Fréttablaðið - 16.03.2016, Qupperneq 4
Ef lagt væri á 3.000
króna komugjald þá
myndu tekjur árið 2015 hafa
numið rúmum
fimm millj-
örðum króna.
Gylfi Zoëga
hagfræðiprófessor
Efnahagsmál Leggja ætti komu-
gjald á alla sem koma til landsins,
ferðamenn jafnt sem landsmenn.
Þetta segir Gylfi Zoëga hagfræði-
prófessor í grein í nýjasta hefti efna-
hagsritsins Vísbendingar.
„Á árinu 2015 komu alls 1.262
þúsund erlendir ferðamenn til
landsins og 450 þúsund Íslend-
ingar sneru aftur úr ferðalögum
erlendis. Ef lagt væri á 3.000 króna
komugjald þá myndu tekjur árið
2015 hafa numið rúmum fimm
milljörðum króna,“ bendir hann á
í greininni. Tekjurnar segir hann að
mætti nota til að byggja upp innviði
ferðaþjónustunnar.
Gylfi tengir umræðuna um ferða-
þjónustuna því að hér hafi menn oft
grætt á kostnað almenningseigna.
„Það er umhugsunarvert að
bankahagkerfinu sem hrundi
hafi ekki verið búin stofnanaleg
umgjörð sem kom í veg fyrir þau
lögbrot og glannaskap sem síðan
hafa komið í ljós. Það er einnig
merkilegt að þrátt fyrir vaxandi
mikilvægi ferðaþjónustu, sem
nú er orðin stærsta útflutnings-
greinin, skuli ekki hafa verið veitt
meira fjármagni í uppbyggingu
innviða og öryggismál tengd þess-
ari grein.“
Verði ekkert að gert segir Gylfi
ljóst að of margir ferðamenn
muni leika innviði landsins og
náttúru grátt, fjöldi slysa og dauðs-
falla verði og ferðaþjónusta muni
ekki dafna þegar til lengri tíma sé
litið. Líkt og komið hafi í ljós með
bankakerfið forðum fari ekki alltaf
saman hagsmunir þjóðar og einka-
fyrirtækja.
„Þegar fyrirtæki í ferðaþjónustu
neita að leggja á komugjald þá þarf
engu að síður að setja lög um slíkt.
Og ef ferðamönnum fækkar fyrir
vikið, þá er það ekki alslæmt.“ – óká
Þrjú þúsund krónur myndu skila yfir fimm milljörðum
norEgur Réttarhöld í máli fjölda-
morðingjans og hryðjuverkamanns-
ins Anders Behring Breivik gegn
norska ríkinu hófust í gær. Breivik
heldur því fram að sú meðferð sem
hann sætir brjóti gegn tveimur
ákvæðum Mannréttindasáttmála
Evrópu og höfðaði af þeim sökum
mál gegn norska ríkinu.
Þegar fjöldamorðinginn mætti
fyrir rétt í gærmorgun heilsaði hann
með nasistakveðju, en sagði ekki
orð. Í öryggisskyni eru réttarhöldin
haldin í íþróttasal í Skien-fangelsinu,
þar sem Breivik afplánar fangelsis-
dóm sinn.
Breivik segist þjást af einangr-
unarskaða og telur sig sæta ómann-
legri og vanvirðandi meðferð. Hann
heldur því fram að aðstæður hans
jafnist á við pyndingar. Honum hefur
verið haldið í einangrun í fimm ár og
hefur hann því ekkert samneyti við
aðra fanga. Norsk yfirvöld halda því
fram að fyrirkomulagið sé hugsað
sem öryggisráðstöfun þar sem óttast
er að aðrir fangar muni hefna fyrir
hryðjuverkin sem Breivik framdi
árið 2011.
Dómsmálaráðherra Noregs hefur
haldið því staðfastlega fram að
morðinginn sæti ekki illri meðferð.
Hann hefur bent á að allur aðbún-
aður Breiviks sé í takt við það sem lög
og reglur geri ráð fyrir, og gott betur.
Klefi Breiviks er rúmlega þrjátíu fer-
metrar og innan hans hefur hann
meðal annars lærdómsaðstöðu og
aðstöðu til að stunda líkamsrækt.
Breivik hefur einnig aðgang að sjón-
varpi og leikjatölvum, hann eldar
matinn sinn sjálfur og stundar fjar-
nám við háskóla í Ósló.
Hann hefur ekki hitt neinn utan
fangelsis frá upphafi fangelsisvistar
sinnar, ef frá er talinn fimm mínútna
langur fundur með móður hans
skömmu áður en hún dó. Breivik
hefur afþakkað allar heimsóknir frá
einstaklingum utan veggja fangelsis-
ins, meðal annars frá föður sínum.
Breivik er einnig ósáttur við að
allur póstur hans er lesinn af fanga-
vörðum og hann fær einungis að
eyða einni klukkustund úti á dag.
Hinn þrjátíu og sjö ára gamli
Breivik var dæmdur í tuttugu og
eins árs fangelsi árið 2012 fyrir að
hafa drepið sjötíu og sjö manns
árið 2011 í sprengingu í miðborg
Óslóar og með því að skjóta alla þá
sem á vegi hans urðu í Útey þar sem
sumarbúðir ungliðadeildar Verka-
mannaflokksins voru. Sextíu og
níu af fórnarlömbum Breiviks voru
ungmenni. Ólíklegt þykir að honum
muni nokkurn tímann verða sleppt.
Marius Emberland heldur uppi
vörnum fyrir norska ríkið og segir
aðstæður Breiviks réttlætanlegar í
ljósi þess hve alvarlega glæpi hann
framdi. Búist er við að réttarhöldin
standi fram á föstudag og að Breivik
muni bera vitni á morgun.
thordis@frettabladid.is
Réttarhöld fjöldamorðingja
gegn norska ríkinu hófust í gær
Breivik, sem dvelur í 30 fermetra klefa og stundar fjarnám í háskóla, segir aðstæður sínar jafnast á við pyndingar.
Breivik leiddur inn í salinn í gærmorgun. Hann heilsaði stuttu síðar með nasistakveðju. FréttaBlaðið/EPa
Var dæmdur til 21 árs fangelsisrefsingar
22. júlí 2011 Sprenging í grennd
við húsasamstæðu sem hýsir norsk
ráðuneyti í miðborg Óslóar, Átta
manns létust. Skotárás á sumar-
dvalarstað ungliðahreyfingar
norska Verkamannaflokksins á
Útey, 69 létust.
16. apríl 2012 Réttarhöld yfir
Breivik hófust.
24. ágúst 2012 Kveðinn upp
dómur í máli Breiviks. Breivik er
metinn sakhæfur og er dæmdur
til 21 árs fangelsisrefsingar fyrir
fjöldamorð og hryðjuverk.
nóvember 2012 Breivik sendir
fangelsisyfirvöldum kvörtun yfir
aðbúnaði sínum í Skien-fangelsinu.
15. mars 2016 Réttarhöld í máli
fjöldamorðingjans gegn norska
ríkinu hefjast.
BElgía Að minnsta kosti þrír lög-
reglumenn særðust í umfangs-
mikilli lögregluaðgerð í Brussel í
Belgíu í gær. Málið tengist rannsókn
lögreglu á hryðjuverkunum í París í
nóvember síðastliðnum.
Lögreglan réðst inn í hús í úthverfi
í suðurhluta Brussel. Talið er að fólk
sem grunað er um aðild að hryðju-
verkaárásinni hafi búið í húsinu.
Einn er á flótta vegna málsins og
er enn leitað en annar hefur verið
felldur af lögreglu. Mennirnir eru
taldir hafa flúið vettvang með því
að komast upp á þak byggingarinnar
þar sem þeir dvöldu. Í kjölfar skot-
árásarinnar sagði lögregla almenn-
ingi að halda sig innandyra. – þv
Lögreglumenn
særðir í skotárás
lögrEglumál Karlmaður á fer-
tugsaldri hefur játað að hafa kveikt
í iðnaðarhúsnæði við Grettisgötu
mánudagskvöldið 7. mars.
Í tilkynningu frá lögreglu segir að
maðurinn, sem hefur glímt við and-
leg veikindi, dvelji nú á viðeigandi
stofnun. Lögreglan handtók einnig
annan mann í þágu málsins, en sá
var sömuleiðis á vettvangi þegar
eldurinn kom upp. Rannsókn lög-
reglu leiddi hins vegar í ljós að
síðarnefndi maðurinn kveikti ekki
eldinn.
Mikið tjón varð í brunanum en í
húsinu var meðal annars réttinga-
verkstæði, líkamsræktarstöð og
vinnustofa listamanna.Engan sak-
aði þó í brunanum. – skh
Játaði íkveikju á
Grettisgötu
Fjölmennt lið lögreglu tók þátt í að-
gerðum í Brussel í gær. FréttaBlaðið/EPa
1 6 . m a r s 2 0 1 6 m I Ð V I K u D a g u r4 f r é t t I r ∙ f r é t t a B l a Ð I Ð
1
6
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:4
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
C
7
-E
F
7
0
1
8
C
7
-E
E
3
4
1
8
C
7
-E
C
F
8
1
8
C
7
-E
B
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K