Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.2014, Blaðsíða 28

Ægir - 01.06.2014, Blaðsíða 28
28 Undanfarið hafa íslenskar út- gerðir samið um smíði á átta nýjum fiskiskipum fyrir hátt í 20 milljarða króna. Sex af þess- um skipum verða smíðuð hjá Celiktrans skipasmíðastöðinni í Tyrklandi. Þrjú skipanna eru uppsjávarveiðiskip en fimm eru ísfisktogarar. Ísfélagið í Vest- mannaeyjum tók nýlega við uppsjávarskipinu Sigurði VE 15 hjá Celiktrans skipasmíðastöð- inni og er skipið væntanlegt til landsins í júlímánuði. HB- Grandi samdi í fyrrahaust um smíði á tveimur nýjum uppsjáv- arveiðiskipum hjá Celiktrans og nýlega tilkynnti fyrirtækið að samið hafi verið við sömu skipasmíðastöð um smíði á þremur ísfisktogurum til við- bótar. Áður áður höfðu Vinnslu- stöðin í Vestmannaeyjum og Hraðfrystihúsið-Gunnvör greint frá samningi um smíði á tveim- ur ísfisktogurum í Kína. Undanfarin ár hafa fjár- festingar í fiskveiðiskipum hér á landi verið mjög takmarkaðar og hefur verið vísað til þess að vegna mikillar skattlagningar og óvissu um lagalega umgjörð sjávarútvegsins hafi menn haldið að sér höndum. Það eru því mikil umskipti þegar samið er um 8 ný fiskiskip á stuttum tíma. Hafa ber í huga að þessi „fjárfestingapakki“ gæti enn átt eftir að stækka því Samherji, stærsta útgerðarfélag landsins, hefur ekki tilkynnt um sín áform í þessu efni, en þau munu skýr- ast á næstunni. Ekki hægt að bíða lengur En hvað hefur breyst? Útvegs- menn sem Ægir var í sambandi við segja að laga- og rekstrar- umhverfið hafi ekki batnað, en hins vegar sé ekki hægt að bíða lengur með endurnýjunina. „Menn vonuðust til að það yrði einhver viðsnúningur í viðhorfi stjórnmálamanna til sjávarút- vegsins og að rekstrarumhverf- ið myndi lagast. Það hefur ekki gerst ennþá en við lifum í von- inni. Það var hins vegar kominn tími á endurnýjun og hag- ræðingu. Í stað nýja skipsins, sem við erum að fá, hverfa þrjú önnur úr rekstrinum,“ segir Stefán Friðriksson fram- kvæmdastjóri Ísfélagsins í Vest- mannaeyjum. Í svipaðan streng tekur Sig- urgeir Brynjar Kristgeirsson framkvæmdastjóri Vinnslu- stöðvarinnar í Vestmannaeyj- um sem segir að rekstrarað- stæður, sem hið opinbera skapi útgerðinni, hafi ekkert batnað. Nýtt ísfiskskip Vinnslustöðvar- innar mun koma í stað Jóns Vídalíns VE-82 sem var smíðað í Japan 1972. „Hjá okkur er þetta afskap- lega einfalt. Við getum ekki róið öllu lengur á skipi sem er orðið 42ja ára gamalt og því verðum Nýsmíðahrinan hafin - átta ný og öflug fiskveiðiskip væntanleg til landsins Teikning af öðru tveggja ísfiskskipa sem Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum og Hraðfrystihúsið-Gunnvör hafa samið um smíði á í Kína. S k ip a sm íða r

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.