Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.2014, Blaðsíða 21

Ægir - 01.06.2014, Blaðsíða 21
21 fyrir þessi miklu afföll hefur nýliðun verið góð og hrygn- ingarstofninn því haldið svip- aðri stærð undanfarin fjögur ár. Þó loðnuvertíð á síðastliðnum vetri hafi verið endaslepp eru horfur varðandi veiðar á næstu vertíð þokkalegar þar sem að töluvert af ungloðnu mældist í leiðangri síðastliðið haust og byggt á þeim mælingum hefur ráðgjöf um upphafsaflamark verið veitt.“ Hlýsjávarstofnar gefa eftir Jóhann vekur athygli á að ný- liðun margra hlýsjávarstofna hafi farið minnkandi á undan- förnum árum. Þannig séu versnandi horfur í keilu, löngu, blálöngu, skötusel, langlúru, humri og fleiri tegundum sem að mestu halda sig í hlýjum sjó við suður- og vesturströndina. „Ástæður fyrir þessari nei- kvæðu þróun eru ekki þekktar, en engin merki eru um að hlý- sjávarástand á Íslandsmiðum sé á undanhaldi. Hækkandi sjávar- hiti hefur án efa haft áhrif á vax- andi makrílgöngur síðustu ár. Þannig hefur útbreiðsla hans náð vestur fyrir landið síðan 2011 og nýhrygnd makrílegg hafa fundist á allstóru svæði suðaustur og suður af landinu innan íslenskrar lögsögu. Hvort hin aukna makrílgengd eða aðrar breytingar í lífkerfinu séu hér að hafa áhrif á nýliðun mik- ilvægra nytjastofna við landið verður ekki fullyrt. Þetta er hins vegar rannsóknarefni, sem beina þarf sjónum betur að. Mikilvægt er að fylgjast náið með framvindu ástands sjávar í kringum landið á næstu misser- um, þar sem sveiflur í hitastigi og hafstraumum hafa afgerandi áhrif á stærð og göngur fiski- stofna, ekki síst uppsjávarstofn- anna.“ Minni nýliðun áhrifavaldur í þorskinum Líkt og að framan segir leggur Hafrannsóknastofnun til að afli næsta fiskveiðiárs í þorski verði 218 þúsund tonn. Hrygningar- stofninn er þrefalt stærri en hann var í lágmarki 1992-1994 og viðmiðunarstofninn stærri en hann hefur verið um þriggja áratuga skeið. Það er hins vegar slök nýliðun síðustu ára sem er ástæða þess að ekki er hægt að ganga lengra í veiðiráðgjöf fyrir næsta ár. „Meðalstærð árganga 2005– 2010, sem nú eru uppistaðan í stofninum, er um 140 milljónir 3 ára nýliða. Það er 80% af með- altali árganga 1955–2012 sem er 176 milljónir. Árgangur 2010 er slakur, árgangur 2011 í með- allagi og árgangur 2012 undir meðallagi. Fyrstu mælingar á 2013 ár- ganginum benda til þess að hann sé slakur eða um 110 milljónir,“ segja höfundar nytja- stofnaskýrslunar. „Þar sem nýliðun á undan- gengnum áratug hefur verið nokkuð undir meðallagi, er stækkun stofnsins á undanförn- um árum afleiðing minni sókn- ar. Ef aflareglunni er fylgt eru líkur á að afli haldist svipaður á komandi árum. Meiri afla er ekki hægt að búast við nema nýliðun batni.“ Ýsustofninn minnkar hratt Eins og áður segir er nytja- stofnaskýrslan dökk hvað ýsu- stofninn varðar. Ráðlögð var 38 þúsund tonna veiði í ár og enn lækkar ráðgjöfin fyrir komandi fiskveiðiár, eða í 30.400 tonn. Og skýrsluhöfundar leggja áherslu á að allt útlit sé fyrir enn meiri samdrátt í ýsuveiðum á komandi árum. „Ýsustofninn hefur minnkað hratt frá árinu 2006 samhliða því að stórir árgangar frá 1998– Stærð hrygningar og viðmiðunarstofns í þorski frá árinu 1975 ásamt framreikningum til ársins 2018 miðað við að afli verði samkvæmt afla- reglu. Stærð viðmiðunarstofns ýsu frá árinu 1979 ásamt framreikningum til ársins 2017, miðað við að aflareglu verði fylgt. Fátt virðist geta komið í veg fyrir mjög ákveðna niðusveiflu í ýsuveiðunum. Veiðisvæði ýsu við Ísland árið 2013. Dekkstu svæðin sýna mestan afla. Ýsu verður mest vart á norðlægari svæðunum við landið. Minnkandi ýsuafli mun gera mörgum útgerðum og vinnslum erfitt fyrir á komandi árum.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.