Víkurfréttir - 19.12.2013, Blaðsíða 40
fimmtudagurinn 19. desember 2013 • VÍKURFRÉTTIR40
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
VF121213.pdf 5.12.2013 16:11:53
Óskum Suðurnesjamönnum
gleðilegra jóla og farsældar
á nýju ári
- jólaspurningar
Fyrstu jólaminningarnar?
„Fyrstu jólaminningarnar eru hjá
ömmu og afa á Sólhaga. Það voru
alltaf margir í mat hjá ömmu og afa
þar sem hangikjöt var á boðstólum
með tilheyrandi meðlæti. Hlust-
að var á jólamessuna í útvarpinu
áður en það var borðað. Þá fékk
ég alltaf að opna einn pakka fyrir
matinn sem hélt spennustiginu
aðeins niðri í biðinni eftir pökk-
unum. Eftir pakkagleðina var alltaf
sami eftirrétturinn, rjómaterta með
ávöxtum.“
Jólahefðir hjá þér?
„Það hafa verið að skapast nýjar
hefðir síðustu ár vegna breyttra
aðstæðna. Nú hefur þetta snúist
og eru það börnin okkar sem fá
að opna pakka fyrir matinn á að-
fangadag líkt og ég fékk. Síðustu 7
ár höfum við verið á okkar heimili
á aðfangadag en fengið foreldra
okkar og bræður mína til okkar
nánast á hverju ári. Undanfarin
ár höfum við síðan farið í skötu-
veislu til bróður mannsins á Þor-
láksmessu. Annars erum við bara
í rólegheitum öll jólin, slökum á og
reynum að rífa í spil með fjölskyldu
og vinum.“
Ertu dugleg í eldhúsinu
yfir hátíðirnar?
„Því miður þá þróast það alltaf
þannig að kokkurinn gerir mest í
eldhúsinu, mig langar alveg að vera
dugleg en stundum er bara dálítið
þægilegt að hafa einhvern sem er
með þetta á hreinu. Jólamaturinn
er hans en ég er duglegri í bakstr-
inum.“
Jólamyndin?
„Klárlega „Christmas Vacation“
held að ég hafi horft á hana hver
einustu jól síðan 1996.“
Jólatónlistin?
„Ég er alæta á tónlist og eru öll jóla-
lög yndisleg svona yfir jólahátíðina.
En lagið ,,Það snjóar“ með Sigurði
Guðmundssyni og Memfismafí-
unni og gamla góða „Wham“ lagið
„Last Christmas“ eru í uppáhaldi.“
Hvar verslarðu jólagjafirnar?
„Eiginlega bara hér og þar. Ef ég
kemst erlendis þá reyni ég ávallt að
kaupa sem mest þar, bæði meira
úrval og betra verð.“
Gefurðu mikið af jólagjöfum?
„Bara hæfilega margar held ég.“
Ertu vanaföst um jólin,
eitthvað sem þú gerir alltaf?
„Ég var alltaf frekar vanaföst en hef
slakað á síðustu ár. En ég sendi allt-
af jólakort og er rúntur tekin með
þau og jólapakkana til ættingja og
vina sem eru hér á svæðinu. Þá eru
heldur engin jól nema að rífa í spil
með fjölskyldunni og helst a.m.k.
einu sinni með vinkonunum. Einn-
ig fer ég alltaf í kirkjugarðinn og
tendra þar ljós.“
Besta jólagjöf sem
þú hefur fengið?
„Persónuleg úrklippubók sem ég
fékk frá manninum mínum árið
2006. Þar eru ótal minningar í
myndum og fallegum orðum sem
ég held mikið upp á. Hann kom
mér svo aftur á óvart síðustu jól
og bætti við bókina. Þetta er án
efa fallegasta og besta gjöf sem ég
hef fengið og mun aldrei gleyma
henni.“
Hvað er í matinn á aðfangadag?
„Í ár verður tvíréttað, hamborgar-
hryggur og nautalund með alls
konar meðlæti. Í eftirrétt verður
svo heimalagaður ís.“
Eftirminnilegustu jólin?
„Það er erfitt að velja á milli en
held að það séu fyrstu jólin sem ég
átti með frumburðinum og eigin-
manninum. Annars eru flest öll jól
ánægjuleg og ljúf í minningunni.“
Hvað langar þig í jólagjöf?
„Er aldrei með kröfur varðandi
jólagjafir. Er þakklát fyrir allar
gjafir sem ég fæ en eitthvað óvænt
og persónulegt hittir alltaf í mark.“
Berglind Kristjánsdóttir:
Engin jól nema
rifið sé í spil
Grunnskólakennarinn Berglind Kristjánsdóttir hefur gaman
af því að spila með fjölskyldu og vinum um jólin. Áður fyrr var hún
frekar vanaföst en hefur slakað á í þeim efnum síðustu ár. Berglind
segir að persónulegar og óvæntar jólagjafir hitti alltaf í mark, en
þannig gjöf er einmitt sú eftirminnilegasta sem hún hefur fengið.
Kæru Suðurnesjabúar!
Ég vil minna á jólatréð í Nettó
þar sem safnað er saman jóla-
pökkum fyrir þau börn og full-
orðna, sem minna mega sín.
Tökum höndum saman og
hjálpumst að við að gleðja þau,
svo þau geti líka átt gleðileg jól.
Hátíðarkveðjur til allra þeirra
sem hafa stutt okkur í gegnum
árin.
Anna Valdís Jónsdóttir
verkefnastjóri starfsins á
Suðurnesjum og stjórnarkona.
Pakkatré
Fjölskylduhjálpar
í Nettó
Þessir duglegu krakkar gáfu Rauða
krossinum á Suðurnesjum andvirði
tombólu sem þau héldu.
Þau heita frá vinstri: Nökkvi Freyr,
Salka Björk Jónasdóttir, Anna Rak-
el Guðjónsdóttir og Hrefna Líf
Björnsdóttir.
Söfnuðu fyrir Rauða krossinn