Ægir - 01.06.2014, Qupperneq 12
12
Það er margt að gerast í sjávar-
útvegi um þessar mundir og sí-
fellt fleiri fyrirtæki eru farin að
nýta viðbótarhráefni eða auka-
afurðir til að þróa og framleiða
nýjar vörur. Samhliða því hefur
samvinna fyrirtækja aukist,
með auknu samstarfi næst
meiri hagræðing. Afli af Ís-
landsmiðum hefur dregist
saman miðað við það sem áður
var og í kjölfarið hafa menn
beint sjónum að svonefndum
aukaafurðum, því sem áður var
ekki nýtt. Mikil vakning hefur
verið í þá veru og æ fleiri sem
huga að því að nýta þann hluta
fisksins sem áður fór jafnvel til
spillis, var vannýttur eða not-
aður í verðlitar afurðir.
Vinnslan hefur síðustu misseri
færst æ meir af sjó og í land og
þannig hafa einnig skapast
fleiri færi á að nýta allar þær
afurðir sem til falla. Fjölmörg
nýleg dæmi eru um að tekist
hafi að þróa verðmætar vörur
úr þessu viðbótarhráefni.
Erla Ósk Pétursdóttir er
framkvæmdastjóri Codland ehf.
í Grindavík, en fyrirtækið hefur
það að markmiði að stuðla að
framþróun í sjávarútvegi með
áherslu á fullnýtingu, þróun og
samstarf. „Okkar leiðarljós er að
hámarka nýtingu sjávarafurða,
hvetja til umræðu um þessi mál
og auka samstarf sem skapar
grundvöll til frekari þróunar og
aukinna verðmæta afurða,“
segir Erla. Hjá fyrirtækinu eru
nú tveir starfsmenn í fullu starfi,
auk tveggja sumarstarfsmanna.
Codland var stofnað vorið
2012, en stofnendur þess eru
sjávarútvegsfyrirtækin Þorbjörn
hf. og Vísir hf. sem bæði eru
með höfuðstöðvar í Grindavík
auk Haustaks, fyrirtækis sem fé-
lögin tvö eiga í sameiningu og
hafa rekið frá árinu 1999.
Ávinningur af samvinnu
Forsaga þess að Codland var
stofnað má rekja til þess að Þor-
björn hf. og Vísir hf. í Grindavík
sameinuðust um að stofna fé-
lagið Haustak á árinu 1999. Það
er nú stærsta fiskþurrkunarfyrir-
tækið hér á landi og sérhæfir
sig í þurrkun hinna ýmsu fisk-
afurða. Starfsemin er bæði á
Reykjanesi og Egilsstöðum,
starfsmenn eru um 50 talsins,
en afurðir er einkum seldar til
Nígeríu.
„Formleg samvinna þessara
tveggja félaga hófst með stofn-
un Haustaks sem hefur í áranna
rás vaxið og dafnað, en til þess
var einmitt stofnað á sínum
tíma til að vinna úr aukaafurð-
um og skapa þannig atvinnu og
verðmæti. Menn sáu hag-
kvæmnina í því að starfa saman
á þessum vettvangi og ávinn-
ingurinn af samvinnunni hefur
verið umtalsverður,“ segir Erla.
Rúmum áratug síðar sáu fyrir-
tækin tvö í Grindavík frekari
tækifæri í fullvinnslu og stofn-
uðu félagið Codland.
Slógi breytt í hrálýsi og mjöl
„Á þessum tíma var kominn far-
vegur fyrir hráefni sem áður
hafði verið illa nýtt eða fargað
og við höfðum í nokkur ár velt
fyrir okkur hvernig best væri að
nýta,“ segir Erla.
Slógið er um 5-7% af fiskin-
um og er að uppistöðu prótein
Æ
g
isv
iðta
lið
Erla Ósk Pétursdóttir
framkvæmdastjóri
Codland ehf.
í Grindavík