Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.12.2011, Síða 35

Víkurfréttir - 15.12.2011, Síða 35
35VÍKURFRÉTTIR • FIMMTudagurInn 15. dESEMbEr 2011 Krossmóa 4 - Reykjanesbæ - Sími 424 6464 FATNAÐUR FYRIR KONUR OG BÖRN Fyrstu jólaminningarnar? Man ekki hvað ég var gamall en ég átti þá heima í húsi í Garðinum sem hét Akurgerði, tveggja her- bergja hús með litlu anddyri og kompu. Þó að fjölskyldan væri ekki efnuð, var samt reynt að gera þetta allt eins hátíðlegt og hægt var. Ég hafði fengið leikfangariffil í jólagjöf og plastvörubíl frá Reykjalundi. Var þetta mikið notað og átti ég t.d. leikfangariffilinn lengi, lengi. Jólahefðir hjá þér? Skata á Þorlák, hangiket sett strax í pott þegar búið var að sjóða skötuna og börnin hafa svo alltaf skreytt jólatréð um kvöldið. Fór oft hér áður fyrr á Hafnargöt- urölt en nenni því ekki núna. Svo er alltaf lambakjöt á að- fangadag og hangiket á jóladag. Kalkúnn svo um áramótin. Ertu duglegur í eldhús- inu yfir hátíðirnar? Já, kjellinn sér bara um alla elda- mennsku fyrir aðfangadag og gamlársdag. Þá er ég einráður í eldhúsinu og vil helst að enginn sé að þvælast fyrir mér. En svo eftir matinn þykir mér alltaf gott að ganga frá….matarborðinu og leyfa öðrum fjölskyldumeðlimum að sjá um uppvaskið. Svo erum við hjónin bara samtaka um elda- mennsku aðra daga yfir hátíð- irnar, jafnt sem aðra daga ársins. Uppáhalds jólamyndin? Christmas Vacation með Chevy Chase og svo er Miracle on 34th Street alltaf í uppáhaldi hjá mér og Christmas Carol eftir Dickens er alltaf toppurinn. Uppáhalds jólatónlistin? White Christmas með Bing Crosby í aðdraganda jóla, einnig Hvít jól og svo Sissel Kyrkjebö, Glade Jul, á Þorlák og aðfangadag. Þessir diskar klikka ekki. Hvar verslarðu jólagjafirnar? Aðallega þar sem þær eru ódýrast- ar en kaupi alltaf jólabókina fyrir frúna í Bókabúðinni í Keflavík, þó hún sé undir nafni Eymundsson í dag. En við reynum að dreifa þessu sem mest, stundum er búið að kaupa eitthvað í jólagjöf í septem- ber, en oftast er þetta nú afgreitt í desember, bæði í Reykjavík og hér á Suðurnesjum. Allt í mat- inn kaupum við þó hér heima. Gefurðu mikið af jólagjöfum? Ekkert svo rosalega, reynum frekar að hafa þær fáar en þá í veglegri kantinum. Kaupum stundum eitthvað sem allir í fjölskyldunni geta notið. Ertu vanafastur um jólin, eitt- hvað sem þú gerir alltaf? Já, þetta er allt í föstum skorð- um, ekkert vesen, höldum okkur yfirleitt heimavið, förum stundum í bíó þegar einhverjar stórmyndir eru í boði. Svo fáum við okkur alltaf heitt súkkulaði á jóladags- morgun og það er voða vinalegt þegar við erum að sötra súkkul- aðið á náttfötunum með börn- unum. Svo förum við alltaf í jóla- kaffi til vina okkar á annan í jólum. Besta jólagjöf sem þú hefur fengið? Besta jólagjöfin hverju sinni er að fá að vera í faðmi fjölskyldunnar. En það er svo með jólagjafir eins og börnin, maður á erfitt að gera upp á milli þeirra, þetta er aðallega hugurinn sem gildir, en yfirleitt þykir mér gaman að fá bækur tengdar listum og menningu. Hvað langar þig í jólagjöf? Ég er eiginlega ekki búinn að finna hana ennþá, það verður örugglega EKKI spjaldtölva, þó að einhver verslun sé að reyna að telja fólki trú um að hún sé jólagjöfin í ár. En mér þykir gott að fá góða bók, ekki skáldsögu endilega, heldur einhverjar góðar handbækur, listir, fræðibækur og þessháttar. Hvað er í matinn á aðfangadag? Lambaket að hætti húsbónd- ans með brúnuðum og sætum kartöflum, ásamt salati og til- heyrandi. Er einhver „game“? Eftirminnilegustu jólin? Þegar ég lá veikur á aðfangadag, gat hvorki etið né drukkið og missti af öllum herlegheitunum. Rankaði við mér á annan í jól- um. Þó að þetta hafi ekki verið skemmtilegustu jólin, þá man ég alltaf eftir þessum jólum, því að ég hafði aldrei verið veikur um jól áður. Þetta hafa verið jólin 1993. Svo fór ég árið 1985 í jólatúr með Grundarfossi Eimskipafélags Ís- lands til Írlands, Skotlands og Englands. Fyrstu og einu jólin sem ég hef ekki verið heima hjá mér. Það var ekkert gaman! JÓLA HVAÐ? Bragi Einarsson „Mér þykir gott að fá góða bók, ekki skáldsögu endilega, heldur einhverjar góðar handbækur, listir, fræðibækur og þesshátt- ar,“ segir myndlistarmaðurinn og kennarinn Bragi Einarsson úr Garði sem svarar hér nokkr- um skemmtilegum spurn- ingum í aðdraganda jólanna. Góða bók Eins og endranær var líf og fjör á uppskeruhátíð útgáfufyrirtæk-isins Geimsteins þessi jólin, en hátíðin hefur verið haldin fyrsta fimmtudaginn í desember svo lengi sem elstu menn muna. Á því var engin breyting þetta árið og tónlistarmenn á vegum útgáfunnar tróðu upp á skemmtistaðnum Ránni fyrir fjölda gesta sem skemmtu sér vel. Ljósmyndari Víkurfrétta smellti af nokkrum myndum af mannlífinu. Margt um mann- inn hjá Geimsteini Óskum Suðurnesjamönnum öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða. Gleðileg jól

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.