Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2013, Qupperneq 48

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2013, Qupperneq 48
Fáir virðast ætla að hlaupa í spik í ár! „Þetta var reykelsi – og ég át það“ n Teitur Atlason átti ekki sjö dag- ana sæla í Svíþjóð þegar hann fékk sér smá nasl á jólanótt sem reyndist ekkert ljúfmeti en þó mjög í anda jólanna. Hann sagði frá reynslu sinni á Facebook-síðu sini. „Á jólanótt þegar allir voru sofnaðir ætlaði ég sannarlega að hafa það náð- ugt og sötra appelsín og maula lakkrís fyrir framan tölvuna. Ég opnaði pakkann og náði mér í góða lúku af því sem ég taldi vera hámark nostalgískrar bragð-upplifun- ar en … því miður. -Þetta var reykelsi … Og ég át það.“ Egill saknar gömlu bensínstöðvanna n „Einu sinni var sá tími að bensín stöðvar voru nokkuð flott- ar,“ segir sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason í rómantískum pistli um fegurð og glæsileika bensín- stöðva sjötta áratugar síðustu aldar. „Borgin er gjörsamlega út- bíuð í bensínstöðvum frá níunda áratugnum,“ segir Egill, sem birt- ir gamla mynd af bensínstöðinni við Birkimel. Af lýsingum Egils að dæma var hún betri en bensín- stöðvar nútímans: „Konan er glæsi- leg, með uppsett hár, en bens- ínafgreiðslu- maðurinn er í sérstökum búningi og með kask- eiti.“ „Svolítið kryddað“ n „Mér fannst þetta svolítið kryddað. Ég hef aldrei lagt í stæði fyrir fatlaða og ég hef aldrei talað illa um kvenfólk,“ sagði landsliðs- fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson í samtali við fótboltavefinn fot- bolti.net á fimmtudag. Aron svar- aði þar meðal annars fyrir atriði í áramótaskaupinu þar sem hann var tekinn fyrir. Aron vakti athygli í sumar þegar hann lét miður fal- leg ummæli falla um albönsku þjóðina fyrir leik í undankeppni HM. Aron iðr- aðist orða sinna og sagði í sam- tali við fotbolti. net að hann hefði alveg búist við því að verða tekinn fyrir. „… ég hafði gaman af þessu, ég hef húmor fyrir sjálf- um mér þó þetta hafi verið mistök sem ég gerði.“ Þ að er útlit fyrir svipaða þátt- töku og í fyrra. Ekkert lát er á gönguæðinu,“ segir Páll Ás- geir Ásgeirsson, einn leið- sögumanna í 52 fjalla klúbbi Ferða- félags Íslands, aðspurður hvort stefnan væri tekin á 52 fjöll í ár, líkt og gert hefur verið undanfarin ár. Fullt hús, yfir 100 manns, voru á kynningarfundi Ferðafélagsins á á dögunum. „Þetta verður í megin- atriðum svipað og þetta verkefni á árinu sem er að líða.“ Hann segir að minniháttar breytingar verði gerðar á skipulaginu. Páll Ásgeir segir að hópurinn hafi verið góður og að um 85 pró- sent þeirra sem skráðu sig til leiks hafi mætt nokkuð vel yfir allt árið. „Það hefur verið reynsla okkar undanfarin ár að það eru svona 85 prósent af þeim sem skrá sig í upp- hafi árs sem halda nokkuð góðri mætingu, það hefur verið svipað á þessu ári,“ segir hann. Hóparnir sem tekið hafa þátt í 52 fjalla verkefnunum eru breið- ir og segir Páll Ásgeir að sumir séu byrjendur og aðrir hafi reynslu. „Það er mjög gaman að fá að taka þátt í því að hjálpa fólki í gegn- um jákvæðar breytingar í lífi sínu,“ segir hann. „Þetta er í flestum til- fellum einhvers konar lífsstíls- breyting. Stundum er fólk að taka aftur upp þráðinn eftir að hafa tek- ið sér hlé og stundum er fólk líka bara að byrja; að reyna að gera þetta að nýju áhugamáli.“ „Ekkert lát á gönguæðinu“ n Hundrað manns sóttu kynningarfund nýja 52 fjalla hópsins Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 4.–6. jAnúAr 2013 1. tbl. 103. árg. leiðb. verð 659 kr. Smá breytingar Páll Ásgeir segir að smávægilegar breytingar verði gerðar á því á hvaða fjöll verði gengið árið 2013. Mynd róbErT rEyniSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.