Fréttatíminn - 30.10.2015, Síða 2
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
ré
tt
t
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
Netverð á mann frá kr. 59.900 m.v. 2 í herbergi.
Sevilla
6. nóvember í 3 nætur
ST
ÖK
KT
U
Frá kr. 59.900
m/morgunmat
Hitamælirinn
Þeim félögum Einari K. Guðfinnssyni,
forseta Alþingis, og Sigmundi Davíð Gunn-
laugssyni forsætisráðherra tókst ekki
betur upp en svo við heimsókn Davids
Cameron í Alþingishúsið að breski fáninn
sneri öfugt þegar hann ritaði nafn sitt í
gestabók þingsins. Ætla má að þó heim-
sóknin hafi að öðru leyti verið ágætlega
heppnuð muni þetta klúður ekki gleymast.
Leikur á móti Ben Kingsley
Leikkonan Hera Hilmarsdóttir mun leika
eitt aðalhlutverkanna í spennumyndinni
An Ordinary Man þar sem mótleikari
hennar verður Óskarsverðlaunahafinn
Ben Kingsley. Hera leikur þjónustustúlku
sem myndar tengsl við eftirlýstan stríðs-
glæpamann sem er í felum.
27.000
heimili á Íslandi eru með Netflix-áskrift
ef marka má könnun Gallup sem gerð var
fyrir Viðskiptablaðið. Samskonar könnun
var gerð fyrir 20 mánuðum og síðan
hefur áskrifendum fjölgað um 4,9%
Verðbólgan komin í 1,8%
Vísi tala neyslu verðs hækkaði um 0,07%
í októ ber og er verðbólga, mæld á tólf
mánaða tíma bili, 1,8%
29.192
inn flytj end ur voru á Íslandi um síðustu
ára mót eða 8,9% mann fjöld ans. Það er
fjölg un frá því í fyrra þegar þeir voru
8,4% lands manna, alls 27.445.
60%
af heildarveltu
matvöruverslana
á Íslandi er hjá
verslunum Haga, Hagkaup og Bónus.
Verslanir Kaupáss, Krónan og Nóatún,
eru með 23% veltunnar og Samkaup um
17%. Viðskiptablaðið greinir frá.
Haftaafnám Skilyrði Sem föllnu bankarnir þurfa að uppfylla
Nær 500 milljarða stöðugleikaframlag
G reiðslur sem renna munu beint eða óbeint í ríkissjóð vegna stöðugleikaframlags
föllnu bankanna nema nærri 500
milljörðum króna, að því er fram
kom á fundi fjármálaráðherra og
seðlabankastjóra fyrr í vikunni.
Þar var greint frá skilyrðum sem
föllnu bankarnir þurfa að uppfylla
til að fá að gera nauðasamninga og
fá undanþágu frá gjaldeyrishöftum.
Heildarráðstafanir gagnvart slita-
búnum nema 856 milljörðum króna.
Stöðugleikaframlagið nemur 491
milljarði og rennur til ríkisins en
getur farið upp í 599 ef virði eigna
hækkar, auk annarra ráðstafana.
Stöðugleikaframlag Glitnis nemur
229 milljörðum króna, Kaupþings
127 milljörðum og LBI 23 milljörð-
um.
Fram kom hjá seðlabankastjóra
að gjaldeyrisforði þjóðarinnar yk-
ist um 40 milljarða og skuldastaða
þjóðarbúsins yrði um 10 prósent af
landsframleiðslu á næsta ári en hún
nemur um þriðjungi í dag.
Sveinn Valfells í Indefence hópn-
um telur, að því er fram kom í frétt
RÚV, að vandinn sé að hluta óleyst-
ur, honum verði hliðrað fram í tím-
ann. Markmiðið hafi verið að koma
í veg fyrir óæskileg áhrif þegar
krónueignir föllnu bankanna færu
úr landi við losun hafta. Þeim fyr-
irsjáanlega vanda hafi einungis ver-
ið frestað. „Vandinn er skilgreindur
upp á 815 milljarða,“ sagði Sveinn í
viðtalinu, „hins vegar eru slitafram-
lögin ekki upp á nema 379 milljarða,
eftir virðast standa 400 milljarðar
af krónueignum sem kunna að fara
úr landinu og hafa þannig neikvæð
áhrif á íslensku krónuna og rýra
kaupmátt á Íslandi.“
Bjarni
Bene-
diktsson
fjármála-
ráðherra
greinir
frá skil-
yrðunum.
Mynd/Hari
Algjört
klúður
Allt í
himnalagi
Skorað á Guðrúnu að
bjóða sig fram til forseta
Framboðið er
skrifað í skýin og ég
er strax komin með
hugmynd að vef-
síðu; kjör.is
Skorað hefur verið á Guðrúnu Hafsteinsdóttur, markaðsstjóra Kjöríss og formann Samtaka
iðnaðarins, að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands. Nokkur hundruð manns hafa stutt
áskorunina á Facebook en það er Guðlaugur Aðalsteinsson hugmyndasmiður sem er upphafs-
maður áskorunarinnar og honum er fúlasta alvara.
m ér finnst hún alveg til-valin og ég veit að það finnst það fleirum,“ seg-
ir Guðlaugur Aðalsteinsson, hug-
myndasmiður hjá auglýsingastof-
unni Brandenborg, aðspurður um
áskorunina. „Hún fór nú bara að
hlæja þegar ég nefndi þetta við
hana en mér er fúlasta alvara. Ég
þekki hana því við vinnum fyrir
Kjörís þar sem hún er markaðs-
stjóri og svo er hún reyndar líka
formaður Samtaka iðnaðarins svo
hún er ekki beint atvinnulaus. Ég
hef lengi unnið með henni og fékk
þessa flugu í höfuðið fyrir dálítið
löngu síðan.“
Framboðið er skrifað í skýin
En af hverju Guðrún?
„Í fyrsta lagi er hún ótrúlega hæf
og með mikla reynslu, talar fjögur
tungumál og hefur búið erlendis.
En svo er hún bara svo góð mann-
eskja. Heiðarleg, hugmyndarík,
dugleg og gengur í öll störf. Hún
er svo mikið alvöru, er úr sveit og
klæðir sig alltaf upp í skautbún-
ing á 17. júní og svo er hún dóttir
stofnanda Kjöríss. Hún er heldur
ekki þessi týpíski pólitíkus. Það
þekkja hana ekki margir og þess
vegna henti ég þessu á Facebook í
Guðrún Hafsteinsdóttir er menntuð
í mannfræði en hefur alla sína tíð
unnið í Kjörís, fjölskyldufyrirtækinu
í Hveragerði. Hún hefur starfað sem
formaður Samtaka iðnaðarins frá
því í mars 2014. Guðrún er gift Ólafi
Ólafssyni, sölustjóra hjá HB Granda.
Þau eiga saman þrjú börn, Hafstein,
Dagnýju Lísu og Hauk. Fjölskyldan
fluttist búferlum til Þýskalands árið
1998 og bjó þar í fimm ár. Í dag býr
fjölskyldan í Hveragerði.
forSetaframboð formaður Samtaka iðnaðarinS á beSSaStaði?
bríaríi en ef ég kem þessu í 10.000
læk þá verður hún að taka þessu al-
varlega,“ segir Guðlaugur og bætir
því við að þetta framboð sé í raun
skrifað í skýin. „Ég er strax komin
með hugmynd að vefsíðu; kjör.is“
Horfir ekki svo hátt til
skýjanna
„Guð minn almáttugur! Ég veit ekki
hvort þetta er grín eða alvara,“ segir
Guðrún hlæjandi aðspurð um áskor-
unina og er greinilega ekki með
hugann við Bessastaði. „Það er til
svo mikið af hæfu fólki sem gæti
orðið góðir forsetar og ég er ekki
ein af þeim! Ég er í öðrum störf-
um og horfi ekki svona hátt upp til
skýjanna.“
Ólafur Ragnar Grímsson var kjör-
inn forseti árið 1996 og hefur því
setið fimm kjörtímabil, eða 20 ár
á næsta ári. Næst verður kosið um
nýjan forseta í lok júní 2016. Ýmsir
hafa verið nefndir sem mögulegir
frambjóðendur, þeirra á meðal
Ragna Árnadóttir, Jón Gnarr, Berg-
þór Pálsson, Páll Óskar Hjálmtýs-
son, Halldóra Geirharðsdóttir og
Andri Snær Magnason.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
2 fréttir Helgin 30. október-1. nóvember 2015