Són - 01.01.2013, Page 26
24 Þorgeir SigurðSSon
Erindin þrjú, númer 27, 28 og 29, taka rúm lega 7 handrits línur (sjá
mynd 9) eða um 2,4 línur hvert erindi sem þýðir að fremur þétt hefur
verið skrifað undir lokin. Hugsan lega er hér um til viljun að ræða, erindi
taka mis mikið pláss, en ef ætlunin var að fylla síðuna með þessu eina
kvæði mátti einmitt búast við því að annað hvort kæmi eyða í lokin eða
að skrifað væri þéttar.
Á eftir erindi 30 er pláss fyrir hálft erindi ef það erindi er álíka þétt
skrifað og erindin þrjú á undan. Ef heilt erindi kæmi þar á eftir væri
mjög þétt skrifað (sbr. mynd).
Í þessari umfjöllun hefur verið gert ráð fyrir að blaðið sé full skrifað en
það sést ekki með berum augum. Á inn rauðum myndum sést að það er
rétt og á þeim sést nokkuð af því sem er skrifað í lok síðunnar.
6. Mækis egg og tilgáta um tryggðareið
Í neðstu línu í aftari dálki las Guð brandur Vigfús son orðin ‹mekıſſ egg›
mækis egg (æ er venjulega skrifað e á síðunni), sjá mynd 6. Þessi orð fylla
líklega þrjár atkvæða stöður í forlínu og standa fyrir miðju, neðst í hægri
dálki. Á eftir þeim kemst hæglega fyrir síð lína með fjórum at kvæðum.
Orðin mækis egg koma þrisvar fyrir í drótt kvæðum,13 einu sinni í Rek-
stefju frá 12. öld og tvisvar í Grá feldar drápu frá 10. öld sem ort
var eftir fall Haralds grá feldar Eiríks sonar og Arin bjarnar. Guð brandur
taldi að orðin í neðri hluta aftari dálks sýndu að þar væri lýst hreysti
og hernaði Arin bjarnar og á þessum stöðum eru orðin einmitt notuð í
slíkum lýsingum.
Orðin mækis egg koma einnig fyrir Eddu kvæðum í tryggðar eiði í
Völundar kviðu í Konungs bók eddu kvæða (upphaf erindis 3214):
ıþa ſl̅ꞇv m͛ aþ ̅
aꝇa vı-ɴa
aꞇ ſcıpſ boꝛþı
⁊ aꞇ ſcıalꝺar rꜹnꝺ.
aꞇ marſ bǫgı
⁊ aꞇ mękıſ eɢ
Eiða skaltu mér áðr
alla vinna
að skips borði
ok að skjaldar rönd,
að mars bægi
ok að mækis egg
Ef niðurlag Arinbjarnarkviðu er á síðu 99v gæti það hafa verið texti
svip aður þessum. mynd 10 sýnir hvað sjá má í neðstu tveimur línum
aftari dálks.
13 Þetta er byggt á leit í sam ræmdum texta Finns Jónssonar 1908–1915, sem er í boði á
vefsíðu The Skaldic Project: abdn.ac.uk/skaldic/db.php.
14 Sjá Braga – óðfræðivef – Greinir skáldskapar: bragi.info. Ath. að ‹⁊, aꞇ› samræmist í ok,
að þar sem það er meginregla hjá skrifara Konungsbókar.