Víkurfréttir - 19.12.2013, Blaðsíða 60
fimmtudagurinn 19. desember 2013 • VÍKURFRÉTTIR60
- ung // Ásdís Eva Steinarsdóttir pósturu pop@vf.is
Er ekkert alltaf velkomin
í eldhúsið í jólastressinu
Fyrstu jólaminningarnar?
Ég held að ég hafi verið sjö eða átta ára, þá fékk ég Bratz
mikrafón og headset, svona sem maður gat tekið sig upp
syngja og eitthvað svaka flott. Og með þeim pakka var Bratz
dúkka sem var með eins headset og hljóðnema og þetta var
bara í mjög stóru uppáhaldi hjá mér í langan tíma.
Jólahefðir hjá þér?
Ég er núna búin að búa í Danmörku í fimm ár svo við erum
bara foreldrar mínir og systur mínar um jólin. Ég
verð alltaf vakin af systrum minum sem eru voða
spenntar yfir að fá að vita hvað ég fékk í skóinn af
jólasveininum. Siðan ver ég bara deginum með
fjölskyldunni. Við horfum á sjónvarpið, spilum og
ég fer stundum út að leika í snjónum með systrum
mínum. Þegar það er komið að matnum borðum
við öll saman. Þegar það er búið að vaska upp
setjumst við öll inn í stofu og lesum jólakortin.
Eftir það opnum við pakkana og restina af
kvöldinu erum við oftast á skype við ömmu
og afa til að segja gleðileg jól og þakka fyrir
gjafirnar og svona.
Ertu dugleg í eldhúsinu yfir hátíðarnar?
Ég reyni að hjálpa eins og ég get. Það er ekki
alltaf víst að maður sé neitt sérstaklega vel-
kominn inn í eldhús í jólastressinu. Haha.
Jólabíómyndin?
Home alone og How the grinch stole christ-
mas.
Jólatónlistin?
Ég hlakka svo til - Svala Björgvins. Þetta lag er í miklu uppá-
haldi hjá mér og pabba.
Hvar verslarðu jólagjafirnar?
Aðallega í H&M.
Gefurðu mikið af jólagjöfum?
Aðallega bara til bestu vina minna og fjölskyldu.
Ertu vanafastur um jólin, eitthvað sem þú gerir alltaf?
Það er ekki svo mikið. Það er alltaf það sama að borða,
sama í eftirrétt og allt er gert í sömu röð eftir matinn.
Besta jólagjöf sem þú hefur fengið?
Ég held bara að besta jólagjöfin hafi verið bókin 'Undir
fögru skinni' sem ég fékk frá ömmu minni og afa í fyrra.
Þessi bók er i miklu uppáhaldi.
Hvað er í matinn á aðfangadag?
Hamborgarhryggur.
Eftirminnilegasta gjöfin?
Ég held að það hafi verið fyrir tveimum árum
siðan, þá fékk ég peysu og hálsmen frá pabba
sem ég alveg bara elska út af lífinu, geng allt-
af með hálsmenið og er næstum því alltaf í
peysunni.
Hvað langar þig í jólagjöf?
Ég væri ekkert á móti því að fá nýja tölvu,
en annars bara föt og snyrtidót. Mig vantar
voða litið.
Ásdís Eva Steinarsdóttir er Keflvíkingur
en á heima í Danmörku. Hún kemur heim til
Íslands á jólunum og ver hátíðunum með
fjölskyldunni. Home alone og How the grinch
stole christmas eru uppáhalds jólamyndirnar
hennar.
Bestu jóla- og nýárskveðjur
sendum við til ættingja og vina
með þakklæti fyrir liðnar stundir.
Heimilisfólk og starfsmenn
Hlévangs
- jólaspurningar
Fyrstu jólaminningarnar?
„Það hlýtur bara að vera þegar
ég var að kafna úr spenningi yfir
pökkunum og leika mér úti á
sleða.“
Jólahefðir hjá þér?
„Ég horfi alltaf á Jólaósk Önnu
Bellu.“
Ertu dugleg í eldhúsinu
yfir hátíðirnar?
„Ég reyni það en mér tekst alltaf að
klúðra bakstrinum.“
Jólamyndin?
„Jólaósk Önnu Bellu og The Polar
express.“
Jólatónlistin?
„Elska róleg jólalög ensk og ís-
lensk.“
Hvar verslarðu jólagjafirnar?
„Ég versla heima hér í Keflavík.“
Gefurðu mikið af jólagjöfum?
„Já ég á marga nána vini sem fá
alltaf gjöf frá mér.“
Ertu vanaföst um jólin,
eitthvað sem þú gerir alltaf?
„Já, horfi á eins margar bíómyndir
og ég get og klára Sörurnar. Mæti
svo auðvitað líka í öll ættarboðin.
Besta jólagjöf sem
þú hefur fengið?
„Örugglega skíðin sem ég fékk frá
mömmu og pabba á sínum tíma.“
Hvað er í matinn á aðfangadag?
„Hamborgarhryggur.“
Eftirminnilegustu jólin?
„Gleymi því aldrei þegar gamli
ruglaði hundurinn okkar reif upp
alla pakkana á aðfangadag.“
Hvað langar þig í jólagjöf?
„Aðallega nýja úlpu og skó.“
Alexandra Sæmundsdóttir:
Hundurinn reif
upp pakkana
Alexandra Sæmundsdóttir er 17 ára Keflvíkingur. Hún nýtur
þess að horfa á sem flestar bíómyndir um jólin og borða sem mest
af Sörum. Hún reynir sitt besta í eldhúsinu en tekst þó yfirleitt að
klúðra bakstrinum.
Nudd
Vellíðan og jafnvægi
Djúpvöðvanudd, klassískt
heildrænt nudd (heilsunudd), svæðanudd, ilmolíu-
og sogæðanudd, aromatherapy, meðgöngunudd,
saltskrúbb.
Eykur blóðstreymi og súrefni til vöðva. Losar um
spennu og bólgur.
Komdu í dekur, upplifðu og njóttu.
Upplagt fyrir vini, pör og saumaklúbba.
GJAFABRÉF &TÆKIFÆRIS-GJAFIR
PÖNTUNAR-
SÍMI 5128040
Sjá nánar www.heilsuhotel.is
Tíu tíma k
ort
15%
afsláttur
Óska Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla
S : 421-2045. Verslunarmiðstöðin Krossmói
Brýnum hnífaNý
tt Lengri opnunartími
yfir jólin