Fréttatíminn - 30.10.2015, Blaðsíða 36
Litabókin
tekur við af púslinu
Hönnuðurinn og badmintonmeistarinn Elsa Nielsen gaf nýlega út sína þriðju barnabók sem
nefnist Vinabókin. Áður höfðu bækurnar Knúsbókin og Brosbókin komið út sem ætlaðar eru
fyrir yngstu kynslóðina. Einnig gaf Elsa á dögunum út litabók fyrir fullorðna sem nefnist Íslensk
litadýrð. Hún segir hugmyndina hafa sprottið út frá sínum eigin teikningum og telur það mjög
róandi og styrkjandi að lita eina mynd á dag.
V inabókin er þriðja bókin í röðinni og nú er þetta orðin sería,“ segir Elsa Nielsen
hönnuður. „Ég var að vinna með
Jónu Vilborgu sem gerir þetta
með mér á auglýsingastofu fyrir
nokkrum árum. Hún er íslensku-
fræðingur og sér um skrifin og bað
mig um að vera með sér í þessari
útgáfu og gera myndirnar, og ég
er mjög þakklát fyrir það,“ segir
hún. „Þetta er búið að vera mjög
skemmtilegt ferli síðustu þrjú ár.
Þessi fyrsta gekk svo vel og við
fengum tilnefningu til Íslensku
bókmenntaverðlaunanna, svo við
ákváðum að halda bara áfram,“
segir Elsa.
Myndir fyrir alla
Elsa byrjaði um síðustu áramót að
teikna eina mynd á dag, sem hún
birti á Instagram undir myllumerk-
inu #einadag. Upp frá þessu upp-
átæki fékk hún þá hugmynd að búa
til litabók fyrir fullorðna. Bókin
heitir Íslensk litadýrð og er hugsuð
fyrir fullorðna til dægrastyttingar,
þó Elsa segir alla geta litað. „Þetta
vatt upp á sig og vinkona mín gaf
mér litabók sem hún fékk erlendis
frá,“ segir hún. „Þetta heillaði mig
mjög og ég ákvað að búa til svona
bók fyrir fólk sem hafði áhuga. Þá
var ekki þetta litabókaæði komið
sem er vinsælt í dag. Þetta er svo
mikil hugarró og þetta er mjög
góð leið til þess að koma sér út úr
þessum hraða tölvuheimi sem allir
eru í,“ segir Elsa.
„Börnin fara ósjálfrátt að lita
með manni sem gefur manni mikla
gæðastund. Þetta trélitaverkefni
varð til þess að allir í kringum mig
fóru bara að lita og sálfræðingar
eru farnir að mæla með þessu gegn
kvíða og andlegri vanlíðan. Þetta
er mjög gott fyrir heilann og skynj-
unina. Myndirnar eru misjafnar
en allir eiga að geta litað. Ekkert
endilega bara fullorðnir,“ segir
hún. „Það eru líka flóknar myndir í
bland. Dætur mínar, sem eru 8 og
12 ára, eru mjög heillaðar af þessu.
Það er mikið af fólki sem er byrjað
að lita, sem hefur ekkert gert af því
svo ég held að þetta sé komið til
að vera. Þetta er örugglega svipað
og púsluspilin í gamla daga,“ segir
Elsa. „Það er samt hægt að ferðast
með litabókina með sér og grípa í
hvar sem er.“
Líf í Smáralindina
Verslunarmiðstöðin Smáralind
byrjaði á dögunum með verk-
efni þar sem íslenskir listamenn
skreyta Smáralindina. Elsa var
fengin til þess að vera fyrst í
röðinni og um þessar mundir
hanga myndir hennar í verslunar-
miðstöðinni. „Þetta eru fletir sem
hanga uppi á efri hæðinni og ég
er fyrsti listamaðurinn sem fæ
þetta verkefni,“ segir hún. „Þetta
eru 14 myndir sem eru komnar
upp núna og þetta er myndvinnsla
sem ég hef unnið með, bæði tengt
bókunum og vinnu minni sem graf-
ískur hönnuður. Þetta eru svart-
hvítar myndir sem ég set smá lit
í og líf, og þær eiga að lífga upp á
Smáralindina. Þetta stendur í ein-
hvern tíma þar til næsti listamaður
fær að taka við,“ segir hún. „Ég
veit að þessar myndir standa eitt-
hvað fram á næsta ár og þetta er
skemmtilegt verkefni.“
Keppnisskapið fer aldrei
Elsa er margfaldur Íslandsmeistari
í badminton og telja titlarnir hátt í
tuttugu talsins. Hún keppti tvisvar
fyrir Íslands hönd á ólympíuleikum
og var um árabil í landsliði Íslands
í greininni. Hún lagði spaðann á
hilluna fyrir nokkrum árum, en
á dögunum tók hún þátt í heims-
meistaramóti öldunga og vann
brons. Hún er þó ekki hrifin af
því kalla þetta „öldungamót.“ „Við
fórum gamli landsliðshópurinn á
þetta mót sem haldið var í Svíþjóð í
september,“ segir hún. „Ég keppti í
einliðaleik sem ég hef ekki gert og
það gekk svona líka vel og ég fékk
brons. Mér finnst hræðilegt samt
að kalla þetta öldungamót,“ segir
Elsa og hlær.
„Það er erfitt að hætta í þessu
sporti og maður losnar greinilega
aldrei við þetta keppnisskap. Við
hittumst alltaf tvisvar í viku og
það er enn mikil keppni í þessu
hjá okkur. Þetta var samt svaka-
lega skemmtilegt og aldrei að vita
hvort maður fari aftur. Ef maður
er heill þá á maður að láta vaða,
það er bara þannig,“ segir Elsa.
„Ég er búin að vera í þessu lengur
en hálfa ævina og það er ekkert
hægt að hætta bara. Þetta er líka
mjög félagslegt. Ég er tapsár, en
það stendur stutt yfir. Ég hef samt
aldrei farið að grenja,“ segir Elsa
Nielsen hönnuður.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
„Það er erfitt að
hætta í þessu sporti
og maður losnar
greinilega aldrei við
þetta keppnisskap,“
segir Elsa Nielsen.
Ljósmynd/Hari
KRINGLUNNI 2. HÆÐ | HAGKAUPSHÚSINU, SKEIFUNNI
| SPÖNGINNI, GRAFARVOGI | SMÁRALIND, 1 HÆÐ.
UMGJARÐADAGAR
Í PROOPTIK
Fullt verð: 19.900,-
TILBOÐSVERÐ Á UMGJÖRÐ:
1 kr. við kaup á glerjum
Opin Kerfi // Höfðabakka 9 // 110 Reykjavík // 570 1000 // ok.is
Láttu okkur
prentreksturinn.
sjá um
40% minni prentarar
Hagkvæmari prentun
Öruggari prentun
Auðkenning
40% hraðvirkari prentarar
Sími: 5 700 900 - prooptik.is
Skráðu þig í netklúbbinn okkar á prooptik.is og
þú færð 25% afslátt af linsum í öllum verslunum Prooptik
25% afsláttur af linsum
í netklúbbnum okkar!
36 viðtal Helgin 30. október-1. nóvember 2015