Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.12.2013, Síða 60

Víkurfréttir - 19.12.2013, Síða 60
fimmtudagurinn 19. desember 2013 • VÍKURFRÉTTIR60 - ung // Ásdís Eva Steinarsdóttir pósturu pop@vf.is Er ekkert alltaf velkomin í eldhúsið í jólastressinu Fyrstu jólaminningarnar? Ég held að ég hafi verið sjö eða átta ára, þá fékk ég Bratz mikrafón og headset, svona sem maður gat tekið sig upp syngja og eitthvað svaka flott. Og með þeim pakka var Bratz dúkka sem var með eins headset og hljóðnema og þetta var bara í mjög stóru uppáhaldi hjá mér í langan tíma. Jólahefðir hjá þér? Ég er núna búin að búa í Danmörku í fimm ár svo við erum bara foreldrar mínir og systur mínar um jólin. Ég verð alltaf vakin af systrum minum sem eru voða spenntar yfir að fá að vita hvað ég fékk í skóinn af jólasveininum. Siðan ver ég bara deginum með fjölskyldunni. Við horfum á sjónvarpið, spilum og ég fer stundum út að leika í snjónum með systrum mínum. Þegar það er komið að matnum borðum við öll saman. Þegar það er búið að vaska upp setjumst við öll inn í stofu og lesum jólakortin. Eftir það opnum við pakkana og restina af kvöldinu erum við oftast á skype við ömmu og afa til að segja gleðileg jól og þakka fyrir gjafirnar og svona. Ertu dugleg í eldhúsinu yfir hátíðarnar? Ég reyni að hjálpa eins og ég get. Það er ekki alltaf víst að maður sé neitt sérstaklega vel- kominn inn í eldhús í jólastressinu. Haha. Jólabíómyndin? Home alone og How the grinch stole christ- mas. Jólatónlistin? Ég hlakka svo til - Svala Björgvins. Þetta lag er í miklu uppá- haldi hjá mér og pabba. Hvar verslarðu jólagjafirnar? Aðallega í H&M. Gefurðu mikið af jólagjöfum? Aðallega bara til bestu vina minna og fjölskyldu. Ertu vanafastur um jólin, eitthvað sem þú gerir alltaf? Það er ekki svo mikið. Það er alltaf það sama að borða, sama í eftirrétt og allt er gert í sömu röð eftir matinn. Besta jólagjöf sem þú hefur fengið? Ég held bara að besta jólagjöfin hafi verið bókin 'Undir fögru skinni' sem ég fékk frá ömmu minni og afa í fyrra. Þessi bók er i miklu uppáhaldi. Hvað er í matinn á aðfangadag? Hamborgarhryggur. Eftirminnilegasta gjöfin? Ég held að það hafi verið fyrir tveimum árum siðan, þá fékk ég peysu og hálsmen frá pabba sem ég alveg bara elska út af lífinu, geng allt- af með hálsmenið og er næstum því alltaf í peysunni. Hvað langar þig í jólagjöf? Ég væri ekkert á móti því að fá nýja tölvu, en annars bara föt og snyrtidót. Mig vantar voða litið. Ásdís Eva Steinarsdóttir er Keflvíkingur en á heima í Danmörku. Hún kemur heim til Íslands á jólunum og ver hátíðunum með fjölskyldunni. Home alone og How the grinch stole christmas eru uppáhalds jólamyndirnar hennar. Bestu jóla- og nýárskveðjur sendum við til ættingja og vina með þakklæti fyrir liðnar stundir. Heimilisfólk og starfsmenn Hlévangs - jólaspurningar Fyrstu jólaminningarnar? „Það hlýtur bara að vera þegar ég var að kafna úr spenningi yfir pökkunum og leika mér úti á sleða.“ Jólahefðir hjá þér? „Ég horfi alltaf á Jólaósk Önnu Bellu.“ Ertu dugleg í eldhúsinu yfir hátíðirnar? „Ég reyni það en mér tekst alltaf að klúðra bakstrinum.“ Jólamyndin? „Jólaósk Önnu Bellu og The Polar express.“ Jólatónlistin? „Elska róleg jólalög ensk og ís- lensk.“ Hvar verslarðu jólagjafirnar? „Ég versla heima hér í Keflavík.“ Gefurðu mikið af jólagjöfum? „Já ég á marga nána vini sem fá alltaf gjöf frá mér.“ Ertu vanaföst um jólin, eitthvað sem þú gerir alltaf? „Já, horfi á eins margar bíómyndir og ég get og klára Sörurnar. Mæti svo auðvitað líka í öll ættarboðin. Besta jólagjöf sem þú hefur fengið? „Örugglega skíðin sem ég fékk frá mömmu og pabba á sínum tíma.“ Hvað er í matinn á aðfangadag? „Hamborgarhryggur.“ Eftirminnilegustu jólin? „Gleymi því aldrei þegar gamli ruglaði hundurinn okkar reif upp alla pakkana á aðfangadag.“ Hvað langar þig í jólagjöf? „Aðallega nýja úlpu og skó.“ Alexandra Sæmundsdóttir: Hundurinn reif upp pakkana Alexandra Sæmundsdóttir er 17 ára Keflvíkingur. Hún nýtur þess að horfa á sem flestar bíómyndir um jólin og borða sem mest af Sörum. Hún reynir sitt besta í eldhúsinu en tekst þó yfirleitt að klúðra bakstrinum. Nudd Vellíðan og jafnvægi Djúpvöðvanudd, klassískt heildrænt nudd (heilsunudd), svæðanudd, ilmolíu- og sogæðanudd, aromatherapy, meðgöngunudd, saltskrúbb. Eykur blóðstreymi og súrefni til vöðva. Losar um spennu og bólgur. Komdu í dekur, upplifðu og njóttu. Upplagt fyrir vini, pör og saumaklúbba. GJAFABRÉF &TÆKIFÆRIS-GJAFIR PÖNTUNAR- SÍMI 5128040 Sjá nánar www.heilsuhotel.is Tíu tíma k ort 15% afsláttur Óska Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla S : 421-2045. Verslunarmiðstöðin Krossmói Brýnum hnífaNý tt Lengri opnunartími yfir jólin

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.