Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2013, Page 46
46 Fólk 4.–6. janúar 2013 Helgarblað
L
eikkonan, leikskáldið og
rithöfundurinn Þórdís Elva
Þorvaldsdóttir og kærast-
inn hennar, leikarinn Víð-
ir Guðmundsson, trúlofuðu
sig um jólin. Þórdís Elva, sem
skrifaði meðal annars bókina
Á mannamáli og þýddi, ásamt
leik konunni Þóru Karitas, bók-
ina Þú afhjúpar mig sem kom út
fyrir þessi jól, birti þau tíðindi á
Facebook-síðu sinni. Þar kemur
fram að Víðir hafi farið á skelj-
arnar þann 27. desember og að
sjálfsögðu hafi hún sagt já. Þór-
dís Elva og Víðir eiga einn son
saman en Víðir á tvö börn af
fyrra sambandi.
Trúlofuðu sig um jólin
n Þórdís Elva og Víðir hamingjusöm
Ekki lEngur fEiminn
skólastrákur
n Sölvi Tryggvason mætir aftur á skjáinn
Þ
egar ég var orðinn dálítið
þurrausinn eftir að hafa
tekið 40–50 viðtöl um þung
mál rann allt í einu upp
fyrir mér hve mikið vatn
hefur runnið til sjávar síðan ég var
feiminn strákur í menntó og háskól-
anum. Sennilega hefði ég hlegið ef
einhver hefði sagt mér fyrir 10 árum
að ég ætti eftir að taka meira en þús-
und viðtöl fyrir sjónvarp,“ segir fjöl-
miðlamaðurinn Sölvi Tryggvason en
fréttaskýringa- og heimildaþættirnir
Málið, sem voru á dagskrá Skjá Eins
á síðasta ári, fara aftur í loftið næsta
mánudag. Þættirnir sem áður voru
mánaðarlega verða nú vikulega á
dagskrá í janúar og febrúar.
„Við Daníel Bjarnason og
Erlendur Sveinsson erum búnir að
vinna hörðum höndum að þessarri
seríu síðustu mánuðina. Ég hef
unnið með mörgum síðan ég byrj-
aði í fjölmiðlum, en það er á engan
hallað þegar ég segi að þessir
strákar eru sennilega þeir dugleg-
ustu sem ég hef unnið með. Það
mun vonandi sjást á þáttunum.
Við munum meðal annars fjalla
með mjög ítarlegum hætti um kyn-
ferðisbrot gegn börnum á Íslandi,
undirheimana og einelti, þannig
að maður er ekki beint búinn að
vera í Pollýönnu-leik að undan-
förnu,“ segir Sölvi.
Í þættinum um kynferðisbrot
gegn börnum kemur meðal annars
fram að það er líklegra að stelpa
í 10. bekk á Íslandi árið 2012 hafi
verið misnotuð kynferðislega en
að hún hafi reykt sígarettur. „Í þátt-
unum gómum við meðal annars
menn sem töldu sig vera að fara að
hitta 12 ára stúlku í kynferðislegum
tilgangi. Það reyndi töluvert á fag-
mennskuna þegar einn þeirra sam-
þykkti að setjast niður í viðtal. Eins
var það töluvert erfiðara að „con-
fronta“ þessa menn í raun og veru
en ég hafði gert mér grein fyrir,“
segir Sölvi sem verður einnig með
þátt um undirheimana í Reykjavík.
„Þar eiga eftir að koma fram
merkilegar upplýsingar og við
vinnum að því að ná myndefni
sem kemur til með að vekja mikla
athygli. Það eru held ég flestir
sem til þekkja sammála um að
neysla á sterkari efnum sé mun
meiri en áður í undirheimunum
og eins hafa útlendir aðilar náð
að koma sér hér fyrir með skipu-
lögðum hætti á fíkniefnamarkaðn-
um. Þeirri þróun verður ekki snúið
við héðan af og ég fullyrði að með
erlendum aðilum hefur harkan
aukist til muna. Þeir koma þá frá
löndum þar sem hlutirnir eru tölu-
vert öðruvísi en við erum vön hér
og mannslíf minna virði. Það er
ákveðinn ótti við þessa aðila bæði
hjá Íslendingum sem hingað til
hafa talist stórir í undirheimunum
og eins virðist lögreglan eiga fullt
í fangi með að kortleggja hvernig
þeir vinna. Annað sem hefur gerst
og er þessu tengt er að skotvopna-
eign hefur færst í vöxt í undir-
heimunum á Íslandi og því miður
er margt sem bendir til þess að það
sé bara tímaspursmál hvenær ein-
hver verður skotinn til bana í átök-
um sem tengjast undirheimunum.
Þannig að eftir tíu ár gætum við
horft upp á það að lögreglumenn
á Íslandi verði búnir skotvopnum
eins og þekkist erlendis, þó að það
sé auðvitað eitthvað sem enginn
vill.“ n
Harður heimur
Sölvi spáir því að
það sé aðeins tíma-
spursmál hvenær
einhver verði skotinn
til bana í undirheim-
um Reykjavíkur.
✗ Allar umsóknir skoðaðar
✗ Góðar tekjur í boði
✗ Tilvalin vinna með skóla
Vantar þig aukapening?
DV leitar eftir fólki í áskriftarsölu á kvöldin.
Umsóknir berist á johanno@dv.is
A
freksíþróttakonan og
Ólympíufarinn Ragna Ing-
ólfsdóttir á von á sínu fyrsta
barni í lok maí með unnusta
sínum, Steini Baugi Gunnars-
syni. Frá þessu segir badminton-
spilarinn á Facebook-síðu sinni.
Ragna, sem er 29 ára, hefur nú lagt
spaðann á hilluna eftir langan og
farsælan feril í badminton. Í viðtali
við DV eftir Ólympíuleikana sagðist
Ragna vera orðin leið á ferðalögum.
„Ég hef komið til allra heimsálfa
og síðustu árin hef ég dvalið meira í
útlöndum en hér heima,“ sagði hún
alsátt við að leggja spaðann á hill-
una.
indiana@dv.is
Fyrsta barnið
á leiðinni
„Í þáttunum gómum við með-
al annars menn sem töldu
sig vera að fara að hitta 12 ára
stúlku í kynferðislegum tilgangi.