Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.12.2011, Page 26

Víkurfréttir - 15.12.2011, Page 26
26 FIMMTudagurInn 15. dESEMbEr 2011 • VÍKURFRÉTTIR stigana endalausa og þar séu menn alltaf tengdir í línu. Reglan sé líka að vera alltaf með hjálm og alltaf með stáltá. Hann segir erfitt að vera með öryggisgleraugu við þessar að- stæður þar sem þau séu móðugjörn en þegar unnin er vinna sem þeirra er krafist, þá sé enginn afsláttur gefinn. Starfsmennirnir sem nú eru við störf í námunni eru aðallega Græn- lendingar sem starfa hjá verktaka- fyrirtæki sem heitir EMJ, sem er stærsta verktakafyrirtæki Græn- lands. Einnig eru á svæðinu sviss- neskir verktakar við uppsetningu á kláfnum. Erfitt og flókið verkefni Uppsetning á kláfnum er erfitt og flókið verkefni. Vírinn fer frá 13,5 metrum yfir sjávarmáli og upp í 720 metra og á milli endapunkta eru 2,2 kílómetrar. Samtals verða settir upp 6 vírar á þessari leið. Sverasti kapallinn er 70 mm sver en lengdarmetrinn er 220 kg. Mikil einangrun Þegar Haraldur var beðinn um að útskýra lífið í Marmorilik sagði hann að á svæðinu væri mikil einangrun. Mannskapurinn væri fastur í búðunum í sex vikur í senn og stundum væru veður á svæðinu þannig að grínast væri með það að lífið væri eins og á Litla Hrauni. Á haustin er allra veðra von á svæðinu þegar fyrsti snjórinn fer að falla. Þegar vetrarfrosthörkurnar byrja verður ástandið betra því á þessum slóðum er mikið háþrýstisvæði í veðurfarinu og þá verður þar al- gjört logn en gríðarlega kalt. Við þessar aðstæður frýs fjörðurinn og þá er algjörlega treyst á þyrluna. Meðvitaður um hvítabirni Aðspurður um dýralífið á svæðinu, þá segir Haraldur vera talsvert líf. Hann er að sjá snæhéra og refi í miklu magni. Þarna sjást einnig rjúpur og gæsir. Í fjöllunum má sjá sauðnaut og á svæðinu er þekkt gönguleið fyrir ísbirni á milli fjarða rétt fyrir ofan okkur. Síðasta vetur sáum við bjarnarspor en hann hefur ekki ennþá komið í búðirnar. „Við erum með sorphauga þarna skammt frá og vitum að þeir hafa verið að stelast í haugana,“ segir Haraldur. „Við þurfum stöðugt að vera á varðbergi gagnvart bjarn- dýrum. Ef við förum í göngu frá búðunum þá þarf athyglin að vera í lagi, því þeir geta verið á bak við næsta hól“. Haraldur segir að þeir séu vel vopnaðir til að verjast bjarndýrum en bendir á að þegar upp er staðið séu ísbirnir örugglega hræddari við menn en menn við birnina. Nokkuð af sel hefur sést á ísnum á firðinum. Haraldur segir það slæmt, því ísbirnir sæki í staði þar sem selurinn sé á. Allir séu 100% sáttir - Hvað segir svo fjölskyldan heima á Íslandi yfir svona ævintýra- starfi? „Þetta er ekki hægt nema að hafa stuðning frá fjölskyldunni. Það skiptir öllu að allir séu 100% sáttir vegna sálarlífsins þegar komið er út og fyrir fjölskylduna heima. Hann segir konuna sína vera mjög sátta“. Haraldur hóf störf í námunni í byrjun þessa árs og réði sig fyrst til eins árs. Hann hefur nú framlengt ráðningarsamninginn um annað ár. Fyrirtækið sem Haraldur vinnur hjá heitir Angel Mining en það hefur sóst eftir því að fá Íslendinga til að sinna öryggismálum í sínum námum. Auk námunnar í Svarta englinum er fyrirtækið með gull- námu á Suður-Grænlandi. Þar er Ragnar Hafsteinsson, fyrrverandi slökkviliðsmaður á Keflavíkurflug- velli, við störf. Þar grefur fyrirtækið eftir gulli og silfri en í Svarta engl- inum verður unnið Zink. Dýpið í höfninni 3 kílómetrar Öll aðföng koma annað hvort með skipi eða flugi. Skip koma tvisvar á ári, þegar ekki er ís á firðinum. Dýpið við bryggjuna ætti að duga öllum skipum, því dýpið 2 metra frá bakkanum er þrír kílómetrar! Það sem ekki kemur með skipum er flutt á staðinn með þyrlum. Á staðnum er síðan allt vatn hreinsað, því jarðvegurinn á svæðinu er svo ríkur af málmum að vatnið er ekki drykkjarhæft. Tölvuleikir og kvikmyndir í frístundum Spurður um hvað gert sé í frí- stundum, segir Haraldur að hann hafi aldrei verið mikið fyrir að spila tölvuleiki fyrr en hann fór þarna út. Þá tekur hann einnig mikið af kvik- myndum og er að eyða miklum tíma í að klippa það efni saman í tölvu á staðnum. Þá er hann einnig búinn að horfa á allar sjónvarps- þáttaseríur sem hann hefur komist yfir frá fyrsta til síðasta þáttar. Í þessu starfi skiptir miklu máli að vera í góðu formi enda eru það átök að fara upp og niður stigana í fjallinu. Þá daga sem ekki er farið í fjallið er nauðsynlegt að fara í rækt- ina. Eina vikuna var ekki hægt að fara í fjallið í heila viku og það tók því verulega á að hafa ekki hreyft sig nóg þá viku, segir Haraldur. Dýrmæt reynsla Haraldur segir að sú reynsla sem hann öðlist í Grænlandi eigi eftir að nýtast honum þegar hann kemur til baka í björgunarstörfin á Íslandi. Hann segir þetta vera mikla línu- björgunarvinnu og þeir félagar hafi sótt námskeið hjá dönsku fyrirtæki sem hafi þjálfað þá upp í þeirri vinnu. Þeir séu báðir komnir með góðan grunn í fjallabjörgun. Video frá vinnusvæði Haraldar á vef Víkurfrétta um jólin! Marmorilik í Uummannaqfirði á vesturströnd Grænlands, langt fyrir norðan hinn byggilega heim. Félagarnir Haraldur og Ingvi á þyrlupallinum utan í hlíðum Svarta engilsins í 748 m.y.s. Haraldur með neyðartöskuna. Þyrlan í baksýn og handan við sjóinn má sjá viðlegukantinn þar sem dýpið er þrír kílómetrar 2 metra frá landi. Uppi í fjöllunum ofan við búðirnar í Marmorilik hafa námumenn afdrep í fjallahúsi til að komast í annað um- hverfi. Hér er lent í nágrenni þess. Unnið í námuopinu þar sem undir- stöðum undir kláfinn er komið fyrir. Án þyrlunnar væri lítið hægt að gera í Svarta englinum. Hér er verið að koma fyrir nýjum stiga í fjallinu. OFURHUGA ATVINNA FYRIR

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.