Fréttablaðið - 04.02.2016, Síða 38

Fréttablaðið - 04.02.2016, Síða 38
Í dag 18.00 Grótta - Fylkir Hertz höllin 19.15 Tindast. - Njarðvík Sauðárkr. 19.15 KR - Höttur DHL-höllin 19.15 FSu - Haukar Iða 19.15 Keflavík - Snæfell TM-höllin 19.15 ÍR - Þór Þ. Hertz Hellirinn 19.30 Haukar - Afturelding Ásvellir 19.30 FH - Víkingur Kaplakriki 19.30 ÍR - ÍBV Iða 20.00 Grótta - Fram Hertz höllin Nýjast Fótbolti Sandra María Jessen, sóknar maður Þórs/KA, er á leið til Þýskalands í næstu viku en hún hefur verið lánuð til þýska úrvals- deildarfélagsins Leverkusen til loka tímabilsins. Sandra, sem hefur afrekað að skora fimm mörk í aðeins ellefu A-lands- leikjum, er 21 árs gömul og telur það góðan aldur til að prófa eitthvað nýtt eftir að hafa leikið allan sinn feril með Þór/KA. „Þetta hefur verið draumur minn síðan ég var lítil. Þetta er stórt skref og ég er afar ánægð að fá að taka það núna,“ sagði Sandra María í samtali við Fréttablaðið í gær. Undir mér komið Sandra María fór ásamt Lillý Rut Hlynsdóttur, liðsfélaga sínum, til reynslu hjá Leverkusen eftir tíma- bilið í Pepsi-deild kvenna í haust. Félagið hafði svo samband við Þór/ KA fyrir stuttu síðan og komust þau að samkomulagi um lánssamning. Leverkusen á þó þann kost að semja við Söndru Maríu til frambúðar í vor. „Það er þá undir mér komið með því að standa mig vel, sýna mig og sanna. Það er ekkert öruggt með það en það væri auðvitað mjög gaman að halda áfram,“ sagði Sandra María sem stefnir að því að öðrum kosti að koma heim í maí og spila með Þór/ KA í sumar. Félögin eru þó sátt um það að Sandra María fái að koma heim fyrir 15. maí svo að hún þurfi ekki að bíða eftir leikheimild með Þór/KA til 15. júlí, þó svo að tímabilinu í Þýska- landi ljúki ekki fyrr en síðar í maí- mánuði. Hlakkar til að læra meira Sandra María lítur á þetta sem stórt tækifæri fyrir sig og ætlar að nýta tímann í Þýskalandi vel. „Ég hlakka til að kynnast nýjum leikfræðum og að spila í svo sterkri deild sem þeirri þýsku. Það er von- andi margt sem ég get lært og tekið með mér heim til Íslands og þá nýtt mér til að hjálpa öðrum leikmönn- um í Þór/KA,“ segir Sandra María en Leverkusen er sem stendur í tíunda sæti af tólf liðum í þýsku deildinni. „Stefnan er að liðið haldi sér uppi enda mjög sterkt,“ segir hún og bætir við að Annike Krahn, fyrirliði þýska landsliðisins, leiki með Leverkusen. Þýskan fljót að koma Sandra María á þýskan föður en það hefur þó alltaf verið töluð íslenska á heimili hennar. „Ég myndi því ekki segja að ég væri altalandi á þýsku en ég get reddað mér. Ég verð fljót að læra auk þess sem ég bý að því að hafa lært þýsku í menntaskóla,“ segir Sandra María sem á ömmu í Köln sem er stutt frá Leverkusen. „Það verður stutt að fara í heim- sókn til hennar sem er mjög skemmtilegt,“ segir Sandra María. Stutt í heimsókn til ömmu í Þýskalandi Sandra María Jessen söðlar um og spilar með Bayer Leverkusen í þýsku úrvals- deildinni til vors en um lánssamning er að ræða. Sandra er hálfþýsk og hlakkar til að kynnast landinu betur. Fyrirliði þýska landsliðsins spilar með liðinu. Sandra María er hér í leik með Þór/KA í Pepsi-deildinni. FRéTTABlAðið/VilHelM Þetta hefur verið draumur minn síðan ég var lítil. Þetta er stórt skref og ég er ánægð að fá að taka það núna. Sandra María Jessen Eiríkur Stefán Ásgeirsson eirikur@365.is Fótbolti Kristinn Steindórsson hefur skorað í tveimur fyrstu leikj- um sínum með íslenska A-lands- liðinu í fótbolta og því hafa ekki margir aðrir náð. Kristinn setti met fyrir ári þegar hann skoraði eftir aðeins sex mín- útur í sínum fyrsta A-landsleik. Tækifæri númer tvö kom ekki fyrr en í Los Angeles á sunnudaginn eða 380 dögum síðar. Það tók Kristin aðeins þrettán mínútur að koma Íslandi í 1-0 á móti Bandaríkjunum á heimavelli Los Angeles Glalaxy. Bandaríkja- menn unnu leikinn á endanum 3-2 en Kristinn var kominn í fámenn- an hóp. Kristinn er aðeins einn af fimm leikmönnum sem hafa verið á skotskónum í fyrstu tveimur lands- leikjum og jafnframt sá fyrsti til að ná því í tæp nítján ár. Hinir fjórir meðlimir klúbbsins eru stofnmeð- limurinn Lárus Þór Guðmunds- son auk þeirra Erlings Kristjáns- sonar, Guðmundar Steinssonar og Tryggva Guðmundssonar. Tryggvi var síðastur á undan Kristni að fá aðild en hann skoraði í tveimur fyrstu leikjum sínum árið 1997. Lárus Guðmundsson var fyrstur til að skora í tveimur fyrstu lands- leikjum sínum en það leið þó meira en ár á milli fyrstu lands- leikja hans. Erlingur Kristjáns- son skoraði þrjú mörk í tveimur leikjum á móti Færeyjum í byrjun ágúst 1982 og var annar meðlimur klúbbsins. Guðmundur Steinsson þurfti að bíða í meira en fjögur ár eftir öðrum landsleiknum. Aron Sigurðarson skoraði í sínum fyrsta landsleik í leiknum við Bandaríkjamenn og fær því möguleika á að bætast í þennan hóp þegar hann fær næsta tækifæri með landsliðinu. – óój Kristinn aðeins sá fimmti til að skora í fyrstu tveimur landsleikjunum Kristinn Steindórsson hefur skorað í tveimur fyrstu leikjum sínum með íslenska A-landsliðinu og hér fagnar hann marki sínu um síðustu helgi. FRéTTABlAðið/GeTTy VinnA STELPuRnAR SKoTAnA AFTuR Í dAG? Íslenska sautján ára landsliðið í fótbolta spilar landsleik á sérstök- um tíma í dag þegar liðið mætir Skotum í Egilshöllinni klukkan 13.00. Ásdís Karen Halldórsdóttir, Hlín Eiríksdóttir og Sól- veig Jóhannesdóttir Larsen skoruðu mörkin þegar þær unnu 3-0 í leik liðanna á þriðjudaginn. Frítt er á leikinn og þetta er flott tækifæri til að sjá framtíðarleikmenn kvennalandsliðsins spila á heimavelli en það er ein- mitt A-landsliðs- þjálfarinn Freyr Alexandersson sem þjálfar stelp- urnar. VALA GESTuR Á STóRMóTi ÍR Stórmót ÍR verður haldið í tuttugasta sinn í Laugardalshöll- inni um næstu helgi. Sérstakir heiðursgestir mótsins verða sigurvegarar í keppnisgreinum fyrsta Stórmóts ÍR árið 1997. Þar er fyrsta að nefna Völu Flosadóttur sem setti heimsmet ung- linga í stangarstökki á þessu móti þegar hún stökk 4,20 metra. Vala kemur sérstaklega til landsins af þessu tilefni en hinir heiðursgest- irnir eru Jón Arnar Magnússon, Þórdís Gísladóttir, ólafur Guð- mundsson og Guðný Eyþórsdóttir. Domino’s-deild kvenna í körfubolta Haukar - Valur 73-67 Helena Sverrisdóttir 26 (14 frák., 5 stoðs.), Chelsie Schweers 14 - Karisma Chapman 26 (15 frák.), Bergþóra Holton Tómasdóttir 12. Haukakonur unnu síðustu 9 mínúurnar 21-7. Snæfell - Grindavík 75-69 Haiden Denise Palmer 29 (12 frák.), Bryndís Guðmunsd. 9, Gunnhildur Gunnarsd.9 - Whitney Frazier 29 (17 frák.), Petrúnella Skúlad.10, Hrund Skulad. 10. Generalprufa fyrir bikarúrslitaleikinn eftir 10 daga. Stjarnan-Hamar 59-64 Adrienne Godbold 21 (18 frák.), Margrét Kara Sturludóttir 13 (15 frák., 7 stoðs., 6 stolnir) - Alexandra Ford 28 Íris Ásgeirsdótt- ir 13. Hamar vann lokaleikhlutann 29-16. 4 . F e b r ú a r 2 0 1 6 F i M M t U D a G U r26 s p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð sport 0 3 -0 2 -2 0 1 6 2 2 :4 2 F B 0 5 6 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 5 C -3 C 7 0 1 8 5 C -3 B 3 4 1 8 5 C -3 9 F 8 1 8 5 C -3 8 B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 5 6 s _ 3 _ 2 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.