Ægir - 01.06.2014, Síða 14
14
Við tökum á
móti netum
Hafðu samband og fáðu
nánari upplýsingar!
Sími 559 2200
www.efnamottakan.is
Efnamóttakan tekur við
veiðafæraúrgangi úr næloni, þ.e:
• netaafskurði
• hlutum úr f lottrolli
• nótaefni
Fáðu hjá okkur sérsniðna poka
undir netaafskurðinn.
Spennandi verkefni og stór
markaður
„Þetta er mjög spennandi verk-
efni og við sjáum tækifæri á að
geta í nánustu framtíð hafið
framleiðslu á verðmætum vör-
um, sem bæði yrðu nýttar til
framleiðslu á snyrtivörum og í
fæðubótarefni,“ segir Erla.
Kolla gen er ein tegund pró-
teins, eitt helsta byggingarefni
líkamans og þannig eru til að
mynda um 75% efnis í húð
mannslíkamans úr kollageni.
Líkaminn hrörnar með árunum,
húð, brjósk, bein, liðir og vöðv-
ar slakna og eldast. Rannsóknir
hafa sýnt fram á að reglubund-
in neysla kollagens getur
spornað við áhrifum öldrunar
með því að stuðla að nýmynd-
un brjósks í liðamótum og
styrkja bandvef húðarinnar. Út-
koman verður sterkari liðamót
og sléttari húð. „Það er því al-
veg ljóst að til er markaður fyrir
þetta efni, sem vissulega hefur
verið í boði áður, en einkum og
sér í lagi hefur það verið unnið
úr svína- og nautshúðum. Í nán-
ustu framtíð verður það einnig í
boði unnið úr fiskroði úr fiski
sem veiddur er í villtri náttúru
og það veit ég að mörgum þyk-
ir spennandi valkostur,“ segir
Erla.
Hugsunarháttur hefur breyst í
takt við breytingar í samfélaginu
Rannsókn sem gerð var á veg-
um Íslenska sjávarútvegsklas-
ans á umsvifum fyrirtækja sem
stunda fullvinnslu aukaafurða
og/eða líftækni leiddi í ljós að
velta þeirra á árinu 2012 nam
22 milljörðum króna, jókst um
17% frá árinu áður. Erla segir að
um þessar mundir séu margir
að skoða þau tækifæri sem
felist í því að nýta betur ýmsar
þær aukaafurðir sem til falla í
sjávarútvegi hér á landi og það
sé gott. Hugsunarháttur hafi
breyst í takti við breyttar áhersl-
ur í þjóðfélaginu. „Fólk horfir al-
mennt öðrum augum á hlutina
en það gerði áður, við hugum
meira að því hvað við erum
með í höndunum og hvernig
við getum búið til úr því verð-
mæti. Takmarkað það sem við
megum veiða og okkar skylda
er að gera sem mest verðmæti
úr því. Tækninni hefur fleygt
fram, aukin menntun m.a. í
sjávarútvegi hefur líka haft já-
kvæð áhrif og í æ meira mæli
finnst mér sem menn beini
sjónum sínum að þeim auka-
afurðum sem við höfum yfir að
ráða. Tækifærin eru fyrir hendi,
við þurfum að nýta þau,“ segir
Erla.
Davíð Tómas Davíðsson, þróunarstjóri Codland, við rannsóknir í rann-
sóknaraðstöðu Keilis á Ásbrú, en félögin hafa nýlega gert með sér sam-
starfssamning. Í honum felst m.a. að Codland nýtir þá aðstöðu sem
Keilir hefur yfir að ráða við Ásbrú.