Víkurfréttir - 15.12.2011, Blaðsíða 8
8 FIMMTudagurInn 15. dESEMbEr 2011 • VÍKURFRÉTTIR
Anna Lóa Ólafsdóttir skrifar
Hamingjuhornið
Líkt og meirihluti íslensku þjóðarinnar er ég meðlimur
á Fésbókinni og finnst gaman að nýta mér þessa tækni
til að tengjast og fylgjast með. Ég hef áttað mig á að
maður veit harla lítið ef maður er ekki tengdur þarna
inn. Nú er sá tími ársins sem við verðum flest aðeins
mýkri sem þýðir fallegar jólakveðjur og óskir um bjart-
ari framtíð með blóm í haga. En alla jafna eru FB með-
limir duglegir að setja jákvæðar athugasemdir á síður
sínar og annarra, gefa hrós, þakka fyrir liðnar stundir
og margt fleira sem gefur lífinu lit.
Ég varð fyrir þannig reynslu í vikunni
og hún verður mér eftirminnileg. Ég
var að flakka á Fb og fór inn á síðuna
hjá einni góðri vinkonu en þar var
hún með eftirfarandi status: Kæru
vinir, þetta er fallegasta manneskjan
sem ég hef fyrir hitt, svo ljúf og góð
og falleg að innan sem utan. Á eftir
þessari setningu kom svo linkur á
síðu og viti menn, það var síðan mín.
Ég var orðlaus, fannst henni virkilega
svona mikið til mín koma og svo voru 12 manns (sem ég
þekkti ekki neitt) búnir að líka við færsluna. Þar að auki voru
nokkrar fallegar athugasemdir frá fólki og fannst mér pínu
skrýtið að flestar gengu þær út á að þakka vinkonunni fyrir.
Mér fannst það merkilegt, fólk var að þakka henni fyrir að
benda á hvað ég var falleg að innan sem utan! Ég hugsaði
mikið um hvort ég ætti að skrifa þakklætisbréf til þessarar
vinkonu minnar því mér þótti svo vænt um þetta en ákvað
að bíða með það þangað til daginn eftir. Ég fór að sofa
með þakklæti í hjarta og hugsaði hversu einlægt fólk væri
nú orðið á þessum síðustu og verstu. Ég kíkti aftur inn á
Fb þegar ég vaknaði og sá að aðdáendum mínum hafði
fjölgað mikið, fleiri voru búnir að líka við statusinn og ein
hafði skrifað: ég fæ nú bara tár í augun!
Mér fannst þetta allt einstaklega yndislegt en var svolítið
hissa á því að ég þekkti engan af þessum einstaklingum
sem voru að lýsa ánægju sinni með þetta. gat verið að
það væru svo margir þarna úti sem fannst ég svona svaka-
lega falleg, jafnt að innan sem utan, og táruðust jafnvel yfir
því! Ja hérna hér, ég hef greinilega vanmetið mig! Ég var
hugsi yfir þessu og þegar ég er í þannig ástandi þá hringi
ég gjarnan í systur mína. Ég segi henni frá þessari reynslu
minni og spyr hana í leiðinni hvernig hún mundi bregðast
við, átti ég að senda þakkarbréf í innhólfið hjá vinkonu
minni eða átti ég að svara statusnum á síðunni og þakka
öllu þessu frábæra ókunnuga fólki, hlý orð í minn garð og
lofa í leiðinni að ég ætlaði að reyna að standa mig sem þessi
fallega manneskja áfram.
Stund sannleikans rann upp þegar systir segir þessi orð:
anna Lóa mín, ég held að þú sért aðeins að misskilja þetta.
auðvitað ertu falleg að innan sem utan en málið er að þetta
er ein af þessum viðbótum á Fb sem þýðir að þegar þú
smellir á linkinn sem fylgdu þessum fallegu orðum kemur
síðan ÞÍn upp, en gerir það sama hjá öllum öðrum. Þannig
að ef ég fer inn á síðu vinkonu þinnar og smelli á þennan
sama link þá birtist ég, litla systir þín, sem þessi fallega
kona að innan sem utan ........allir sem smella á hann fara
beint inn á síðuna sína (sem skýrir af hverju ég þekkti ekki
þá sem líkaði svona stórkostlega við mig og þekktu mig
samt ekki neitt). Sem sagt, vinkona mín var að segja öllum
vinum sínum að þeir væru fallegir að innan sem utan, ekki
bara mér!
Á einu augabragði fannst mér ég hvorki falleg að innan sem
utan, bara kjáni. Svo kom hláturinn, og honum fylgdu tárin
og endorfínflæðið náði hæstu hæðum. Systir mín hafði sjálf
lent í svipuðu og kannaðist því við þetta og hló með mér.
Eftir á að hyggja var þetta frábært og mér finnst tilgang-
inum náð – í 12 tíma var ég á bleiku skýi og fórnarlamb
sjálfhverfu á hæsta stigi, en svo tók við heilsusamlegt
hláturskast og vellíðan og ég er ekki frá því að mér finnist
ég pínulítið fallegri, að innan sem utan. Mér finnst Fésbókin
frábær.
Rún vikunnar er Íss:
Vertu þolinmóður, þetta er tímabil aðgerð-
arleysis og nauðsynlegur undanfari endurfæð-
ingar. gefðu eftir og vertu rólegur því nýtt fræ er
þegar til staðar í hýði hins gamla, fræ nýrra
möguleika, fræ hins góða.
Þangað til næst - gangi ykkur vel
Anna Lóa
Þú ert falleg
- að innan sem utan!
›› Grindavík:
Kveikt á jólatrénu í Grindavík
Kveikt var á jólatré Grindavíkurbæjar á Landsbankatúninu á dög-unum í blíðskaparveðri en enginn lét það á sig fá þótt kalt hafi
verið í veðri. Yngri kynslóðin var dugleg að mæta enda beið ungviðið
spennt eftir hver þeirra jólasveinabræðra myndi mæta á svæðið. Að
þessu sinni var það Hurðaskellir sem mætti með látum!
Bryndís Gunnlaugsdóttir forseti bæjarstjórnar flutti ávarp og tendraði tréð
og nemendur úr Tónlistarskóla Grindavíkur spiluðu nokkur lög í tilefni
dagsins. En Hurðaskellir átti svæðið og hann tók nokkur hressileg jólalög
og endaði að sjálfsögðu á uppáhaldslagi jólasveinanna, Ég sá mömmu
kyssa jólasvein!
Vel á þriðja hundrað manns fjölmenntu í Kirkjulund, s a f n a ð a r h e i m i l i Ke f l av í k -urkirkjku á sunnudag og hlustuðu
á tvenna jólatónleika til styrktar
orgelsjóði kirkjunnar. Eftir þrjú
ár eða 2015 mun Keflavíkurkirkja
fagna eitthundrað ára afmæli og
vonast aðstandendur hennar að
þá verði hægt að vígja nýtt orgel
og hvíla það gamla sem kom frá
Austur-Þýskalandi á sínum tíma.
Kórastarf í Keflavíkurkirkju hef-
ur aldrei verið jafn öflugt og sinn-
ir nú stór hópur fólks þessum
þætti innan kirkjunnar auk þess
sem smærri kórar og sönghópar
hafa orðið til undir stjórn Arnórs
Vilbergssonar, organista kirkjunn-
ar. Þessi stóri hópur söng jólalög
í kirkjunni en gestir þeirra voru
krakkar í kór Holtaskóla í Kefla-
vík. Þar er líka öflugt söngstarf
og sungu krakkarnir bæði ein og
með kirkjukórnum og gerðu það
af stakri prýði undir stjórn Guð-
bjargar Þórisdóttur. Með söng-
fólkinu var fagfólk sem allt tengist
Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og
lék undir söngnum á fiðlur, flautur,
bassa og trommur að viðbættum
píanóleik organistans.
Bítlabærinn stendur svo sannarlega
undir nafni sem tónlistarbær því
tónleikarnir voru frábærir þar sem
jólaandinn sveif yfir vötnum og
þeim lauk með því að allir sungu
saman Heims um ból.
Meðfylgjandi myndir voru teknar í
Kirkjulundi.
Frábærir jólatónleikar í Kirkju-
lundi til styrktar orgelsjóði