér ákveðin svæði með þetta fyrir aug- um.“ Í neyð: kolefnisstöðuvötn og kæling með brennisteini En sú staða gæti komið upp að það þyrfti að bregðast við vánni á afar skömmum tíma. Þá segir Sigurður Reynir mikilvægt að til sé góður banki af lausnum svo hættulegasta leiðin verði ekki valin. „Þetta er alveg rosalegt, og ef ein- hverjar hamfarir fara af stað sem verður að stöðva þá fara menn að hugsa, hvað getum við gert í dag? Staðreyndin er sú að við erum ekki til- búin í dag með öll þessi svæði neðan- jarðar til að koma kolefninu fyrir í. Þá gæti þurft neyðarlausn. Til að mynda að þjappa kolefninu í stöðu- vötn á sjávarbotni. En ef einhverra hluta vegna yrði jarðskjálfti eða aðrar hræringar þá gæti þetta risið upp og þá gæti komið mikil loftbóla sem gæti valdið köfnun. Annað sem menn hafa íhug- að er að kæla jörðina með brenni- steini. Brennisteinsagnir í efri loft- lögum koma í veg fyrir inngeislun sólar. En þá er hætta á að við kælum lofthjúpinn of mikið með aðgerðum okkar. Þetta er framtíðarsýnin,“ segir Sigurður Reynir. „Það sem horfir við okkur núna er að við erum á þeysireið uppi í kolefnishringrásinni, dansinn er að herðast og hringurinn að slitna og það er fyrirséð að peningaöflin komi í veg fyrir eðlilega umræðu um þetta því hagsmunirnir eru svo miklir. Við erum bókstaflega að brenna inni á tíma. Ég sé bara í mínu verkefni að það koma alltaf upp vandamál sem þarf að laga – það þarf að vera til banki af lausnum.“ Snæddi kvöldverð með Al Gore Nú er rúmt ár síðan rannsóknar- hópurinn framkvæmdi tilraunirnar á Hellisheiði. „Við vorum með mæla- búnað og tókum upp ferlið. Það varð ofboðslega mikill fögnuður og léttir að sjá að tilraunir okkar tókust. Næsta skref var svo að sjá hvort efnahvörfin gengju eftir, sem og þau gerðu.“ En nýtur verkefnið nægs stuðnings til að halda áfram af þeim krafti sem þarf og er í takt við válega framtíðar- sýn vísindamanna? „Við vorum með rosalega góðan stuðning fyrir hrun. Þetta er auðvitað ekki bara ég. Þetta eru Háskóli Íslands og Jarðvísindastofnun, Orkuveita Reykjavíkur, Columbia-háskólinn í New York og franska rannsóknar ráðið. Hitaveita Suðurnesja og Norðurál styrktu okkur fram að hruni en helt- ust svo úr lestinni. Við höfum fengið góða styrki frá Evrópusambandinu og Norrænu ráðherranefndinni og líka orkumálaráðuneytinu í Bandaríkj- unum. Rannís hefur líka styrkt okkur eftir mætti. En eins og staðan er í dag, þá þurfum við að eyða miklum tíma og mikilli orku í að leita að stuðningi.“ Hann segir stuðninginn hafa verið ævintýralegan fyrir hrun. Forsetinn hafi verið einn af frumkvöðlunum og leitt aðila saman. „Hann hefur bæði sýnt okkur beinan og óbeinan stuðn- ing. Þetta var eiginlega ævintýralegt fyrir hrun. Roman Abramovitz og Al Gore komu hérna fyrir hrun kynntu sér verkefnið og snæddi kvöldverð með okkur. Forsetinn var ekki bara að skemmta bankamönnum, hann hefur líka reynst okkur vel þó það hafi ekki farið hátt.“ Sóknarfæri í ógn Hann bendir á að mikilvægast sé að hafa sterkan pólitískan vilja. Það þurfi að setja verðmiða á kolefnið. „Þetta getur orðið stóriðnaður. Þetta er sóknarfæri og getur jafnvel orðið jafnstór iðnaður og olíuleitin. En að- eins ef það pólitískur vilji til að setja verðmiða á kolefnið. Það verður að vera hagfræðilegur hvati. Hann getur reyndar líka komið annars staðar frá og er farinn að gera það. Sprott- inn úr neyð eins og sannaðist þegar tryggingarreikningar fóru að berast vegna náttúruhamfara og fellibylja. Íslendingar eru vel staddir, ef horft er til framtíðar, miðað við margar aðrar þjóðir. Við erum með endurnýtanlega orkugjafa sem verða verðmætari en olía þegar fram í sæk- ir og við eigum hugvit sem kem- ur að gagni, en það er lítill tími til stefnu,“ segir Sigurður Reynir og hvetur sem flesta til þess að taka þátt í umræðunni verða meðvitaða um ástandið og lesa bókina um kolefnis- hringrásina. n Reykjavík á floti Þetta er að gerast núna „Það er fyrirsjáanlegt í náinni framtíð að hægt og bítandi verða sjávarflóð sífellt alvarlegri og aftakaveður færast mjög í aukana og valda tjóni. Þetta er að gerast núna, sjór fer að ganga á land, sérstaklega þegar saman fer stórstraumur og leifar af fellibyl eins og síðasta haust.“ Hækkun sjávarstöðu í Reykjavík Hækkun sjávarstöðu getur orðið verulegt vandamál, sérstaklega þar sem land er að síga. Þetta á m.a. við um lág- svæði á höfuðborgarsvæðinu og á Reykjanesskaganum. Aðlögun að loftslagsbreytingum hefur með litlum hætti komist á dagskrá stjórnvalda á Íslandi. Á þeysireið í kolefnisbrennslu Myndin dregur saman styrk koltvíoxíðs í andrúmslofti síðustu 800.000 árin og hvert við stefnum. Ef styrkur koltvíoxíðs fer yfir 560 ppm hækkar hitastig um 3°C miðað við lofthita fyrir iðnbyltingu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.