Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2013, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2013, Qupperneq 18
18 Erlent 4.–6. janúar 2013 Helgarblað Vill ekki sjá eiginmanninn n Igor Faber lét sig hverfa fyrir nítján árum n Var úrskurðaður látinn S lóvakískur karlmaður fannst á lífi á dögunum tæpum tutt- ugu árum eftir að hann var úrskurðaður látinn. Maður- inn, Igor Faber, hvarf spor- laust eftir að hafa farið í fjallgöngu í Tatra-fjöllum skammt frá heimili sínu í Poprad í Slóvakíu árið 1993. Faber skilaði sér hins vegar ekki aftur til byggða og mikil leit að honum skil- aði engu. Nokkrum mánuðum síðar var hann úrskurðaður látinn. Það var svo í desember að kennsl voru borin á Faber í athvarfi fyrir heimilislausa í borginni Prag í Tékk- landi. Í ljós kom að hann hafði alls ekki farið í fjallgönguna á sínum tíma heldur einfaldlega yfirgefið eigin- konu sína og tvö börn þeirra til að hefja nýtt líf. „Hann átti við andlega erfiðleika að stríða og vildi byrja upp á nýtt,“ segir nákominn ættingi fjöl- skyldunnar í viðtali við breska fjöl- miðla. Eiginkona hans, Renata, var látin vita að eiginmaður hennar hefði fundist á lífi og var hún spurð hvort hún vildi taka við honum aftur og veita honum húsaskjól. Því hafn- aði hún snarlega. „Hvernig get ég tekið við honum eftir allan þenn- an tíma. Lífið heldur áfram. Börn- in eiga nú nýjan föður og ég á nýjan eiginmann,“ sagði hún við fjölmiðla og bætti við: „Hann vildi okkur ekki á sínum tíma og núna viljum við ekkert með hann hafa. Fyrst hann gat ekki látið okkur vita að hann væri heill heilsu á sínum tíma get ég ekki með nokkru móti tekið á móti honum og gert aftur breytingar á mínu lífi.“ Það lítur því út fyrir að Faber verði heimilislaus enn um sinn. n Á góðri stundu Hér sést Igor Faber með eiginkonu sinni, Renötu, fyrir margt löngu. n Yfirvöld í Gangnam í Suður-Kóreu nýta sér vinsælasta lag síðasta árs Manhattan Asíu Gangnam verði V egna hans er fólk um alla heimsbyggðina farið að þekkja hverfið okkar – fólk sem vissi jafnvel ekkert um Suður-Kóreu,“ segir Kim Kwang-soo, yfirmaður nýrrar ferðamálastofu í viðskiptahverfinu Gangnam í borginni Seúl í Suður- Kóreu. Lagið Gangnam Style með suðurkóreska rapparanum Psy var óumdeilanlega langvinsælasta lag síðasta árs og er til að mynda eina myndbandið á myndbandavefnum Youtube sem er með fleiri en einn milljarð flettinga. Eins og nafn lags- ins gefur til kynna fjallar lagið um Gangnam-hverfið sem er viðskipta- hverfi Seúl-borgar þar sem skýja- kljúfar, lúxusbílar og jakkafata- klæddir menn eru á hverju götuhorni. Yfirvöld í hverfinu ætla að nýta sér vinsældir lagsins til hins ítrasta og hafa sett saman metn- aðarfulla áætlun sem miðar að því að fjölga ferðamönnum um allt að hundrað prósent á næstu misser- um. Miðstöð afþreyingar „Psy kom í þann mund sem við vorum reiðubúnir til að kynna hverfið fyrir heimsbyggðinni,“ seg- ir Shin Yeon-hee, sem er eins kon- ar hverfisstjóri Gangnam, í við- tali við New York Times. Í febrúar stendur til að opna miðstöð ferða- manna í hverfinu sem að nokkru leyti verður tileinkuð rapparanum sem tröllreið heimsbyggðinni á ný- liðnu ári. Áætlun yfirvalda í hverf- inu miðar að því að gera það að miðstöð tísku og afþreyingar í Aust- ur-Asíu. Þá vonast yfirvöld til að fjölga ferðamönnum úr 800 þús- undum á ári hverju í tæplega tvær milljónir á næstu árum. Flestir þessara ferðamanna koma frá Jap- an og Kína en yfirvöld í Gangnam vilja fleiri ferðamenn frá Evrópu og Bandaríkjunum. „Við teljum að hverfið sé á pari við Manhatt- an í New York og Beverly Hills í Los Angeles,“ segir Shin en í Gangnam eru áhrif bandarískrar menningar þegar greinileg. „Íbúar hér geta ver- ið glysgjarnir en það öfunda allir íbúa hverfisins vegna þess að þeir eru nánast allir mjög efnaðir,“ segir Yu Jae-yung, sextán ára piltur, sem heimsótti hverfið á dögunum. Þótti góður grínisti Vinsældir lagsins komu mörgum í opna skjöldu enda voru fáir í Suður- Kóreu sem tóku Psy, sem heitir réttu nafni Park Jae-sang, alvarlega sem tónlistarmann. Hann hafði þó getið sér gott orð sem grínisti samhliða því að gefa út lög sem nutu takmark- aðra vinsælda – allavega í saman- burði við Gangnam Style. Yfirvöld í Gangnam vinna nú að stefnumótun um fjölgun ferðamanna og fara þau ekki í launkofa með að lagið verði notað til að laða að túrista. Þó svo að hverfið sé rótgróið í Seúl var það ekki fyrr en í nóvember að sérstakt tólf manna ferðamannaráð hverfis- ins var stofnað en um það leyti var Gangnam Style að slá rækilega í gegn um gervallan heim. Framkvæmdir við nýtt torg í miðju hverfisins eru hafnar og í febrúar verður ferðamannamið- stöðin opnuð formlega. Þá ætla yfir völd að safna lófaförum frægra einstaklinga um allan heim og þrykkja þeim í stétt við Hallyu Dri- ve í Gangnam. Mun gangstéttinni þannig svipa til Walk of Fame á Hollywood Boulevard sem trekkir að fjölda ferðamanna ár hvert. n Einar Þór Sigurðsson blaðamaður skrifar einar@dv.is „Við teljum að hverfið sé á pari við Manhattan í New York og Beverly Hills í Los Angeles. Gangnam-hverfið Hverfið er viðskiptamiðstöð Suður-Kóreu og þar sjást lúxusbílar á hverju götuhorni. Myndin er tekin við aðallestarstöðina í hverfinu. Mynd ReuteRs Feikivinsæll Vinsældir Psy voru miklar á liðnu ári. Hér er hann í Bangkok í lok nóvember. Yfirvöld í Gangnam-hverfinu ætla að nýta sér vinsældir lagsins til hins ýtrasta. Nýtt Falk- landseyja- stríð? Forseti Argentínu, Cristina Fern- andez de Kirchner, hefur sakað Breta um að viðhalda úreltri ný- lendustefnu og hefur opinber- lega krafist þess að Bretar skili Argentínu aftur Falklandseyjum. Forsetinn hefur áður viðrað þessa skoðun án þess þó að krefjast þessa eins harðlega og nú, en hún hefur stuðning flestra annarra ríkja í Suður-Ameríku. David Cameron, forsætisráðherra Bret- lands, hefur hafnað því alfarið að Bretar láti eyjarnar af hendi. Líkur á nýrri styrjöld vegna eyjanna eru taldar hafa aukist. Ákærðir fyrir hrottalega nauðgun Fimm manns hafa verið ákærðir fyrir að hafa nauðgað og reynt að myrða unga stúlku í strætisvagni í Delí í Indlandi um miðjan desem- ber en málið hefur vakið gríðar- lega reiði í heimalandinu og vakið heimsathygli. Stúlkan lést síðar af áverkum sínum og nú hafa fimm menn verið ákærðir fyrir verknað- inn. Einn til viðbótar er í haldi lög- reglu vegna málsins en er talinn undir lögaldri og því beðið með ákæru á hendur honum. Mikil mótmæli hafa verið í helstu borg- um Indlands vegna árásarinnar en vandamálið er stórt og hingað til hefur oft verið litið framhjá slík- um voðaverkum af hálfu lögreglu landsins. Farsímarnir í úrin Ef marka má heimildir Times og fleiri miðla er næsta tækniundur Apple-fyrirtækisins farsími í armbandsúri og rætist þar með draumur margra sem öfundað hafa teiknimyndahetjuna Dick Tracy sem notaði slíkt tæki fyrir margt löngu. Sé þetta rétt verður væntanlega um framúrstefnu- legt úr að ræða og það mun lík- lega kosta sitt eins og aðrar vör- ur fyrirtækisins. Á móti kemur að minni hætta verður á að fólk gleymi símanum hér og þar. Óljóst er hvenær fyrstu gripirnir koma á markað en fullyrt er þó að fram- leiðsla sé þegar hafin að einhverju leyti í verksmiðjum í Kína og því gætu farsímaúrin komið á mark- að næsta sumar eða haust. Apple er ekki fyrsta fyrirtækið sem reynir slíkt ef rétt er. Microsoft framleiddi slík úr og seldi fram til ársins 2008 þegar framleiðslu þeirra var hætt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.