Fréttatíminn - 30.10.2015, Page 6
Afgreiðslutími
Mán. til fös. frá kl. 10–18
Laugardaga frá kl. 11–16
www.dorma.is
Holtagörðum
512 6800
Dalsbraut 1, Akureyri
558 1100
REST heilsurúm
MEIRA Á
dorma.is
COMFORT heilsurúm
• Svæðaskipt poka-
gormakerfi
• Burstaðir stálfætur
• Sterkur botn
• 320 gormar pr fm2
• Góðar kantstyrkingar
• Svæðaskipt poka-
gormakerfi
• Burstaðir stálfætur
• Sterkur botn
• 320 gormar pr fm2
• Steyptar kantstyrkingar
• Inndraganlegur botn
• 2x450 kg lyftimótorar
• Tvíhert stál í burðargrind
• Hliðar- og enda stopparar
• Hljóðlátur mótor
• Viðhaldslaus mótor
Aðeins 123.675 kr.
Nature’s
Comfort
heilsudýna með
Classic botni.
Stærð: 180x200 cm.
Fullt verð: 164.900 kr.
25%
AFSLÁTTUR
af 100 x 200 cm á meðan
birgðir endast.
Aðeins 54.675 kr.
Nature’s
Rest heilsu-
dýna með
Classic botni.
Stærð: 100x200 cm.
Fullt verð: 72.900 kr.
25%
AFSLÁTTUR
af 180 x 200 cm á meðan
birgðir endast.
STILLANLEGT HEILSURÚM
með Shape heilsudýnu
SHAPE
B Y N AT U R E ’ S B E D D I N G
Dormaverð
Stærð cm. Shape og
C&J silver
2x80x200 349.900
2x90x200 369.900
2x90x210 389.900
2x100x200 389.900
120x200 199.900
140x200 224.900
Við eigum afmæli
og nú er veisla
Það er oft
þannig að
eldra fólk
sem er
á leið úr
stórum sér-
býlum og
vill minnka
við sig þarf
af borga
með sér.
Þá finnst
manni
oft vera
vitlaust
gefið.
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
Hiti yfir frostmarki og nokkuð Hvöss
sa-átt. rigning annað slagið.
Höfuðborgarsvæðið: Skýjað og Smá
væta, einkum framan af.
Hæglætisveður og að mestu þurrt.
frystir um kvöldið.
Höfuðborgarsvæðið: Hægviðri og
Sól með köflum.
Hvessir af sa með rigningu þegar
kemur fram á daginn.
Höfuðborgarsvæðið: SlagveðurSrigning
yfir miðjan daginn.
lægðir á ferð
– vænlegur laugardagur
Sýnishornaveður er það kallað af sumum
þegar breytingar í veðri eru mjög tíðar,
stundum nokkrar á dag. ómögulegt er að
rekja allt það sem verður í gangi næstu
daga hjá okkur. lægðir fara hjá og inn í þeim
verða aðrar minni lægðir! Í
stórum dráttum hægir vindinn
á landinu á laugardag og styttir
upp, þó ekki um allt land. frystir
víða um kvöldið. Hlýnar aftur á
sunnudag þegar skilum hrað-
fara lægðar er spáð úr suðri og
þá með slagveðursrigningu,
fyrst sunnanlands.
5
5 4
3
6
1
2 2
3
3
6
3 -2
-3
5
einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
Þ að sem heillar við þetta húsnæði er að þetta er sérbýli á einum vinsælasta stað borgarinnar,“ segir Gústaf Adolf
Björnsson, fasteignasali hjá Fasteignasölunni
Fold, um uppgerðan bílskúr sem var á sínum
tíma breytt í atvinnuhúsnæði en hefur nú
verið breytt í íbúðarhúsnæði. Umrædd eign er
við Víðimel og uppsett verð er 39,9 milljónir.
Húsnæðið sjálft telur 92,1 fm en því fylgir
bílskúr og herbergi í fjölbýlishúsinu sem bíl-
skúrinn tilheyrði upphaflega. Samanlagður
fermetrafjöldi er 139,2 sem þýðir að fermetr-
inn selst á 350.000 en það er meðalverð á fer-
metra í Vesturbænum. Fasteignamatið er 25.3
milljónir. Húsnæðið er skráð sem atvinnu-
húsnæði en eigandi stefnir á að fá það flokkað
sem vinnustofu.
uppgerðar íbúðir alltaf dýrari
Húsnæðið var selt fyrir ári á 30 milljónir og
hefur því hækkað um 10 milljónir á einu ári.
Gústaf segir það vera vegna endurbótanna en
auk þess fari verð almennt hækkandi. „Það
ræðst auðvitað bara af viðbrögðum mark-
aðarins hvort það verð sem upphaflega er
sett á fasteign heldur sér. Tíminn mun leiða
það í ljós hvert endanlegt söluverð verður.
Fasteignaverð í Vesturbænum er hátt, það er
auðvitað breytilegt eftir götum og íbúðum
og eftir því hvort við erum að tala um íbúð
frá byggingarárinu og sem er upprunaleg,
eða hvort við erum að tala um íbúð sem
hefur verið tekin alveg í gegn, eins og á við í
þessu tilfelli, það er alltaf dýrara. Þetta hús-
næði hefur verið tekið í gegn frá A til Ö, bæði
lagnir, gluggar og innréttingar, þarna er allt
glænýtt.“
unga fólkið vill ekki stór hús
Gústaf segir ekki vera mikið framboð af eign-
um á þessu svæði og því fái nýjar eignir alltaf
sterk viðbrögð. Nálægðin við þjónustu, vinnu-
staði og háskólasvæðið heilli sérstaklega.
Hann segir að almennt sárvanti millistórar
íbúðir á markaðinn, ekki bara í Vesturbæinn,
og því sé slegist um þær. „Það er ákveðið
ójafnvægi á markaðinum því fermetraverðið
á minni íbúðum sem eru miðsvæðis er mun
hærra en á stórum einbýlishúsum í úthverf-
unum. Fjögurra herbergja íbúðir eru að fara á
um 40 milljónir en sérbýlin í úthverfunum eru
að fara á rúmar 50 milljónir. Það er oft þannig
að eldra fólk sem er á leið úr stórum sérbýlum
og vill minnka við sig þar af borga með sér. Þá
finnst manni oft vera vitlaust gefið. En unga
fólkið í dag hefur ekki jafn mikinn áhuga á
stórum eignum, það er dýrt að reka þær og
ungu fólki hugnast það ekki eins og staðan er
í dag. Markaðurinn kallar á minni eignir.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Húsnæðismál markaðurinn Hrópar á minni eignir
Uppgerður bílskúr í
Vesturbæ á 40 milljónir
Bílskúr í vesturbæ reykjavíkur, sem síðar varð atvinnuhúsnæði og hefur nú verið breytt í íbúðarhús-
næði, er til sölu á 39,9 milljónir. gústaf adolf Björnsson fasteignasali segir verðið fylgja markaðinum
og töluverðan áhuga vera á eigninni, enda um sérbýli á vinsælasta stað borgarinnar að ræða. Hann
segir markaðinn hrópa á minni eignir, unga fólkið í dag hafi ekki áhuga á því að reka stór hús.
fermetraverð í fjölbýli
vesturbær innan Hringbrautar og Snorrabrautar 382.000
melar og Hagar 351.000
Sjáland, garðabæ 350.000
Hlíðar 315.000
Salir, kópavogur 310.000
mosfellsbær 284.000
rimar 278.000
grafarholt 276.000
Hraun, Hafnarfjörður 238.000
Seljahverfi 232.000
fermetraverð í sérbýli:
miðbær vestan Snorrabrautar 360.000
Seltjarnarnes 311.000
reykjavík sunnan miklubrautar (Seltjarnarnes að
reykjanesbraut) 295.000
lindir, Smára og Salir, kópavogur 288.000
grafarholt 276.000
miðbær norðan Snorrabrautar 259.000
Seljahverfi 232.000
Heimild: Þjóðskrá
Það er ekki oft
sem lítil sérbýli
í vesturbænum
koma á markað-
inn. Húsnæðið
telur bílskúr,
uppgerða við-
byggingu sem í
dag er skráð sem
atvinnuhúsnæði,
og aukaherbergi
í fjölbýlishúsinu
sem bílskúrinn
tilheyrði upp-
haflega.
Ljósmynd/Hari
6 fréttir Helgin 30. október-1. nóvember 2015