Ægir - 01.06.2014, Side 10
10
„Sjómenn eru almennt tækni-
sinnaðir og fylgjast vel með.
Þeir gera að sjálfsögðu kröfu
um að hafa aðgang að fjöl-
breyttum afþreyingarmögu-
leikum á sínum frívöktum,“
segir Guðmundur Bragason
sölu- og markaðsstjóri hjá Són-
ar ehf. í Hafnarfirði.
Guðmundur stofnaði Sónar
ásamt Vilhjálmi Árnasyni árið
2005 og sérhæfir það sig í sölu
og þjónustu á siglingatækjum.
„Við leggjum metnað okkar í að
eiga eða geta útvegað öll þau
tæki sem þarf til notkunar um
borð í skipum við Ísland og
sækjumst eftir því að eiga gott
samstarf við notendur þeirra til
þróunar lausna sem geta gert
rekstur útgerða hagkvæmari og
vinnuumhverfi íslenskra sjó-
manna þægilegra og ör-
uggara,“ segir Guðmundur.
Guðmundur segir að fyrstu
gervihnattasjónvörp hafi komið
í íslensk fiskiskip í kringum síð-
ustu aldamót, fyrst í þau allra
stærstu, en æ fleiri hafi í tímans
rás sett upp sjónvarpskúlu, sem
er forsenda þess að ná út-
sendingum um borð. „Þessar
kúlur eru mjög víða, einkum þó
í stærri og millistórum skipum.
Þær henta ekki fyrir allra
minnstu bátana,“ segir hann.
Netnotkun á sjó fer vaxandi
Hann bætir við að sjómenn vilji
í sinni vinnu úti á sjó hafa svip-
aða möguleika á að fylgjast
með sjónvarpsefni, sem og nýta
fartölvur sínar og farsíma. Með
því að setja upp sjónvarpskúlu
næst allt sjónvarpsefni sem
sent er út um gervihnött og
eins geta menn fylgst með út-
sendingum frá RÚV. Enn sem
komið er nást ekki fleiri ís-
lenskar stöðvar á miðunum.
Guðmundur Bragason sölu- og markaðsstjóri Sónar ehf.
Sjómenn eru tæknisinn-
aðir og fylgjast vel með
Sjómenn vilja svipaða möguleika á að fylgjast með sjónvarpsefni, sem
og nýta fartölvur sínar og farsíma, hvort heldur þeir eru í landi eða úti á
sjó. Með því að setja upp sjónvarpskúlu næst allt sjónvarpsefni sem sent
er út um gervihnött.
Guðmundur Bragason sölu- og
markaðsstjóri hjá Sónar ehf. í
Hafnarfirði.
A
fþ
rey
in
g
til sjós