Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.02.2016, Qupperneq 52

Fréttablaðið - 04.02.2016, Qupperneq 52
LEIKUR Rise of the Tomb Raider HHHHH Hasarleikur PC Ævintýrakonan Lara Croft er orðin tuttugu ára gömul en fyrsti leikur­ inn í þessari vinsælu seríu kom út árið 1996 og sló í gegn. Nýjasti leik­ ur seríunnar er líklegast sá besti og er greinilegt að Crystal Dynamics vita hvað þeir eru að gera. Í ROTTR má finna góða blöndu af klisjum og alvarleika, útlit leiksins er einfald­ lega frábært. Þá er mjög mikið að sjá og gera í leiknum og oft á tíðum er erfitt að halda dampi. Leikurinn Rise of the Tomb Raider var gefinn út fyrir Xbox One og 360 í nóvember. Á dögunum var hann hins vegar gefinn út fyrir PC og til stendur að gefa hann út fyrir PS4 seinna á þessu ári. Um er að ræða annan leikinn um ævintýra­ konuna frægu frá því að serían var endurgerð árið 2013. Að þessu sinni þarf Lara að fylgja vísbendingum sem faðir hennar skildi eftir sig. Í grunninn gengur Tomb Raider út á að lifa af í mjög svo óvinveittu umhverfi, safna birgðum, byggja vopn og finna fornmuni. Þá þarf Lara að læra ýmis tungumál og verða öflugri bardagakona. Kar­ akter kerfi leiksins er mjög gott og þá er einnig hægt að betrumbæta öll vopnin sem Lara beitir gegn dýrum og málaliðum skuggalegra samtaka sem elta hana við hvert fótmál. Þ ra u t i r l e i k s ­ ins eru gífurlega s k e m m t i l e g a r og krefjandi, en þær mættu jafn­ vel vera fleiri . Með skemmtilegri atburðum leiksins eru fjársjóðsleitir sem hægt er að fara í og tengjast sögu leiksins í raun ekki. Bardagar Löru fela oftar en ekki í sér að laumast úr einu fylgsni í annað og koma óvinum að óvörum. Þó er nóg um skotbardaga í ROTTR og þeir virka einnig vel. Það sem er hægt að setja út á í PC­útgáfunni er til dæmis það að örvatakkarnir bjóða oft á tíðum ekki upp á jafn mikla nákvæmni í hreyfingum og fjarstýringar leikjatölva. Því gerðist það tiltölulega oft að ég hoppaði fram af klettasyllum og hitti ekki á brúnir sem ég ætlaði mér að grípa í. Það sem einkennir PC­útgáfu ROTTR þó sérstaklega er útlitið. Grafíkin er mjög góð og með réttu tölvunum er hægt að gera hana einstaka. Spilunin er skemmtileg og þrautirnar eru krefjandi. Bar­ dagar eru einnig skemmtilegir, svæði leiksins eru stór og stútfull af hlutum til að finna. Samúel Karl Lara Croft hefur aldrei litið betur út Rise of the Tomb Raider er stórskemmti­ legur leikur en tuttugu ár eru frá því að fyrsti leikurinn um Löru Croft leit dagsins ljós. Lara Croft veldur ekki vonbrigðum, en hér sést hún takast á við eina þrautina af allmörgum í leiknum. „Þetta er eins konar uppskeruhátíð barþjóna á Íslandi, þar sem skemmti­ staðir Reykjavíkur leiða saman hesta sína,“ segir Tómas Kristjánsson, for­ seti Barþjónaklúbbs Íslands, sem er að vonum yfir sig spenntur fyrir helginni en kokteilhátíðinni Reykja­ vik Coctail Weekend var ýtt úr vör í gær. Stendur Barþjónaklúbbur Íslands fyrir herlegheitunum í samstarfi við helstu veitinga­ og skemmtistaði í Reykjavík, og er þetta í þriðja skiptið sem hátíðin er haldin. „Forkeppnin verður í kvöld í Gamla bíói, og þá má eiginlega tala um að þetta sé tvískipt. Það er þá Íslandsmeistarakeppnin þar sem farið er eftir alþjóðlegum stöðlum, og sigurvegarinn fer svo og keppir fyrir Íslands hönd í Tókýo í haust. Svo er það „freestyle“ vinnu­ staðakeppni, þar sem vinnustaðir keppa sín á milli,“ útskýrir Tómas og bætir við að í ár keppi fjörutíu og fjórir barþjónar um Íslandsmeistara­ titilinn og þrjátíu og fimm veitinga­ staðir taki þátt í hátíðinni, þar sem hver bar skapar sinn eiginn kok­ teil sem stendur til boða yfir helgina á sama spottprís, eða 1.500 krónur. „Helgin verður öll lögð undir þetta, og verður svo sjálft úrslitakvöldið á sunnudaginn.“ Segist hann finna fyrir gríðarlegri grósku hér á landi þegar kemur að kokteilum, og horfir aftur um fjögur ár þegar hann segir ákveðinn upp­ gang hafa orðið í þessum efnum. „Það hefur verið rosalega gaman að fylgjast með þessu undanfarin ár, og maður sér hvernig kokteilarnir eru orðnir partur af menningunni. Fólk fer út að borða og fær þar góðan mat, en nú er góður drykkur í upphafi eða enda orðinn punkturinn yfir i­ið eins og menn segja,“ bendir Tómas á. Aðspurður um hvort þetta sé spánýtt fyrir okkur Íslendingum, svarar hann til að svo sé reyndar ekki og bendir á að hér eigi sér stað ákveðið afturhvarf til áranna 1970 til 1980. „Þá var þetta mikið hérna, en svo datt þessi kokteilamenning alveg út,“ segir hann og fagnar mjög þessari fjölbreytni sem íslenskir barir hafa tileinkað sér. „Það er svo rosalega margt hægt að gera, og það þarf ekki alltaf að blanda vodka í kók,“ bendir hann á og skellir upp úr. Hann þakkar það auknu frelsi heildsalanna, sem nú bjóða upp á mun fleiri tegundir en áður, og það skapi þessa fjölbreytni sem raun ber vitni. „Nú er þetta bara orðið rosa­ legt áhugamál hjá fólki, og mikið sem þarf að pæla í, enda góður kok­ teill sambland af bragði, útliti og lykt. Menn eru þannig að undirbúa sig mikið, og prófa sig áfram með því að þefa upp úr flöskunum og finna út hvað passar saman. Þá skipta klak­ arnir miklu máli og svona ýmislegt. Þetta er bara ákveðin efnafræði,“ bendir hann á að lokum. gudrun@frettabladid.is Það þarf ekki alltaf að vera vodki í kók Reykjavik Cocktail Weekend er haldin í þriðja skiptið um komandi helgi. Tómas Kristjánsson segir kokteilana loks eiga aftur upp á pallborðið, eftir áralanga útlegð og setja hinn umrædda punkt yfir i­ið þegar fólk fer út að borða. Forseti Barþjónaklúbbsins, Tómas, segir ákveðna efnafræði felast í starfi barþjóns- ins á Íslandi í dag, þar sem allt er gert eftir kúnstarinnar reglum. FréTTaBLaðið/Ernir 4 . f E b R ú a R 2 0 1 6 f I M M T U D a G U R40 L í f I ð ∙ f R É T T a b L a ð I ð Lífið 0 3 -0 2 -2 0 1 6 2 2 :4 2 F B 0 5 6 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 5 C -3 2 9 0 1 8 5 C -3 1 5 4 1 8 5 C -3 0 1 8 1 8 5 C -2 E D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 5 6 s _ 3 _ 2 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.