Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.12.2013, Page 40

Víkurfréttir - 19.12.2013, Page 40
fimmtudagurinn 19. desember 2013 • VÍKURFRÉTTIR40 C M Y CM MY CY CMY K VF121213.pdf 5.12.2013 16:11:53 Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári - jólaspurningar Fyrstu jólaminningarnar? „Fyrstu jólaminningarnar eru hjá ömmu og afa á Sólhaga. Það voru alltaf margir í mat hjá ömmu og afa þar sem hangikjöt var á boðstólum með tilheyrandi meðlæti. Hlust- að var á jólamessuna í útvarpinu áður en það var borðað. Þá fékk ég alltaf að opna einn pakka fyrir matinn sem hélt spennustiginu aðeins niðri í biðinni eftir pökk- unum. Eftir pakkagleðina var alltaf sami eftirrétturinn, rjómaterta með ávöxtum.“ Jólahefðir hjá þér? „Það hafa verið að skapast nýjar hefðir síðustu ár vegna breyttra aðstæðna. Nú hefur þetta snúist og eru það börnin okkar sem fá að opna pakka fyrir matinn á að- fangadag líkt og ég fékk. Síðustu 7 ár höfum við verið á okkar heimili á aðfangadag en fengið foreldra okkar og bræður mína til okkar nánast á hverju ári. Undanfarin ár höfum við síðan farið í skötu- veislu til bróður mannsins á Þor- láksmessu. Annars erum við bara í rólegheitum öll jólin, slökum á og reynum að rífa í spil með fjölskyldu og vinum.“ Ertu dugleg í eldhúsinu yfir hátíðirnar? „Því miður þá þróast það alltaf þannig að kokkurinn gerir mest í eldhúsinu, mig langar alveg að vera dugleg en stundum er bara dálítið þægilegt að hafa einhvern sem er með þetta á hreinu. Jólamaturinn er hans en ég er duglegri í bakstr- inum.“ Jólamyndin? „Klárlega „Christmas Vacation“ held að ég hafi horft á hana hver einustu jól síðan 1996.“ Jólatónlistin? „Ég er alæta á tónlist og eru öll jóla- lög yndisleg svona yfir jólahátíðina. En lagið ,,Það snjóar“ með Sigurði Guðmundssyni og Memfismafí- unni og gamla góða „Wham“ lagið „Last Christmas“ eru í uppáhaldi.“ Hvar verslarðu jólagjafirnar? „Eiginlega bara hér og þar. Ef ég kemst erlendis þá reyni ég ávallt að kaupa sem mest þar, bæði meira úrval og betra verð.“ Gefurðu mikið af jólagjöfum? „Bara hæfilega margar held ég.“ Ertu vanaföst um jólin, eitthvað sem þú gerir alltaf? „Ég var alltaf frekar vanaföst en hef slakað á síðustu ár. En ég sendi allt- af jólakort og er rúntur tekin með þau og jólapakkana til ættingja og vina sem eru hér á svæðinu. Þá eru heldur engin jól nema að rífa í spil með fjölskyldunni og helst a.m.k. einu sinni með vinkonunum. Einn- ig fer ég alltaf í kirkjugarðinn og tendra þar ljós.“ Besta jólagjöf sem þú hefur fengið? „Persónuleg úrklippubók sem ég fékk frá manninum mínum árið 2006. Þar eru ótal minningar í myndum og fallegum orðum sem ég held mikið upp á. Hann kom mér svo aftur á óvart síðustu jól og bætti við bókina. Þetta er án efa fallegasta og besta gjöf sem ég hef fengið og mun aldrei gleyma henni.“ Hvað er í matinn á aðfangadag? „Í ár verður tvíréttað, hamborgar- hryggur og nautalund með alls konar meðlæti. Í eftirrétt verður svo heimalagaður ís.“ Eftirminnilegustu jólin? „Það er erfitt að velja á milli en held að það séu fyrstu jólin sem ég átti með frumburðinum og eigin- manninum. Annars eru flest öll jól ánægjuleg og ljúf í minningunni.“ Hvað langar þig í jólagjöf? „Er aldrei með kröfur varðandi jólagjafir. Er þakklát fyrir allar gjafir sem ég fæ en eitthvað óvænt og persónulegt hittir alltaf í mark.“ Berglind Kristjánsdóttir: Engin jól nema rifið sé í spil Grunnskólakennarinn Berglind Kristjánsdóttir hefur gaman af því að spila með fjölskyldu og vinum um jólin. Áður fyrr var hún frekar vanaföst en hefur slakað á í þeim efnum síðustu ár. Berglind segir að persónulegar og óvæntar jólagjafir hitti alltaf í mark, en þannig gjöf er einmitt sú eftirminnilegasta sem hún hefur fengið. Kæru Suðurnesjabúar! Ég vil minna á jólatréð í Nettó þar sem safnað er saman jóla- pökkum fyrir þau börn og full- orðna, sem minna mega sín. Tökum höndum saman og hjálpumst að við að gleðja þau, svo þau geti líka átt gleðileg jól. Hátíðarkveðjur til allra þeirra sem hafa stutt okkur í gegnum árin. Anna Valdís Jónsdóttir verkefnastjóri starfsins á Suðurnesjum og stjórnarkona. Pakkatré Fjölskylduhjálpar í Nettó Þessir duglegu krakkar gáfu Rauða krossinum á Suðurnesjum andvirði tombólu sem þau héldu. Þau heita frá vinstri: Nökkvi Freyr, Salka Björk Jónasdóttir, Anna Rak- el Guðjónsdóttir og Hrefna Líf Björnsdóttir. Söfnuðu fyrir Rauða krossinn

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.