Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.12.2013, Blaðsíða 28

Víkurfréttir - 19.12.2013, Blaðsíða 28
fimmtudagurinn 19. desember 2013 • VÍKURFRÉTTIR28 opnunartímar um jól & áramót með ósk um gleðileg jól og farsæld á nýju ári 23. 24. 25. 26. 31. 1. 2. mán. þri. mið. fim. þri. mið. fim 10-22 9-15 lokað 13-18 9-15 12-20 10-22 hringbraut verslun okkar á er opin: Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar fyrir árið 2014 var samþykkt á fundi bæjarstjórnar í vikunni. Reykjanesbær mun ekki hækka gjaldskrár nú um áramót og skipa sér þar með í hóp margra af stærri sveitarfélögum landsins sem tekið hafa sambærilega ákvörðun. Þann- ig er komið til móts við margar fjölskyldur sem enn hafa ekki náð að vinna sig út úr erfiðu efnahags- ástandi, segir m.a. í frétt frá Reykja- nesbæ. Sem kunnugt er bjóðast nú þegar gjaldfrjálsar almenningssamgöngur og frí sundiðkun barna í Reykja- nesbæ auk þess sem gjaldskrá há- degismatar í grunnskólum er með því lægsta sem býðst á landinu, segir í fréttatilkynningu frá Reykjanesbæ. Um leið og fjárhagsáætlunin gerir ráð fyrir rekstrarafgangi bæjarsjóðs eins og undanfarin ár ber hún vitni um árangursríka uppbyggingu í for- vörnum, fjölskyldumálum, mennta- málum, umhverfismálum, menning- armálum og atvinnuþróun. Í erfiðu efnahagsástandi hefur ríkt samstaða bæjarbúa um skólastarfið og mál- efni fjölskyldna. Það hefur reynst nær ómetanlegt að flugsamgöngur og ferðaþjónusta hafa skapað mörg ný störf, þegar aðrar greinar hafa gefið eftir. Lenging ferðamannatímans gerir það einnig að verkum að færri fara á atvinnuleysisskrá að hausti. Á nýju ári sjást merki um uppvöxt nýrra atvinnutækifæra með stórri fiskeldis- verksmiðju á Reykjanesi, þörunga- gróðurhúsi að Ásbrú og stuðningi ríkisstjórnarinnar við uppbyggingu atvinnuverkefna m.a. í Helguvík. Þá er ánægjulegt að áfram er unnið að uppbyggingu gagnavera að Ásbrú og styrkingu þess frumkvöðlasetur sem þar er með menntastofnunina Keili í forgrunni. Margvísleg verkefni á næsta ári munu stuðla að styrkingu í þágu barna og menningar í samfélagi okkar. Þar má nefna aukinn stuðning við æskulýðs- starf í gegnum íþróttahreyfinguna og margvíslega starfsemi í þágu barna, hærri hvatagreiðslur, aukinn tækni- búnað til grunnskóla og leikskóla og tölvuþróunar í skólum, aukin fram- lög til manngildissjóðs, nýja bygg- ingu og búnað fyrir Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, tónlistarsýningu í Hljómahöll og áframhaldandi upp- byggingu garðyrkjudeildar. Um leið er áhersla er lögð á að allar lykiltölur í rekstri verði jákvæðar. Áætlunin 2014 gerir ráð fyrir að bæjarsjóður skili um 2,5 milljörðum kr. í veltufjármuni og 5,6 milljörðum kr. hjá samstæðu. Veltufé frá rekstri verður um 770 milljónir kr. fyrir bæjarsjóð og um 2,65 milljarðar hjá samstæðu. Heildartekjur bæjarsjóðs eru áætlaðar tæplega 9,6 milljarðar kr. og heildartekjur samstæðu um 15,8 milljarðar kr. Reykjanesbæ hefur tekist að standa við greiðslu allra skuldbindinga sinna í erfiðu efnahagsástandi og mun svo verða á árinu 2014. Enn er unnið að niðurgreiðslu skulda en gert er ráð fyrir að skuldahlutfallið verði rétt um helmingur af skulda- hlutfalli ríkisins á næsta ári. Reykja- nesbær stefnir á að eignir umfram skuldir á hvern íbúa verði um 524 þúsund á árinu 2014 og haldið verði áfram niðurgreiðslu skulda. Bókun bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar vegna fjárhagsá-ætlunar Reykjanesbæjar 2014 á bæjarstjórnarfundi 17. desember 2013: Rekstur bæjarsjóðs Reykjanesbæjar árið 2013 einkennist enn og aftur af rekstrarerfiðleikum og þröngri stöðu í fjármálum sveitarfélagsins. Enn eitt árið var lítið svigrúm til framkvæmda og viðhald í lágmarki. Að venju var eignasala mest áberandi en á árinu 2013 stefnir í að eignir verði seldar fyrir rúmlega tvo milljarða. Það er nöturleg staðreynd að án eignasölu hefi veltufjárhlutfall Reykjanesbæjar á árinu 2013 farið undir 1,0, handbært fé orðið neikvætt og þurft hefði að reka bæinn með lántöku. Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar 2014 ber merki áralangrar óstjórnar og staðan er grafalvarleg. Þrátt fyrir tugmilljarða eignasölu á undanförnum áratug er ljóst að allar helstu kenni- tölur í rekstrinum versna á árinu. Að öllu óbreyttu mun veltu- fjárhlutfall bæjarsjóðs lækka úr 1,49 í 1,03. Sama gildir um eiginfjárhlutfallið en það lækkar um tæplega 10%. Skuldir á hvern íbúa hækka og eignir standa nánast í stað. Rekstur B-hluta fyrirtækja er á svipuðu róli og hallarekstur verður viðvarandi áfram. Staða Reykjaneshafnar er sérstaklega erfið og ljóst að þar mun Reykjanesbær þurfa að halda áfram að leggja til fé á næstu árum. Fjárhagsáætlun Reykjaneshafnar byggist einn eitt árið á draumsýn þar sem tekjur eru ofáætlaðar um allt að 300 milljónir. Fasteignir Reykjanesbæjar eru í slæmri stöðu og áfram þarf að fjármagna hallarekstur fyrri ára. Alvarlegast er að enga stefnubreytingu er að merkja í fjárhagsá- ætlun Reykjansbæjar fyrir árið 2014. Fastur rekstrarkostnaður fer hækkandi, handbært fé minnkar, skuldir hækka og ef ekki kæmi til tímabundin frestun á vaxtagreiðslum vegna Eignar- haldsfélagsins Fasteignar myndi rekstur bæjarsjóðs og sam- stæðu vera neikvæður um hundruð milljóna króna. Ljóst er að ekki verður við svo búið til langframa og breyta verður áherslum í rekstri bæjarins ef ekki á að fara verr. Undanfarin ár hafa bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar lagt fram ítarlegar tillögur að breytingum á einstökum liðum fjárhagsá- ætlunar en í ljósi stöðu bæjarsjóðs leggjum við nú til að skip- aður verði vinnuhópur sem endurskoði ásamt sérfræðingum allan rekstur bæjarsjóðs og samstæðu og skili inn tillögum til úrbóta til bæjarstjórnar á vormánuðum 2014. Friðjón Einarsson. Guðný Kristjánsdóttir. Eysteinn Eyjólfsson. Breyta verður áherslum í rekstri bæjarins ef ekki á að fara verr Gjaldskrár ekki hækkaðar -fréttir n Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar 2014: Grindavík Sendum viðskiptavinum okkar og Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir um gleðilega jólahátíð og farsæld á komandi ári! Þökkum ykkur viðskiptin á árinu sem er að líða!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.