Fréttablaðið - 16.03.2016, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 16.03.2016, Blaðsíða 14
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is Halldór Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is Það er mikill misskilningur hjá forystu bændasamtak­anna að Alþýðusamband Íslands vilji með gagnrýni sinni á fyrirkomulag búvörusamninga grafa undan rekstrargrundvelli íslensks landbúnaðar og starfsöryggi þeirra sem í greininni starfa. Þvert á móti byggir mál­ flutningur ASÍ í málinu á því að í greininni séu sóknarfæri sem ekki eru nýtt í nýgerðum búvörusamningum. Það er heldur ekki svo að búvörusamningar séu einkamál bænda og landbúnaðarráðherra. Samningarnir skuldbinda skatt­ greiðendur næsta áratuginn til greiðslu hárra fjárhæða og þeir hafa víðtæk áhrif á þúsundir starfsmanna í matvæla­ iðnaði og verðlag á matvöru til neytenda. Helsta markmið búvörusamninga hefur verið að stuðla að hagræðingu, bæta samkeppnishæfni og lækka vöruverð. Að hluta til hafa markmiðin gengið eftir, í mjólkurframleiðslu hefur búum fækkað en samt er nú framleidd meiri mjólk en nokkru sinni fyrr. Aukin framleiðni hefur hins vegar ekki komið fram í lægra vöruverði til neytenda, vöruúrval er takmarkað og samkeppni lítil sem engin. Nýundirritaðir búvörusamningar munu festa núverandi kerfi í sessi og ýta undir samþjöppun í greininni án þess að bæta hag neytenda. Það hefur lengi verið skoðun ASÍ að mikilvægt sé að dregið verði úr tollvernd landbúnaðarvara og beinn stuðningur við greinina aukinn á móti. Af slíkri áherslu­ breytingu höfum við jákvæða reynslu sem bændur þekkja vel úr garðyrkjuframleiðslunni. Afnám tolla á agúrkum, paprikum og tómötum og aukinn beinn stuðningur við framleiðendur var heillaspor fyrir alla aðila, verð til neytenda lækkaði, innlend framleiðsla efldist og afkoman batnaði. Nýsköpun í greininni jókst og markaðshlut­ deild innlendrar framleiðslu jókst verulega þrátt fyrir auknar innflutningsheimildir. Tækifæri til sambærilegra breytinga er að finna víða í íslenskum landbúnaði. Gagnrýni ASÍ byggir því síður en svo á vilja til að draga máttinn úr íslenskum landbúnaði heldur teljum við að nýta hefði átt tækifærið nú til að ráðast í nauðsynlega nútímavæðingu á stuðningi við landbúnaðinn sem hefði aukið nýsköpun og samkeppnishæfni greinarinnar til framtíðar, ekki síst með hagsmuni bænda og starfsfólks í greininni að leiðarljósi. Tækifæri felast í sókndjarfri landbúnaðarstefnu Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ Það hefur lengi verið skoðun ASÍ að mikilvægt sé að dregið verði úr tollvernd landbún- aðarvara og beinn stuðningur við greinina aukinn á móti. Nýrri Vinstri græn Þingmaðurinn Ögmundur Jónas- son sagði í grein í Fréttablaðinu í gær að vandi vinstri hreyfingar- innar væri að hún tryði ekki á eigin lausnir. Hann segir frjáls- hyggjuna hyggna að byrja upp á nýtt með NÝ-frjálshyggjuna og nú eigi vinstrið að gera slíkt hið sama. „Stjórnmálahreyfingar sem vilja eiga erindi við framtíðina þurfa að skilja að það þarf alltaf að vera að byrja upp á nýtt,“ segir Ögmundur og skýtur þar með fast á VG sem virðist ekki höfða til kjósenda þessi misserin. Ögmundur er búinn að sitja á þingi síðan 1995 og er heilmikill reynslubolti – það verður ferskur og hressandi blær þegar hann stofnar Ný-vinstri. Ungliðahreyfingin mun þá væntanlega heita: Ný-ung. SMS frá ráðherra Kristján Þór Júlíusson heilbrigðis- ráðherra og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra heyrðu fyrst í fréttum á föstudag að Sigmundi Davíð forsætisráðherra þætti að Landspítalinn ætti að rísa á Vífils- stöðum en ekki við Hringbraut. Sigmundur sagði að aldrei hefði verið ákveðið að spítalinn risi við Hringbraut, sem er þveröfugt við samþykkt lög og ríkisfjármála- áætlun. Þetta er frekar kómískt samskiptaleysi. Ætli Sigmundur hafi ekki stimplað inn skakkt númer þegar hann sendi sms á heilbrigðisráðherra: „Á meðan ég man. Ég vil Landspítalann í Garðabæ.“ snaeros@frettabladid.isH E I L S U R Ú M Drottning vikunnar A R G H !!! 1 50 31 6 #3 30% AFSLÁTTUR! ROYAL AVIANA Systurnar tvær frá Srí Lanka sem sættu meintu mansali í Vík í Mýrdal í síðasta mánuði eru farnar úr landi. Ástæðan var bág kjör þeirra og úrræðaleysi íslenskra stjórnvalda.Forsaga málsins er sú að systrunum var að sögn haldið föngnum í íbúðarhúsnæði þar sem þær unnu þrælkunarvinnu í kjallara við sauma­ skap. Lögreglan réðst til inngöngu, og fréttir bárust af því að mansalsteymi höfuðborgarsvæðisins hefði verið fengið til aðstoðar. Konunum tveimur var komið fyrir í Kvennaathvarfinu og útvegaður réttargæslumaður. Nú hafa þær sjálfar óskað eftir að fá að yfirgefa landið – og eru farnar. Þeim var við dvöl sína í Kvenna­ athvarfinu úthlutuð 761 krónu á dag. Þeim stóð til boða dvalarleyfi á grundvelli gruns um mansal en í slíkum tilvikum er ekki möguleiki á að sækja um atvinnuleyfi. Þannig var konunum í raun gert að skrimta hér í athvarfi með ekkert við að vera. Réttargæslumaður kvennanna sótti um öðruvísi dvalarleyfi fyrir konurnar, á grundvelli mannúðar­ sjónarmiða, en þá hefðu þær getað unnið sér til hnífs og skeiðar. Þar sem slíkt leyfi tíðkast ekki í þessum málum, bjóst hún ekki við að Útlendingastofnun myndi verða við því og leitaði beint til innanríkisráðherra. „Sú skipun kom aldrei,“ sagði réttargæslumaðurinn. Í fréttum á heimasíðu innanríkisráðuneytisins má finna fjölmargar umfjallanir um aðgerðir sem teknar hafa verið gegn mansali. Árið 2013 var í ríkisstjórn sam­ þykkt aðgerðaáætlun til þriggja ára gegn mansali, sem er rúmlega 30 blaðsíður. Þar segir að áætlunin taki mið af þörf á að veita fórnarlömbum stuðning og öryggi og þörf á bættu verklagi og viðbúnaði stjórnvalda einkum innan réttarvörslukerfisins. Stuttu eftir fréttir af mansalsmálinu á Vík kom fram hjá ráðuneytinu að áætlunin hafi verið endurskoðuð og verði áfram unnið að vitundarvakningu um málaflokk­ inn. Yfir eitt þúsund manns hafi setið fundi um allt land þar sem fjallað var um lagalega þætti, farið yfir helstu einkenni hugsanlegra fórnarlamba og möguleg úrræði. Það er ekki ofsögum sagt að miðað við reynslu systranna hefur árangurinn af þessari aðgerðaáætlun og fundahöldum verið takmarkaður. „Mjög líklega hafa þær farið aftur í hendurnar á þeim sem sendu þær hingað,“ sagði réttargæslumaðurinn. Skilningur á vandamáli þeirra sem eru fastir í viðjum vinnumansals virðist svo gott sem enginn og úrræðin fá. Oft og tíðum ber þeim sem seldir eru vinnumansali að tryggja þeim sem versla með þá ákveðnar fjárhæðir. Berist þær ekki getur fjölskyldan í heimalandinu verið í hættu. En 761 króna á dag dugar ekki fyrir framfærslu einstaklings hér á landi, hvað þá til að fullnægja mansalanum. Meðferð stjórnvalda á þessum systrum er til skammar. Hún ber vott um vanþekkingu og skilningsleysi. Mjög líklega munu áþekk mál koma upp síðar. Vonandi hafa fundahöldin skilað betri löggjöf, þekkingu og kerfi sem tekur á móti þeim fórnarlömbum. Hjálpin sem ekki barst Það er ekki ofsögum sagt að miðað við reynslu systr- anna frá Srí Lanka hefur árangurinn af þessari að- gerðaáætlun og funda- höldum verið takmarkaður. 1 6 . m a r s 2 0 1 6 m I Ð V I K U D a G U r14 s K o Ð U n ∙ F r É T T a B L a Ð I Ð SKOÐUN 1 6 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :4 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 C 7 -E 5 9 0 1 8 C 7 -E 4 5 4 1 8 C 7 -E 3 1 8 1 8 C 7 -E 1 D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 8 s _ 1 5 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.