Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.2014, Blaðsíða 24

Ægir - 01.06.2014, Blaðsíða 24
24 Þjónusta Faxaflóahafna sf. hef- ur tekið töluverðum breyting- um á síðustu árum í. Ægir ræddi við Gísla Gíslason, hafnarstjóra Faxaflóahafna sf. um þróunina, framtíðarhorfur Reykjarvíkur- hafnar og spennandi tækifæri á Grundartanga. „Það má segja að hafnar- starfsemin – einkum í Reykjavík – hafi þróast og breyst allt frá því að hafist var handa við framkvæmdir við Gömlu höfn- ina árið 1913. Upphaflega var höfnin fiski- og flutningahöfn en árið 1968 varð sú breyting að Eimskip flutti í Sundahöfn og Skipadeild Sambandsins (Samskip) nokkru síðar. Á síð- ustu árum hefur þróunin verið talsverð og ný starfsemi að ryðja sér til rúms í bland við aukinn áhuga almennings á að- gengi að hafnarsvæðunum. Gamla höfnin í Reykjavík hefur fengið nýja nágranna sem sjá má í Hörpunni, hóteli, veitinga- stöðum og verslunum og á næstu árum mun nýjum ná- grönnum fjölga. Í bland við þetta hefur hafsækin ferðaþjón- usta, svo sem hvalaskoðun og náttúrulífssiglingar, stóraukist. Eftir sem áður er það útgerðin, fiskvinnslan og slippurinn, sem eru hryggurinn í starfseminni og fyrirferðarmest. Það hefur því bara verið spennandi að finna rétta jafnvægið á milli ólíkrar starfsemi, sem hefur dafnað prýðilega við Gömlu höfninni. Á næstu árum má ef- laust sjá þróun í þá átt að stór- um skemmtiferðaskipum mun fjölga, komutími skipanna mun lengjast fram á vor og haust og farþegum mun fjölga. Þá von- umst við einnig eftir að smærri skip muni í auknum mæli leggja leið sína til Reykjavíkur.“ Mikilvægt að stíga rétt skref Gísli segir þróun hafna víða í Evrópu vera með sambærileg- um hætti og hjá Reykjarvíkur- höfn. Hins vegar sé mikilvægt að taka tillit til aðstæðna á hverjum stað og fara sér hægt. „Í Örfirisey hefur orðið mikil gerjun þar sem ólíkar starfs- greinar hafa komið sér fyrir í sátt við hverja aðra. Þar er hins vegar mikilvægt að verja að- stöðu útgerðar og fiskvinnslu, enda er Reykjavík eina höfuð- borgarhöfnin í Evrópu sem get- ur státað af öflugri útgerð og hátæknifiskvinnslu. Með stofn- un Sjávarklasans hefur verið stigið skref til að undirstrika þessa stöðu hafnarinnar. Íbúða- byggðin sem mun rísa norðan Mýrargötu mun í sjálfu sér ekki hafa mikil áhrif á starfsemi hafnarinnar - en vissulega mun aukið nábýli við slippinn geta haft í för með sér breytingar. Tíminn mun leiða það í ljós.“ Óráðlegt að ganga meira á hafnarsvæðið Þó að Gísli sé hlynntur því að fjölbreytt starfsemi þrífist við höfnina segir hann afstöðu Faxaflóahafna sf. skýra hvað varðar frekari uppbyggingu á hafnarsvæðinu. „Eigendur Faxaflóahafna sf. hafa sett fram þá skýru stefnu að Gamla höfnin verði áfram lif- andi atvinnuhöfn sem þýðir að íbúðabyggð getur ekki þróast of nálægt athafnasvæðinu. Miðað við núverandi skipulag á þetta ekki að vera vandamál – en að mínu viti má ekki nálgast hafnarsvæðið meira en fyrir- hugað er. Atvinnulega, menn- ingarlega og sögulega er Gamla höfnin merkilegt fyrir- bæri sem þarf að lifa í sátt við Gísli Gíslason, hafnarstjóri, við Reykjarvíkurhöfn og með fjölbreytta starfsemi hafnarsvæðisins í baksýn. H a fn ir

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.