Fréttablaðið - 04.02.2016, Síða 4
Solla stirða
st. 3/4 ára
FRÁBÆRT VERÐ
2.999
v.á 4.999
Íþróttaálfur
st. 3/4 ára
Töfrahetja
st. 3/4 - 5/6 ára
Töfrahetja
st. 3/4 - 5/6 ára
skipulagsmál Fjórar tillögur
komust áfram í annað þrep í hug-
myndasamkeppni um Kársnesið í
Kópavogi sem sjálfbæra líftaug.
„Með því að taka inn þær nýju og
fersku hugmyndir sem fram koma
í tillögunum tel ég að við tryggjum
að uppbygging sem framundan er á
Kársnesi verði vel heppnuð,“ segir
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í
Kópavogi.
Nítján tóku þátt í Kársness-sam-
keppninni sem er á vegum Nordic
Built Cities. Það er verkefni sem
fyrst og fremst er ætlað að efla
nýsköpun og samkeppnishæfni
Norðurlandanna. Kársnes var
valið til þátttöku í fyrra ásamt fimm
öðrum þéttbýlissvæðum á hinum
Norðurlöndunum. Fram kemur
í tilkynningu frá Kópavogsbæ að
Nordic Built Cities leggi áherslu
á að tillögurnar leiði til nýjunga
í vöru eða þjónustu sem mætti
mögulega nota til útflutnings frá
Norðurlöndunum.
Allar tillögurnar gera ráð fyrr brú
frá Kársnesi yfir Fossvog til Reykja-
víkur enda er sú tenging bæði í
aðalskipulagi Kópavogs og höfuð-
borgarinnar. Þór Sigfússon, fram-
kvæmdastjóri Íslenska sjávarklas-
ans, sem er formaður dómnefndar í
samkeppninni, sagði í ávarpi þegar
tillögurnar fjórar voru kynntar í
gær, að ekki gerðu sér allir grein
fyrir möguleikum Kársness eftir að
Fossvogurinn hefði verið brúaður.
Meðal hugmynda í tillögunum
má nefna sundlaug úti á Fossvogi
og sporvagna.
„Það er lyftistöng fyrir bæinn að
vestast á Kársnesinu verði til hverfi
þar sem atvinnulíf og íbúðarbyggð
blandast saman og möguleikar til
fjölbreyttrar útivistar eru nýttir til
fulls. Þá munu lífsgæði íbúa svæð-
isins aukast verulega þegar brú yfir
Fossvog tengir Kársnes við Reykja-
vík,“ segir Ármann bæjarstjóri.
Þeir fjórir keppendur sem eftir
eru fá nú frest til 22. maí til að skila
inn tillögum í næsta þrepi keppn-
innar. Í júní mun síðan dómnefndin
velja eina tillögu sem verður send
utan í lokakeppni Nordic Built
Cities.
Tillögurnar fjórar fá nú 150 þús-
und norskar krónur, sem svarar til
tæplega 2,3 milljóna króna, í verð-
laun. Sömu upphæð fá keppend-
urnir síðan eftir að 2. þrepi er lokið
í maí auk þess sem sigurvegarinn þá
fær 250 þúsund norskar krónur til
viðbótar.
Vinni viðkomandi síðan heildar-
keppnina bíða aðrar 500 þúsund
norskar krónur í verðlaun. Sam-
tals verða því verðlaun fyrir sigur-
vegarann í lokakeppninni 1.050.000
norskar krónur sem svarar til ríflega
15,7 milljóna króna.
gar@frettabladid.is
Fjórir keppa áfram á Kársnesi
Sundlaug úti á Fossvoginum og sporvagn eru meðal hugmynda í tillögum sem komust áfram í samkeppni
um skipulag á Kársnesi. Hluti af keppni á Norðurlöndunum þar sem lokaverðlaun eru 15,7 milljónir króna.
Viðskipti Landsbankinn hafnar því
sem fram kemur í Skjóðunni, pistli
sem ritaður er undir nafnleynd í
Markaðinum í gær, að bankinn
hafi selt Setbergslandið í Garða-
bæ á vildarkjörum til handvalinna
kaupenda.
Segir Landsbankinn að Hömlur,
dótturfélag Landsbankans, hafi aug-
lýst eignina til sölu í fjölmiðlum. Í
janúar hafi Hömlur tekið tilboði
í landið með fyrirvörum af hálfu
kaupenda. Kaupendur hafi ekki
staðið við tilboðið og eignin því
boðin aftur til sölu. Annað tilboð
hafi borist í árslok 2015 og sé eignin
nú seld. Yfirlýsinguna má lesa í heild
á Vísi. – jhh
Athugasemd frá
Landsbankanum
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, lýsti ánægju með tillögur í hugmyndasamkeppni um Kársnesið.
Fréttablaðið/anton brinK
Landsbankinn segir að
upplýsingar um að Setbergs-
landið væri til sölu hafi legið
fyrir opinberlega í um tvö ár
áður en það var selt.
Það er lyftistöng
fyrir bæinn að
vestast á Kársnesinu verði til
hverfi þar sem atvinnulíf og
íbúðarbyggð blandast saman.
Ármann Kr. Ólafsson
bæjarstjóri í Kópavogi
Heilbrigðismál Myglusveppur
greindist í húsnæði göngudeildar
BUGL við Dalbraut í byrjun síðasta
árs og hafa framkvæmdir staðið yfir
án þess að náðst hafi að koma í veg
fyrir vandann. Í síðustu viku var
starfsmönnum sent bréf þar sem
tilkynnt var að takmarka þyrfti
starfsemi göngudeildarinnar eftir
að fleiri starfsmenn veiktust.
Samkvæmt upplýsingum frá
Landspítalanum eiga níu starfs-
menn erfitt með að vera í húsnæði
göngudeildar vegna myglutengdra
einkenna. Í heildina hafa þó tíu til
fimmtán starfsmenn á BUGL fundið
fyrir einkennum síðustu misseri,
mismiklum á hverjum tíma.
Enginn er þó fjarverandi frá vinnu
til lengri tíma þessa dagana vegna
myglu „en það koma upp dagar þar
sem einkenni eru svæsnari og þá
er starfsmaður frá vinnu, til dæmis
einn í fyrradag og tveir í gær,“ segir
Anna Dagný Smith, mannauðsráð-
gjafi kvenna- og barnasviðs.
Þeim starfsmönnum, sem ekki
geta unnið vegna einkenna sem
tengjast myglu, hefur verið útveguð
starfsaðstaða tímabundið í öðru
húsnæði Landspítala. Fréttablaðið
hefur einnig rætt við starfsmann sem
getur eingöngu verið í litlum hluta
húsnæðisins og mætir því hvorki á
starfsmannafundi eða í mötuneyti.
Þessa dagana eru framkvæmdir á
fullu á þeim stöðum þar sem mygla
og rakaskemmdir hafa greinst, segir
í svari Landspítala. Stór hluti eldra
húsnæðis BUGL hefur nú þegar
verið tekinn í gegn og starfsemi
þar því „að mestu hnökralaus“. Á
göngudeild er aftur á móti eingöngu
bráðaþjónustu sinnt. Nýjum málum
hefur verið frestað, hópar felldir
niður og eingöngu bráðamálum
sinnt þar til ráðin verður bót á hús-
næðisvandanum. – ebg
Tíu til fimmtán starfsmenn BUGL hafa veikst af myglusvepp
3
starfsmenn BUGL voru frá
vinnu síðustu tvo daga.
angela Merkel
Þýskalands-
kanslari
Þýskaland Angela Merkel, kanslari
Þýskalands, hefur undanfarið þrýst á
Vladimír Pútín, forseta Rússlands, að
nýta áhrif sín meðal aðskilnaðarsinna
í austurhluta Úkraínu til að tryggja
frið á svæðinu og leysa úr átökum sem
þar eru. Frá þessu greindi talsmaður
kanslarans í gær.
Eiga leiðtogarnir tveir að hafa átt
langt samtal í gegnum síma í gær.
Degi fyrr fundaði Merkel með forseta
Úkraínu, Petró Porosjenkó, í Berlín. Á
fundinum sagði Merkel þurfa aukið
öryggi fyrir íbúa Austur-Úkraínu,
áframhaldandi vopnahlé og aukið
aðgengi fyrir alþjóðleg samtök til að
hjálpa fólki í neyð. Enn fremur sagði
Merkel ekki standa til að draga úr við-
skiptaþvingunum gegn Rússum. – þea
Merkel setur
pressu á Pútín
4 . f e b r ú a r 2 0 1 6 f i m m t u d a g u r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
0
3
-0
2
-2
0
1
6
2
2
:4
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
5
C
-2
3
C
0
1
8
5
C
-2
2
8
4
1
8
5
C
-2
1
4
8
1
8
5
C
-2
0
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
3
_
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K