Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.12.2013, Blaðsíða 53

Víkurfréttir - 19.12.2013, Blaðsíða 53
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 19. desember 2013 53 hvað hann ætti mörg systkini, en hann gat ekki svarað því vegna þess að pabbi hans á þrjár konur og vinur minn hafði ekki hugmynd um hverjar hinar konurnar voru eða hvar þær byggju. Þannig að það er ekki eins og við höldum heima á Íslandi að þeir Arabar, sem að eiga fleiri ein eina konu, búi allir undir sama þaki. Þeir efnameiri sem eiga fleiri en eina konu þurfa að halda fleiri heimili. Hérna í Bahrain má karlmaður eiga 4 eiginkonur,“ segir Lauga. Yrði gott að fá harðfisk í gegnum Skype Spurð um hvort þau sakni ekki fjölskyldu og vina frá Íslandi segir Lauga þau vera búin að vera ótrú- lega heppin með að það sé búinn að vera mikill gestagangur hjá þeim. „Í raun hef ég ekki fengið tækifæri til að vera með einhverja heimþrá. En það koma tímar sem að maður saknar fjölskyldu og vina og núna mætti alveg vera snjór. Ég er samt með Skype og það er lítið mál að redda því sem ég sakna frá Íslandi. Verst að það er ekki hægt að senda harðfisk í gegnum Skype,“ segir Lauga hlæjandi. Í raun hafi hún ekki lært að meta Ísland meira úr fjarlægð. Dvölin ytra hafi frekar opnað augu hennar varðandi menninguna sem er til staðar í Bahrain. Brenna dekk til að mótmæla Ríkið Bahrain skiptist í þjóðarhóp- ana sunni- og shia múslima. Kon- ungurinn er sunni en þó eru ein- ungis 30 prósent múslima á svæð- inu það líka. Rígur hefur verið á milli þessara tveggja hópa í nokkur ár. „Til að mótmæla aðferðum konungsins fara shia múslimar út á götuhorn með gúmmídekk og brenna þau. Eitt aðalhornið þeirra er hérna rétt hjá okkur og köllum við það öskubakkahornið. Um daginn var akandi á leið í búð og að koma að þessu horni. Þá komu um 20 drengir hlaupandi úr öllum áttum með dekk og einn stoppar beint fyrir framan bílinn og ætlar að henda brennandi dekkinu fyrir framan bílinn. Svo lítur hann inn í bílinn og sér að ég er útlendingur og ákveður í staðinn að henda dekkinu við hliðina á bílnum,“ segir Lauga og viðurkennir að hjartað hafi slegið heldur örar en venjulega þá stundina. Shia mús- limar hafa sagt að þeir vilji alls ekki beina sínum mótmælum að út- lendingum. Brjálaðir ökumenn og hafa aldrei rangt fyrir sér Lauga segir að ef það er eitthvað sem að henni mislíki þar sem hún býr sé það umferðarmenningin. „Þeir keyra hérna eins og brjálæð- ingar með kannski þrjú laus börn í framsætinu og svo liggur einn krakki í glugganum aftur í. Rauð ljós eru eitthvað sem þeir virða ekki. Kannski eru þeir litblindir, ég veit ekki. Einn daginn var mið- fingurinn minn ansi virkur og ný- lega þakkaði ég fyrir að ég beindi honum ekki að röngum bílstjóra því að þá hefði mér verið hent úr landi. En ég er nú aðeins farin að hemja mig núna og bít bara á jaxl- inn og tel upp að tíu.“ Aftur móti segir Lauga að fólkið í Bahrain sé afskaplega afslappað í hugsunarhætti. Fólk sem komi frá Evrópu vilji helst að hlutir séu lagaðir strax. Einnig ef eitthvað sé að eða ef gögn vanti eða svör við einhverju. „Þú getur gleymt því hérna. Það er mjög sérstakt ef að maður fær til dæmis svar við tölvu- pósti. Eða ef þeir ætla að hringja til baka, það bara gerist ekki. Svo hafa þeir aldrei rangt fyrir sér.“ Laugulaug í garðinum Í þessu samhengi nefnir Lauga einnig að þegar fjölskylda hennar flutti í hverfið sem þau búa núna báðu þau um einkasundlaug og sagt að það væri lítið mál. Gæti tekið þrjár til fjórar vikur. Þegar fjórir mánuðir voru liðnir voru þau enn með stóra holu og sandhól í garðinum eftir framkvæmdir en enga sundlaug. „Þá lét ég nú aðeins í mér heyra og sagði við eigand- ann að í Evrópu væru þetta svik vegna þess að við vorum búin að borga fyrir laugina síðan frá byrjun framkvæmda. Næsta sem að við fréttum er að vinnuveitandi Mika- els, DHL, hefur samband við okkur og okkur tjáð að leigusali okkar hafi ekki verið sáttur við það sem að ég hafði sagt og hefði rift leigu- samningnum. Eftir þónokkur sím- töl og pósta okkar á milli hætti hann við að rifta samningnum og sundlaugin var tilbúin tveimur mánuðum seinna. En það var alveg þess virði að bíða eftir henni í 6 mánuði. Við köllum hana Laugu- laug“ segir Lauga. Léttbylgjan og jólakveðjur á RÚV Nú líður að jólum og þótt þau séu ekki haldin hátíðleg að kristinna manna sið þá er þjóðhátíðardagur Bahrain er 16. desember og þá er allt skreytt hátt og lágt. Lauga segir að fyrir fjölskyldu hennar séu það jólaskreytingar. „Ég er afskaplega mikið jólabarn og held í hefðir og skreyti snemma. En það er ekki auðvelt og dálítið einkennilegt að skreyta hérna og skella sér í sund- laugina sama dag í 27 gráðu hita. En það má segja að Léttbylgjan sé búin að hjálpa mér mikið með jóla- skapið og til að fá almennilega jóla- stemningu hlusta ég á jólakveðj- urnar á vefsíðu RÚV.“ Áramótin í Dubai Jólahaldið hjá þeim verður eins og heima á Íslandi. Tvær dætur Laugu sem eru í skóla á Íslandi koma út til þeirra og þau verða með ham- borgarhrygg á aðfangadag. „Við erum meira að segja komin með hangikjöt sem við ætlum að hafa á jóladag. Á milli jóla og nýárs ætlum við svo að vera með matarboð fyrir þá fáu Íslendinga sem eru hérna í Bahrain. Áramótunum ætlum við svo að verja í Dubai. Þar vorum þar í fyrra og flugeldasýningin var næstum eins flott og á Íslandi á Ljósanótt,“ segir Lauga brosandi að lokum. Yifrlitsmynd yfir hluta Bahrain Aðalmoskan Sebastian Sigfús við Laugulaug Lauga, Sebastian og Þóra Snædís
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.