Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.2014, Blaðsíða 25

Ægir - 01.06.2014, Blaðsíða 25
25 þá fjölbreytni sem þróast hefur í næsta nágrenni. Vesturhöfnin sinnir útgerð og fiskvinnslu, Suður- og Vesturbugtin haf- sækinni ferðaþjónustu, Austur- bugtin skútum, en mikilvægt er að Miðbakki og Ægisgarður verði áfram líflegur vettvangur til móttöku á skipum af ýmsum gerðum og stærðum. Hver veit nema að Austurbakki og Faxa- garður fái ný hlutverk innan einhverra ára sem viðlega fyrir smærri skemmtiferðaskip.“ Grundartangi hefur ótvíræða kosti Faxaflóahafnir hafa einnig á höndum sér umsýslu hafnar- innar á Grundartanga og eiga lóðir þar í kring. Fyrirspurnir um lóðaúthlutanir birtust í fréttum snemma árs 2014. Þegar Gísli var inntur eftir svörum um stöðu mála á Grundartanga hafði hann þetta að segja. „Sem stendur er verið að lengja hafnarbakka á Grundar- tanga og búa í haginn fyrir aukna starfsemi. Grundartang- inn hefur ótvíræða kosti fyrir margs konar starfsemi vegna ákjósanlegrar hafnaraðstöðu, öflugs afhendingarkerfis raf- magns og góðs lands. Við höf- um verið að móta stefnu um þá tegund fyrirtækja sem við vilj- um fá inn á svæðið og horfum þá fyrst og fremst til fyrirtækja með lágmarks umhverfisrösk- un. Í því efni er ýmis áhugaverð framleiðsla sem tíminn mun leiða í ljós hvernig tekst að ná til. Sem stendur er unnið að undirbúningi verkefnisins Sil- icor Materials á Grundartanga, sem hyggur á afar áhugaverða sólarkísilframleiðslu. Allnokkur handtökin eru eftir í því verk- efni – en vonandi kemst það á leiðarenda á árinu. Önnur verk- efni, eins og þurrkun á timbri með endurnýtingu á afgangs- orku frá ELKEM og fleira eru til skoðunar en ekki komin á það stig að hægt sé að slá neinu föstu.“ Halda þarf rétt á spilunum Gísli ræðir einnig mikilvægi þess að starfsemi Faxaflóahafna sf. taki eðlilegum breytingum og sé í stöðugri þróun, sam- ferða framförum í tækni, vísind- um og efnahagslífinu almennt. „Faxaflóahafnir eru með hvað mest umsvif og fjöl- breyttastar hafna á Íslandi. Sundahöfnin er megin gátt inn- flutnings og útflutnings á vör- um og afurðum og á Grundar- tanga eru miklir flutningar með hráefni og framleiðslu stóriðj- unnar. Akraneshöfn er enn mik- ilvæg fiskihöfn þó svo að hlut- verk hennar hafi breyst á síð- ustu árum. Samspil Gömlu hafnarinnar í Reykjavík og Akra- neshafnar er eitthvað sem við eigum eftir að sjá í auknum mæli bæði, vegna starfsemi HB Granda hf. og ferðaþjónustu. Það er hlutverk Faxaflóahafna sf. að búa til hreiður og aðstöðu fyrir spennandi starfsemi og þrátt fyrir efnahagsslagsíðu síð- ustu ára þá hefur bærilega tek- ist til á liðnum árum og framundan er mýgrútur tæki- færa sem vonandi tekst að nýta ef rétt verður á spilum haldið. Þróun og breytingar eru hluti hafnarsögunnar og svo verður áfram – þess vegna er mikil- vægt að velja vel þær leiðir sem farnar eru á hverju hafnarsvæði fyrir sig.“ Gísli Gíslason, hafnarstjóri, við Reykjarvíkurhöfn og með fjölbreytta starfsemi hafnarsvæðisins í baksýn. Gísli og Theresa Jester, framkvæmdarstjóri Silicor Materials, undirrita samningsskilmála vegna undirbúnings sólarkísilframleiðslu á Grundartanga. Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna sf.: „Mikilvægt að verja aðstöðu útgerðar og fiskvinnslu“

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.