Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.12.2011, Page 21

Víkurfréttir - 15.12.2011, Page 21
21VÍKURFRÉTTIR • FIMMTudagurInn 15. dESEMbEr 2011 Afgreiðslustæði fyrir flugvélar við flugstöð Leifs Eiríkssonar með tengibrúm eru 11 og útistæði 3, samtals 14 stæði. Flestir flugrek- endur kjósa hins vegar að fá af- greiðslu á sama tímabili snemma að morgni og síðdegis en einnig er nokkuð um áætlunar- og leiguflug um miðnættið á sumrin. Björn Óli segir þetta skapa mikið ójafnvægi í nýtingu mannvirkjanna og leiddi til þess að taka varð upp úthlutun fastra afgreiðslutíma við flugstöð- ina. „Með aukinni umferð eykst álag- ið á ofangreindum tveimur álags- tímum enn frekar. Nærtækasta lausnin er sú að dreifa álaginu út fyrir mesta annatímann en takist það ekki verður að grípa til annarra ráðstafana. Gerð fleiri flugvéla- stæða við flugstöðina og viðeig- andi afgreiðslumannvirkja er þó afar kostnaðarsöm og tryggt verður að vera að um viðvarandi umferð- araukningu sé að ræða áður en gripið er til þessa ráðs. Vel er fylgst með þróun þessara mála og hag- kvæmar lausnir sífellt í skoðun. Ljóst er þó að stækkun flugvall- armannvirkja er flókið og tímafrekt verkefni sem tekur a.m.k. tvö til þrjú ár að hrinda í framkvæmd. Ekki er nóg að fjölga flugvélastæð- um heldur verður jafnhliða að auka alla afkastagetu við flugafgreiðslu í flugstöðinni svo sem innritun og öryggisskimun farþega, flokkun og öryggisskimun farangurs, o.m.fl. sem þarfnast aukins húsrýmis og tækjabúnaðar.“ Allmikilli farþegaaukningu er spáð á næstu árum og hafa eftirfarandi ráðstafanir sem áætlað er að grípa til á komandi sumri verið kynnt- ar flugvallarnotendum. Áætlað er að nota tvö flugvélastæði á flug- stöðvarsvæðinu sem notuð eru til afgreiðslu á flutningaflugvélum einnig fyrir farþegaflug og verða þá alls 16 stæði í notkun við flugstöð- ina. Gerðir verða nýir inngangar á flugstöðvarbygginguna ásamt tilheyrandi biðsölum til afgreiðslu á flugfarþegum sem fluttir verða með rútum til og frá útistæðunum. Notkun útistæða er algeng á sam- bærilegum flugvöllum í nágranna- löndunum og til lengri tíma litið er unnt að fjölga útistæðum enn frekar. Undirbúningur fyrir þessar ráðstaf- anir er kominn vel á veg en end- anleg útfærsla liggur þó ekki fyrir. Farþegafjöldi í mikilli sókn. Um 2 milljónir fara um Keflavíkur- flugvöll árlega og spáð er áframhaldandi stöðugri aukningu: 18% aukning 2011 Um 2 milljónir farþega fara um Keflavíkurflugvöll árlega. Á þessu ári nam aukningin frá síðasta ári 18% og spáð er 7,5% aukningu farþega á næsta ári og frekari aukningu á næstu árum. „Þó svo núverandi flug- stöðvarmannvirki geti annað 3,5 milljónum farþega á ári með dreifðri notkun yfir daginn er þegar farið að huga að stækkun og fjölgun flug- vélastæða, sem þarf að eiga sér stað á næstu árum. Innan nokkurra ára þarf að stækka flugstöðvarmannvirkið verulega með stórri viðbygg- ingu. Hún verður þó ekki eins íburðamikil og þegar ný viðbygging var vígð 2008. Við þurfum að gera þetta á eins hagkvæman hátt og hægt er,“ segir Björn Óli Hauksson þegar hann er spurður út í hina miklu farþegaaukningu til Íslands að undanförnu og hvaða þýðingu það hafi fyrir rekstur flugstöðvarinnar næstu árin. Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia segir áframhaldandi farþegafjölgun kalla á verulega stækkun flugstöðv- armannvirkisins innan fárra ára. Verslunar- og veitinga- staðasvæðið í flugstöðinni er sífellt betur sótt, bæði af útlendingum og Íslendingum.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.