Ægir - 01.06.2014, Page 17
17
30% af tekjum vegna
skemmtiferðaskipa
„Það er ekki bara að komur
skemmtiferðaskipa skipti okkur
hjá Hafnasamlagi Norðurlands
verulegu máli, heldur aukast
umsvif hjá ýmsum aðilum sem
tengjast ferðaþjónustu með
einum eða öðrum hætti veru-
lega,“ segir Pétur en um 30% af
heildartekjum samlagsins má
rekja til skemmtiferðaskipa og
hefur hlutfallið aukist ár frá ári.
Fyrsta skipið lagði að
bryggju um miðjan maí og það
síðasta sem viðdöl hefur á
þessu sumri kemur 23. septem-
ber. Pétur segir að undanfarin
ár hafi oft komið skip til Akur-
eyrar í maí og það síðasta jafn-
vel verið á ferðinni þegar komið
er fram í október. Flest komi þó
skipin yfir hásumarið, frá miðj-
um júní og fram í miðjan ágúst.
Það verður því nokkur nýlunda í
mars, næsta vetur þegar von er
á skemmtiferðaskipi til Akureyr-
ar. Þar verður á ferðinni hið
breska Voyager sem býður upp
á norðurljósaferð á þessum
árstíma.
Nokkrir annasamir dagar
„Það verða nokkrir stórir dagar í
sumar þar sem fleiri en eitt skip
eru hér í einu og þá má búast
við miklu fjöri,“ segir hann. Sem
dæmi þá verða á Akureyri fjög-
ur stór skemmtiferðaskip þann
1. ágúst næstkomandi. „Það
verður nokkuð annasamur dag-
ur geri ég ráð fyrir og mikil um-
svif víða. Það verða allir á tán-
um svo allt gangi snurðulaust
fyrir sig,“ segir hann.
Pétur segir að umferð
skemmtiferðaskipa hafi jafnt og
þétt aukist í áranna rás, en
þegar litið sé til baka hafi aukn-
ingin numið 9% á milli ára
undanfarin 20 ár. „Það er í raun
ekki útlit fyrir annað en svona
verði það áfram í nánustu fram-
tíð, en auðvitað er aldrei á vísan
að róa í þessum efnum og ýmis
ljón geta orðið á vegum,“ segir
hann og nefnir að mörg skipa-
félög hafi í auknum mæli beint
skipum sínum til Asíulanda
undanfarin ár og þá geti ýmsar
álögur, skattar og gjöld haft
áhrif á rekstur skipanna. „En við
erum engu að síður bjartsýn á
að skipin haldi áfram að steyma
hingað á norðlægar slóðir og
gerum allt sem í okkar valdi
stendur til að svo verði,“ segir
hann.
10 skemmtiferðaskip væntanleg
í sumar í Fjarðabyggð
Í sumar eru væntanleg til
Fjarðabyggðar 10 skemmti-
ferðaskip, þar af 9 á Eskifjörð en
1 á Norðfjörð. Heildar brúttó-
tonnatala þessara skipa er um
210.800 tonn og taka þau um
5.700 farþega og eru með um
2650 áhafnarmeðlimi.
Steinþór Pétursson, fram-
kvæmdastjóri Fjarðabyggðar-
hafna segir að Eskifjörður sé til-
tölulega nýr í þessum geira
hafnsækinnar starfsemi, en
þangað kom fyrsta skipið árið
2012. Tvö skip komu í fyrrasum-
ar og 10 skemmtiferðaskip eru
væntanleg í sumar. „Það er ekki
gott að segja fyrir um hvernig
þróunin verður á næstu árum,
en tvær bókanir hafa þegar
borist vegna ársins 2015 og
vonir standa til að framhald
verði á fjölgun skipa til Eski-
fjarðar. Við höfum enn litla
reynsla á þessu sviði og því er
ekki vitað nákvæmlega í hvað
ferðamenn vilja helst sækja en
væntanlega er það mannlíf,
menning, náttúra og söfn
svæðisins. Það mun reyna á það
núna í sumar,“ segir Steinþór.
Pétur Ólafsson, skrifstofustjóri Hafnasamlags Norðurlands.
www.isfell.is
Sjófatnaður
Starfsstöðvar Ísfells og Ísnets:
• Ísnet Þorlákshöfn - Óseyrarbraut 28
• Ísnet Vestmannaeyjar - Flötum 19
• Ísnet Húsavík - Barðahúsi
• Ísnet Akureyri - Oddeyrartangi
• Ísnet Sauðárkrókur - Lágeyri 1
• Kristbjörg Ólafsfjörður - Pálsbergsgötu 1
• Ísfell / Ísnet Hafnarfjörður -
Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is