Fréttablaðið - 04.02.2016, Blaðsíða 10
sviss Þessa dagana standa yfir í Genf
viðræður um átökin í Sýrlandi, þar
sem fulltrúar bæði stjórnar og
stjórnarandstöðu eiga að reyna
að finna lausnir, og hafa til þess
stuðning frá Sameinuðu þjóðunum,
Bandaríkjunum, Rússlandi, Evrópu-
ríkjum og fleiri löndum.
Harðar loftárásir stjórnarhersins
og Rússa á borgina Aleppo hafa þó
komið þessum viðræðum í uppnám.
Á þriðjudaginn neituðu fulltrúar
uppreisnarmanna að mæta til við-
ræðnanna vegna loftárásanna.
Þetta eru fyrstu meiriháttar loft-
árásir stjórnarhersins á borgina
síðan í haust, þegar Rússar hófu
loftárásir sínar á svæði uppreisnar-
manna í Sýrlandi.
Bandaríkin hafa skorað á Rússa að
hætta loftárásum á meðan friðartil-
raunir standa yfir, en Sergei Lavrov,
utanríkisráðherra Rússlands, segir
það ekki koma til greina fyrr en
hryðjuverkahópar hafa verið brotn-
ir á bak aftur.
Staffan de Mistura, sendifulltrúi
Sameinuðu þjóðanna gagnvart
Sýrlandi, segir vel geta farið svo að
ekkert verði úr viðræðunum, að því
er Reut ers-fréttastofan hefur eftir
honum í viðtali sem birt var á sviss-
nesku sjónvarpsstöðinni RTS. Það
yrði hins vegar afdrifaríkt.
„Ef þetta mistekst núna eftir
að við reyndum tvisvar með ráð-
stefnum í Genf, þá verður engin
von eftir fyrir Sýrland. Við verðum
að reyna af öllum mætti að tryggja
að þetta mistakist ekki,“ sagði hann
í viðtalinu. – gb
Bandaríkin hafa skorað á
Rússa að hætta loftárásum á
meðan friðartilraunir standa
yfir, en Sergei Lavrov, utan-
ríkisráðherra Rússlands,
segir það ekki koma til
greina að óbreyttu.
Viðræður í uppnámi
vegna loftárása
Rústir eftir loftárásir í borginni Aleppo í Sýrlandi. FRéttAblAðið/EPA
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | WWW.VR.IS
Hefur þú áhuga á að
starfa í forystu VR?
• Um er að ræða annars vegar sjö sæti í stjórn og þrjú til vara.
Skri fleg meðmæli 15 félagsmanna þarf vegna einstaklingsframboðs
til stjórnar og varastjórnar.
• Hins vegar er um að ræða listaframboð fyrir 41 sæti í trúnaðarráð.
Til að listi vegna trúnaðarráðs sem borinn er fram gegn lista stjórnar
og trúnaðarráðs VR sé löglega fram borinn þarf skri fleg meðmæli 300
félagsmanna sem og skrifl egt samþykki frambjóðenda á listanum.
Framboðsfrestur er til kl. 12:00 á hádegi föstudaginn
12. febrúar 2016. Framboðum og framboðslistum skal skilað
til kjörstjórnar á skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7.
Frambjóðendum er bent á www.vr.is, þar sem eyðublöð vegna fram
boða eru aðgengileg og ítarlegri upplýsingar birtar um framboð til
stjórnar og trúnaðarráðs. Kjörstjórn VR veitir einnig frekari upplýsingar
í síma 510 1700 eða með tölvupósti til kjorstjorn@vr.is.
Samkvæmt 20. gr. laga VR auglýsir kjörstjórn
félagsins eftir einstaklingsframboðum í stjórn
félagsins og listaframboðum í trúnaðarráð.
4. febrúar 2016
Kjörstjórn VR
FlóttaFólk Þýska lögreglan segir
að fimm þúsund þeirra barna, sem
komu með flóttafólki til landsins, sé
nú saknað.
Þetta upplýsir lögreglan stuttu
eftir að Evrópulögreglan, Europol,
sagði að tíu þúsund þeirra barna,
sem komu til Evrópu með flóttafólki
á síðasta ári, sé saknað.
Á síðasta ári fóru meira en 850
þúsund manns yfir hafið frá Tyrk-
landi til Grikklands og flestir héldu
áfram norður Balkanskaga áleiðis til
Austurríkis, Þýskalands og Svíþjóðar.
Fjórðungur þessa hóps flótta-
fólks voru börn og 17 prósent voru
konur. Að sögn alþjóðlegu hjálpar-
samtakanna UNICEF hefur hlutfall
kvenna og barna hækkað, og nú er
svo komið að börn eru þriðjungur
þeirra flóttamanna sem koma til
Evrópu.
Langflestir hafa þessir flóttamenn
farið í gegnum landamærabæinn
Gevgelija í Makedóníu, við landa-
mæri Grikklands. Þar þurfa þeir
að láta skrá sig og sækja um bráða-
birgðahæli.
Þaðan þarf fólkið að ferðast norð-
ur að landamærum Serbíu, sem er
þriggja til fjögurra klukkustunda
leið með bifreið eða lest. Aftur þarf
fólk að láta skrá sig í landamæra-
bænum Presovo í Serbíu.
Alþjóðasamtökin UN Women
gerðu nýlega úttekt á aðbúnaði
flóttakvenna og barna þeirra á
þessum landamærastöðvum í
Makedóníu og Serbíu, þar sem
fólkið þarf að láta skrá sig. Í ljós kom
að aðbúnaðurinn er engan veginn
nógu góður, meðal annars vegna
þess að neyðaraðstoð er gjarnan
hönnuð af körlum.
Fimm þúsund barna á
flótta er saknað
UN Women segja aðbúnað flóttakvenna og barna ekki góðan á landamæra-
stöðvum í Makedóníu og Serbíu. Hægt sé að bæta þar úr með einföldum hætti.
Neyðarsöfnun
Þessa dagana stendur yfir neyðar-
söfnun á vegum UN Women á
Íslandi til að veita konum á flótta
vernd og öryggi.
Íslendingar geta tekið þátt með
því að senda sms-ið KONUR í síma
1900 og styrkja þar með verkefni
UN Women á svæðinu.
Flóttakonur komnar til Serbíu eftir að hafa gengið yfir landamærin frá Makedóníu.
Þúsundir flóttamanna fara þarna um daglega. NoRdicPhotoS/AFP
UN Women hefur brugðist við
með því að samhæfa aðgerðir og
bæta aðbúnað flóttafólks með þarfir
kvenna sérstaklega í huga. Ein-
faldar lausnir geta oft verið áhrifa-
ríkar, eins og bara það að koma
upp kynjaskiptum svefnskálum,
salernum og sturtuaðstöðu.
Einnig þurfi að sjá til þess að á
landamærastöðvunum séu sérstök
svæði ætluð konum og börnum.
Einnig þurfi að tryggja að konur
sem ferðast einar geti gist saman í
séraðstöðu. Þá þurfi að sjá til þess
að konur séu í hópi starfsfólks auk
þess sem kvensjúkdómalæknar séu
til staðar.
Í gær bárust svo fréttir af því að
Evrópusambandið hefði komið sér
saman um það, hvernig fjármagna
ætti þær þrjár milljónir evra, sem
sambandið ætlar að greiða Tyrk-
landi til að koma þar upp betri
aðstæðum fyrir flóttafólk í von
um að fólkið haldi kyrru fyrir í
Tyrklandi frekar en að leggja upp í
áhættusama ferð til Evrópu.
gudsteinn@frettabladid.is
4 . F e b r ú a r 2 0 1 6 F i M M t U D a G U r10 F r é t t i r ∙ F r é t t a b l a ð i ð
0
3
-0
2
-2
0
1
6
2
2
:4
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
5
C
-4
6
5
0
1
8
5
C
-4
5
1
4
1
8
5
C
-4
3
D
8
1
8
5
C
-4
2
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
5
6
s
_
3
_
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K