Fréttatíminn


Fréttatíminn - 30.10.2015, Side 10

Fréttatíminn - 30.10.2015, Side 10
Það er þetta fólk sem notar deili- hagkerfið hvað mest og sérstaklega vettvanga þar sem hægt er að búa til peninga, eins og td. Airbnb.“ Hvað vakti áhuga þinn á deilihag- kerfinu? „Mér fannst deilihagkerfið geta verið stór þáttur í að hraða fyrir breytingum í átt að betri heimi, sem ég lýsi í Plenitude, því það vek- ur áhuga fólks á því að vinna minna og lifa með minni innkomu. Mér finnst líka áhugavert hvað margir vettvanganna sem bjóða upp á að deila eru til þess gerðir að minnka ójöfnuð, þó þeir séu það alls ekki allir.“ Hvernig hafa rannsóknir þínar á lífsstíl fólks haft áhrif á þitt eigið líf? „Ég hef gert ýmislegt til batn- aðar í gegnum árin. Ég veit ekki nákvæmlega hversu marga tíma á viku ég vinn, en það er vegna þess að ég vinn aldrei of mikið. Ég tek mér alltaf frí um helgar og líka stundum á virkum dögum. Hér áður fyrr kenndi ég alltaf á mánudögum sem þýddi að sunnudagurinn fór í að undir- búa tímana, en núna kenni ég á þriðjudögum! Ég geng í vinn- una, ég er vegan, ég bý í húsi sem notar ekki mikla orku og allar endurbætur eru grænar; sjálfbær viður, engin eiturefni og staðbund- in framleiðsla. Ég hef ekki enn komið mér upp rútínu á neinum deilivettvangi en það er planið að auka það.“ Nú átt þú tvö börn. Hvernig elur þú þau upp til að verða meðvitaðir neyt- endur? „Við ákváðum að sleppa sjón- varpi á heimilinu og við borðum ekki skyndibita. Mér finnst það hafa verið mjög góðar ákvarðanir.“ Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Í bók þinni Plenitude frá árinu 2011 lýsir þú því hvernig róttæk-ar lífsstílsbreytingar gætu breytt lífi okkar til frambúðar. Þú teiknar upp mynd af lífi sem snýst frekar um að búa til tíma heldur en peninga og þar sem tíminn nýtist til að rækta andann og tengsl við annað fólk. Hvert er fyrsta skrefið í þessa átt og er þetta yfir höfuð mögulegt? „Já, þetta er mögulegt ef fólk ákveður það. Það góða við lífsstíls- breytingar er að það þarf ekki að umturna heilu samfélögunum í einu lagi heldur byrja þær inni á heimil- unum, með litlum ákvarðanatökum. Við stjórnum lífi okkar sjálf, en ekki fyrirtækin í landinu eða ríkisstjórn- in. En auðvitað eru takmörk fyrir því hvað lífsstílsbreytingar geta gert fyrir samfélagið. Þess vegna þurfum við að setja lög og reglur sem hraða breytingum til hins betra. Til dæmis með mengunarsköttum sem gera samfélög staðbundnari, vinnutíma- löggjöf, sem styttir vinnudaginn svo hægari lífsstíll og minni neysla sé möguleg, og með því að ríkið bjóði upp á almenna grunnþjónustu sem auðveldar fólki að lifa og minnkar áhyggjur af daglegu streði,“ segir Juliet Shchor, félagsfræðingur við Harvard og Boston College. Sumir myndu kalla hugmyndir þínar útópískar. „Félagsfræðingar hafa verið að nota orðið „raunverulegar útópíur“. Það eru breytingar sem eru mögu- legar og sem yrðu til þess að bæta líf og heilsu almennings. Módelið sem ég byggi í Plenitude er raun- veruleg útópía. Við höfum séð lífs- stílsbreytingar á borð við þær sem ég lýsi, þar sem fólk vinnur minna og á því meiri tíma með sjálfu sér og til að deila með öðrum, gerast í litlum samfélögum. Ég ritstýrði ný- lega bók þar sem var fjallað um slíkt dæmi í franska héraðinu Aude. Og sum þeirra róttæku samfélaga sem nú spretta í Bandaríkjunum líkjast módelinu sem ég lýsi í bókinni.“ Þú talar um mikilvægi þess að deila hlutum, bæði til að minnka fram- leiðslu og þannig álag á jörðina, en líka sem leið til að auka samskipti, sem séu, auk aukins tíma, oft það sem Tímabankar og deilihagkerfi eru skref í átt að betri heimi Juliet Shchor, félagsfræðingur við Harvard og Boston College, hefur skrifað fjölda bóka um áhrif neyslusamfélagsins á líf okkar. Hún segir róttækar hugmyndir sínar um að fækka vinnustundum til að eiga meiri tíma og minnka neyslu vera framkvæmanlega útópíu sem ekki aðeins geri okkur hamingjusamari heldur líka jörðina sjálfa, sem við séum að missa frá okkur vegna ofneyslu. Juliet, sem er vegan, á ekki sjónvarp og vinnur aldrei um helgar, er með fyrirlestur í Háskóla Ís- lands í dag, föstudag, á vegum Landverndar og Félagsvísindastofnunar HÍ. Bækur Juliet True Wealth, 2011 Plenitude, 2010 Born to buy, 2004 Sustainable Planet, 2002 The consumer society, 2002 Do Americans shop too much?, 2000 The overspent American, 1998 The overworked American, 1992 Juliet Schor var prófessor við Harvard í 17 ár en kennir í dag við Boston College auk þess að sinna ritstörfum. Hún flytur erindi um deilihagkerfið í dag, föstudag, og að því loknu verða pallborðsumræður. Það eru Félagsvísindastofnun, Landvernd og Háskóli Íslands sem bjóða til fyrirlestrarins en deilihagkerfið hefur verið kynnt sem lausn við neyslusamfélaginu með tilliti til umhverfisáhrifa og félagslegra gæða. Ljósmynd/Hari ýtir fólki út í frumkvöðlastörf. „Algjörlega. Minni tími í vinnu þýðir meiri tími til að gera hluti sem veita okkur ánægju sem ekki bara bætir líf okkar heldur verður líka til þess að við höfum meiri tíma til að gera hluti sem eru ekki hluti af almenna hagkerfinu, eins og til dæmis að rækta garðinn okkar eða sauma, en líka til að hugsa, sem oft- ar en ekki verður til þess að vekja í okkur frumkvöðulinn og hvatning til að búa til peninga á nýjan og um- hverfisvænni hátt.“ En enda litlu frumkvöðlafyrirtækin sem starfa innan deilihagkerfisins ekki eins og önnur fyrirtæki? Eru fyrirtæki á borð við Airbnb og Uber raunverulega nýir valkostir? „Það er hægt að markaðsvæða allt og fyrirtæki innan deilihag- kerfisins eru ekki undanskilin því, en DIY-hreyfingin (do it yourself / gerðu það sjálf/ur) er frábær hreyf- ing sem er í miklum uppgangi í Bandaríkjunum. Allskonar skap- andi fólk er að gera frábæra hluti og stofna fyrirtæki sem eru ekki hluti af risakeðjum. Í bókinni minni True Wealth tek ég til dæmis bjórbrugg- ara, garðyrkjufólk, saumastofur og smíðaverkstæði sem dæmi um fyr- irtæki sem bjóða upp á góðan val- kost við til dæmis mengandi stór- fyrirtæki. Það eru spennandi tímar í loftinu.“ En hvað finnst þér vera gott dæmi um fyrirtæki innan deilihagkerfisins? „Ég er hrifin af stöðum þar sem þú getur mætt og búið til þína hluti og eins mörkuðum þar sem fólk skiptist á mat og fötum. Svo er ég er mjög hrifin af tímabönkum, þeir eru alveg málið í dag. Það eru sam- tök þar sem fólk gerist meðlimur og þar sem er svo hægt að bjóða fram einhverskonar þjónustu. Gildi þess sem þú býður fram er ekki mælt í peningum heldur tíma, tímanum sem fer í að framkvæma þjónustuna, þannig að nýi gjald- miðillinn er tími. Tíminn sem þú hefur eytt í verk er færður til bók- ar og hver meðlimur er með sinn „reikning“, svo bara safnar þú tíma og eyðir honum í aðra þjónustu og allur tími er metin til jafns. Það eru allskonar hlutir í boði í bankanum, umsjá barna eða eldri borgara, elda- mennska, skutl á milli staða, hver- skyns handa- og iðnaðarvinna, leið- sögn, lögfræðiþjónusta, kennsla og svo framvegis. Það getur verið erfitt að finna mjög hálaunuð störf eins og forritun og eins að finna tíma hjá iðnaðarmönnum því þeir eru svo eftirsóttir, en þetta er frábær val- kostur sem virkar og sem skapar á sama tíma samfélag jöfnuðar.“ Af hverju eru samfélög og fyrirtæki á borð við þessi að spretta upp núna? Er þetta afleiðing kreppu og atvinnu- leysis eða er fólk að fá leið á gamla vinnumódelinu? „Ég tel þetta vera samspil margra þátta. Kreppan hefur mikil áhrif og í Bandaríkjunum er mikið atvinnu- leysi. Mörg þessara deiliverkefna byrjuðu eftir 2007 og hafa svo mörg hver fest sig í sessi. Mikið af ungu fólki skuldar háar fjárhæðir, í náms- lán eða húsnæðislán og atvinnu- tækifærin eru ekki á hverju strái. 10 fréttaviðtal Helgin 30. október-1. nóvember 2015

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.