Víkurfréttir - 19.12.2013, Qupperneq 48
fimmtudagurinn 19. desember 2013 • VÍKURFRÉTTIR48
Blaðamaður Víkurfrétta Ey-þór Sæmundsson er búsettur
í Berlínarborg þessi misseri. Þar
hefur hann undanfarið verið með
myndavélina á lofti og rannsakað
jólamenningu hjá Þjóðverjum.
Ýmislegt er öðruvísi í ríki Angelu
Merkel. Maturinn er ekki eins
góður, hér hefur ekkert snjóað
og maður fær bara einu sinni í
skóinn.
„Ég hef upplifað jólin víða í gegnum
tíðina. Á ströndum Kanaríeyja, á
sundlaugarbakka í Flórída, í Vínar-
borg og núna í Berlín. Þar er ég
búsettur um stund og hef undan-
farið notið þess sem borgin hefur
upp á að bjóða þegar kemur að jól-
unum. Þjóðverjar eru ekki duglegir
að skreyta heimili sín, hvort sem
það er að utan eða innan, en ferða-
mannastaðir og verslunarkjarnar
eru þó skreyttir hátt og lágt. Jóla-
markaðir í Þýskalandi eru heims-
fræg fyrirbæri og hér í Berlín er
aragrúi af slíkum mörkuðum. Þar
safnast fólk saman og fær sér snarl
en þó aðallega til þess að hitta vini
og fá sér í aðra tána. Sérstakt jóla-
glögg er afar vinsælt hér í landi,
en það kallast Glühwein, en það
er drykkur sem settur er saman
úr hituðu rauðvíni, kanil, negul og
ýmsum. Það eru til ótal afbrigði
af drykknum og m.a. rákust við á
íslenska útgáfu af drykknum. Við
könnuðumst satt best að segja lítið
við drykkinn sem var gerður úr
rommi, dökkum bjór og appelsínu-
safa. Alltaf er maður að læra eitt-
hvað nýtt í útlöndum. Það er nota-
legt að vita til þess að alltaf er stutt
í næsta bás sem selur Glühweinið
góða en það yljar vel á köldum
vetrarkvöldum. Ristaðar hnetur og
möndlur eru afar vinsælar hér á
jólamörkuðum en þær eru húð-
aðar með karamellu og ilmurinn af
þeim er alveg sérstaklega lokkandi.
Hefðir og venjur eru misjafnar
milli landa og eiga Þjóðverjar sér
nokkrar hefðir sem við könnumst
lítið við heima á Fróni. Þýskaland
er stórt og venjurnar eru a.m.k.
jafn margar og sambandslöndin
innan ríkisins eru mörg. Hér er
t.a.m. aðeins einn jólasveinn en
hann kallast Sankti Nikulás. Hann
kemur til byggða þann 6. desember
og gefur börnum gott í skóinn.
Við Íslendingar erum vön að skilja
skóinn eftir í glugganum en hér
tíðskast það að setja skótauið fyrir
framan útidyrahurðina. Einn jóla-
siður sem tíðkast í Þýskalandi þótti
mér sérstakur. Á aðfangadag eru
Þjóðverjar vanir að drekka töluvert
magn af áfengi, bæði með matnum
og síðar um kvöldið. Þá hittast
gjarnan vinir og fara út á knæpu
eða halda veislur í heimahúsum.
Þetta yrði líklega litið hornauga á
Íslandi en sjaldgæft er að boðið sé
upp á nokkuð sterkara en malt á
aðfangadag.
Jólaverslunin er að sjálfsögðu af
svipuðum toga og heima á Ís-
landi. Í verlsunarmiðstöðvum er
ys og þys og sama stressið og við
þekkjum frá heimahögunum. And-
stæðurnar í Berlín eru þó skemmti-
legar. Hér eru nútímalegar bygg-
ingar með risastórum glerhúsum
og tilheyrandi verslunarkjörnum.
Þegar farið er í eldri hverfin eru
fleiri litlar huggulegar búðir þar
sem „kaupmaðurinn á horninu“
hefur hreiðrað um sig. Það sem
einkennir borgina er að maður þarf
að hafa örlítið fyrir því að sækja sér
jólaandann. Fyrir utan markaði og
stórar verslanir er ekki ýkja jólalegt
á götum borgarinnar. Snjóleysið
hefur liklega eitthvað með það að
gera að ekki er eins og jólalegt og
heima á Íslandi.
-jólapistill pósturu eythor@vf.is
jól í Berlínarborg
-Glühwein yljar líkama og sál á aðventunni
Rauð
Glühwein yljar, hressir og kætir í svartasta skammdeginu.
Ég er ekki frá því að hér eftir verði jólahefð hjá mér að
dreypa á örlitlu Glühwein yfir hátíðarnar.
Við Íslend-
ingar erum
vön að
skilja skóinn eftir
í glugganum en
hér tíðskast það
að setja skótauið
fyrir framan úti-
dyrahurðina
Jólamarkaðurinn í Charlottenburg er gríðarlega stór og vinsæll.
Öll kvöld vikunnar er líf og fjör við þessa fyrrum konungshöll.