Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.03.2016, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 16.03.2016, Qupperneq 18
Svigrúm er til að greiða allt að 120 milljarða króna í arð út úr við- skiptabönkunum þremur. Þar af er svigrúm til að greiða allt að 110 milljarða út úr ríkisbönkunum, Íslandsbanka og Landsbank- anum. Þetta kom fram í máli Hrafns Steinars- sonar, sérfræðings hjá Greiningardeild Arion banka, á kynningu á nýrri efnahagsspá bank- ans í gær. „Stöðugleikaframlög slitabúanna breyta tölu- verðu fyrir ríkið og þar vegur þungt eignar- hlutur ríkisins í bönkunum og þær arðgreiðslur sem renna til rík- isins,“ segir Hrafn. Bjarni Benedikts- son fjármálaráðherra sagði við Vísi í gær að hann vilji draga úr stærð bankakerfisins áður en farið verði að selja hluti úr ríkisbönkunum. Þá hafi arður ríkisins af bönkunum verið meiri en búist hafi verið við. Hrafn segist þó ekki eiga von á því að allt svigrúmið verði nýtt til að greiða arð á þessu ári. Samanlagt eigið fé bank- anna þriggja var 669 millj- arðar í árslok. Hrafn bendir á að svigrúmið hjá Landsbank- anum og Íslands- b a n k a s é meira en hjá Arion banka þar sem eig- infjárhlut- fall þeirra sé ríflega 30 prósent en 24,2 pró- sent í til- felli Arion banka. „Aftur á móti þarf að horfa líka til lausafjárhlutfalls þegar er verið að meta arðgreiðslu- getu bankanna,“ segir Hrafn. Ef miðað sé við að greiddur verði arður þannig að eiginfjárhlutfall bankanna lækki í 23 prósent geti Landsbankinn greitt út um 60 milljarða í arð og Íslandsbanki um 50 milljarða en Arion banki um 10 milljarða að sögn Hrafns, en 23 pró- senta eiginfjárhlutfall sé dæmi um heppilegt eiginfjárhlutfall til lengri tíma. Til stendur að Landsbankinn greiði 28,5 milljarða í arð og Íslandsbanki 10,3 milljarða í arð á þessu ári. Þannig muni tæplega fjörutíu milljarðar króna renna til ríkisins. Með þessu móti sé ríkið þegar búið að fá meirihlutann af þeim 71 milljarði sem gert var ráð fyrir í fjárlögum að fengist fyrir sölu á 31,2 prósenta hlut í Lands- bankanum. ingvar@frettabladid.is Hrafn Steinarsson, sérfræðingur hjá Greiningardeild Arion banka. Skjóðan markaðurinn Útgáfufélag 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 512 5000 | Fax 512 5301 Umsjón Jón Hákon Halldórsson jonhakon@365.is Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir | Forsíða una Ösp Steingrímsdóttir Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is miðvikudagur 16. mars landSbanKinn Hf. Aðalfundur SeðlabanKi ÍSlandS Vaxtaákvörðun VÍS Aðalfundur n1 Aðalfundur Fimmtudagur 17. mars ÞJóðSKrá ÍSlandS Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu. SeðlabanKi ÍSlandS Ársfundur Seðlabanka Íslands. eimSKip Aðalfundur 2016. KViKa banKi - Aðalfundur. Sláturfélag SuðurlandS Aðalfundur. fJarSKipti Aðalfundur. tm Aðalfundur. Föstudagur 18. mars ÞJóðSKrá ÍSlandS Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu. HagStofa ÍSlandS Samræmd vísitala neysluverðs í febrúar 2016. mánudagur 21. mars HagStofa ÍSlandS Vísitala byggingarkostnaðar fyrir apríl 2016. Þriðjudagur 22. mars HagStofa ÍSlandS Mánaðarleg launavísitala í febrúar 2016. Á döfinni Hagnaður bankanna þriggja var 106,8 milljarðar á síðasta ári. Þetta er mesti hagnaður á einu ári frá hruni. Ríkið getur fengið yfir hundrað milljarða í arð Svigrúm er til umtalsverðra arðgreiðslna úr Íslandsbanka og Landsbankanum. Arðgreiðslur til ríkisins eru hærri en búist var við. Fjármálaráðherra talar fyrir því að bankakerfið verði minnkað áður en lengra verður haldið í sölu á bönkunum. 669 milljarðar var samanlagt eigið fé arion banka, Íslandsbanka og Landsbankanum í árslok. Stundum getur SKJóðan ekki varist þeirri tilhugsun að íslenska Fjármálaeftirlitið sé í raun fátt annað en sóun á fjármunum. Öryggið sem FME veitir er falskt. eftir KlÚður tryggingafélaganna í tengslum við fyrirhugaðar arð- greiðslur á dögunum, þegar m.a. kom fram að VÍS átti ekki nægt laust fé og hafði þurft að gefa út víkjandi skuldabréfaflokk til að eiga fyrir arðinum, sem stjórnin var staðráðin í að koma í hendur hluthafa, varð Skjóðan sér úti um fjárfestakynningu félagsins vegna skuldabréfaútgáfunnar. Í Kynningunni kemur margt athyglisvert fram. Vextir skulda- bréfanna eru svimandi háir, 5,25 prósent, mun hærri en vextir venjulegra íbúðalána til einstak- linga. Þá eru bréfin verðtryggð til þrjátíu ára og eftir tíu ár hækka vextirnir í 6,25 prósent. VÍS greiðir hærri vexti af skuldabréfunum en sem nemur arðsemi eignasafns félagsins og því blasir við að strax á þessu ári þarf að hækka iðgjöld, ekki til að mæta slæmri afkomu af tryggingastarfsemi eins og var notað sem skýring til að hækka iðgjöld í lok síðasta árs heldur til að standa straum af hinum óhag- stæðu lánum sem voru tekin til að greiða út arðinn til eigenda. VÍS birtir nokkrar sviðsmyndir sem eiga að endurspegla þá áhættu sem fjárhag félagsins stafar af útgáfu skuldabréfanna. Þar kemur fram að ef skuldabréf félagsins lækka um tíu prósent og önnur verðbréf um tuttugu prósent lendir félagið undir neðri vikmörkum gjaldþols og þarf að virkja aðgerða- áætlun til lagfæringar. læKKi SKuldabréf félagsins um tíu prósent og önnur verðbréf um þrjátíu prósent er félagið komið undir gjaldþolskröfu og þarf að grípa til tafarlausra aðgerða til að geta haldið áfram starfsemi. Og hvernig ætlar svo VÍS að bregðast við ef slík lækkun (sem hlýtur að teljast innan vikmarka á íslenskum verðbréfamarkaði) á sér stað? Jú, þá ætlar félagið að endurskipu- leggja eignasafn sitt með því að selja verðbréf og kaupa ríkis- skuldabréf. Þetta mun, að mati stjórnenda VÍS, kippa gjaldþoli félagsins úr ruslflokki upp í úrvals- flokk í einu vetfangi. Það er bara einn galli á gjöf Njarðar. Þegar verðbréf falla í verði um tugi prósenta er ekki hægt að selja slík bréf nema með miklu tapi, og væntanlega líka með veru- legum afföllum frá hinu lækkaða markaðsverði ef VÍS neyðist til að selja öll sín verðbréf í einu. Spyrjið bara stjórnendur stóru eignar- haldsfélaganna sem þurftu að selja eignir í október 2008! Þessi áætlun um endurreisn gjaldþols er því blekking ein. VÍS er eftirlitsskylt fjármálafyrirtæki. Fjármálaeftirlit sem kyngir athugasemdalaust þeim sviðsmyndum sem fram koma í fjárfestakynningu VÍS er fullkomlega gagnslaust. Það hefur ekkert lært af reynslunni. Fullkomlega gagnslaust Fjármálaeftirlit 1 6 . m a r S 2 0 1 6 m i ð V i K u d a g u r2 markaðurinn 1 6 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :4 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 C 8 -0 D 1 0 1 8 C 8 -0 B D 4 1 8 C 8 -0 A 9 8 1 8 C 8 -0 9 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 1 5 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.